Tíminn Sunnudagsblað - 11.04.1971, Blaðsíða 13

Tíminn Sunnudagsblað - 11.04.1971, Blaðsíða 13
víkinigum varð til vegna þess, að menn léíoi heillast af einu kvæði, Loðbrókao'kviðu eða Krákumálum. Nú má spyrja: hvers vegna höfð- aði mynd hins bióðþyrsta víkings, sem kann ekki að hræðast, svo mjög til rithöfunda á þessu tíma- skeiði, eins og fram kom í verk- um þeirra? Þeir virðast hafa þurft á slíkri hetjumynd að halda. Hefðu þeir ekki talið sig hafa fumdið hana í fornnorrænum bókmennt- um, hefðu þeir þurft að finna hana annars staðar eða búa hana til. Hugsanlegt er, að jafnskjótt og sú tegund átjándualdar bókmennta, er lofaði skynsemina umfram aðra mannlega eiginleika, var ekiki leng- ur í tízku, og er skáld tóku aftur að fjalla opinská't um hinar ofsa- fengnari tilfinningar manina og ástríður, hafi það verið nauðsyn- legt að fara ránshendi um bók- menntir fyrri alda og annarra landa til þess að finna persónu- gerving hinna taumlausu ástríðna. þessu hkitverki gat hinn blóð- þyrsti víkingur gegnt. Við getum fundið jafnvel enn einkennilegra dæmi um þetta með því að skyggn- ast um í samtímanum. Hetjum í njósnasögum, James Bond og hans líkum, er ætlað að líkjast raun- verulegum njósnurum—nútíma- njósnurum, ekki gamaldags spæj- urum. En hver, sem hefur minnstu þekkingu á njósnurum á alþjóða- vettvangi, veit, að allajafna eru njósnarar hlægilegir og meðaumk- unarverðir, eftir því hvernig á málin er litið. Ef til vill gegnir sama máli um Janies Bond, en ég efast um, að sú hafi verið ætlun Ians Flemmings, eða að þeir, sem lesa Bond eða sjá Bond-myndir, líti á hann sem trúð. Af einhverj- um ástæðum þykir rómantískur njósnari girnileg persóna til fyrir- myndar. Það er ómaksins vert að íthuga, hvernig liugmyndin um hinn blóð þyrsta víking birtist í verk- um Sir Walters Scotts. Hann hefði mikinm áhuga á fornnorrænum bókmenntum, aliar götur frá því hann var stúdent við Edinborgar- háskóla, og má oft sjá merki þess í verkum hans. Scott var snjallari en sumir þeir höfundar, sem urðu fyrir áhrifum af ríkjandi áhuga á fornnorrænum bókmenntum, og komst nær því en ýmsiir aðrir að kynnast þeim milliliðalaust. Á unga aidri færði hann rúnastafróf- ið inn í minmisbók, sem enn er til. En í Ijóðinu Harold the Dauntless (Haraldur hugdjarfi), sem prentað var árið 1&17, kemur söguhetjan fram sem einhver grimmúðugasti víkingur, sem um getur í bók- memntasögunni. Haraldur segir um sjálfan sig: An infant, was taug to clasp hands and shout, From the tops of the tower when the flames had broke out: In the blood of slain foemen my finger to dip, And tinge with its purple my cheek and my lip. Af þessu kynni einhver að draga þá ályktun, að Scott hafi kunnað hið bezta við víkinginn grimm- lundaða sem persónu í skáldskap ©g búizt við, að lesendur hans væru sama sinnis — einnig, að hann hafi ekki haft neinar áhyggj- ur af þvi, hvort menn á borð við Harald hugdjarfa hefðu í raun- réttri nokkru sinni verið uppi. En þessi skoðun fær naumast staðizt. T I IVI I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 325

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.