Tíminn Sunnudagsblað - 11.04.1971, Blaðsíða 21

Tíminn Sunnudagsblað - 11.04.1971, Blaðsíða 21
 ir, að portúgalski herinn í Mós- ambik sé búinn suður-afrískum skotvopnum og suður-afrískar þyrlur aðstoði hann. Síðastliðið haust tók höfuðsmaðurinn þátt í herför til Norður-Mósambik, og var þeim leiðangri lýst svo 1 fréttum, að hann hefði „borið tilætlaðan árangur“. Höfuðs- maðurinn sagði, að þetta hefði þó verið hin mesta hrakför og margir Portúgalar fallið á und- anhaldinu. ★ í heimsstyrjöldinni síðari fylltu nazistar saltnámu í grennd við Salzburg af lista- verkum, forngripum, bókum, handritum og mörgum öðrum fáséðum munum, er þeir höfðu stolið síða um lönd. Bandarísk- ur herflokkur fann munina og flutti þá til Múnchen, þar sem fljótlega var byrjað að skila því, er eigendur fundust að. Eftir mörg ár voru um átta þúsund listaverk send til Austurrík- is, þar sem þau hafa síðan verið geymd í klaustri í Mauerbach. Frestur sá, sem eigendunum veittist til þess að gera tilkall til þessara muna, rann út um síðustu áramót, og nú er fjár- málaráðuneytið austurríska að ganga endanlega frá því, hvaða kröfur verða teknar til greina. ★ Mikil ólga hefur verið meðal bænda í Evrópulöndum í vetur, og hafa þeir víðar látið til sín taka en í Brússel á dögunum. Nokkru áður héldu sextíu þús- und þýzkra bænda til Bonn til þess að minna á tilveru sína. Fylltu þeir átta hundrað lang- ferðabíla og átta aukalestir, auk þess sem mikill fjöldi bænda kom til höfuðborgarinnar á ým- iss konar faratækjum öðrum. Héldu þeir beina leið til aðal- torgsins í miðborginni, þar sem þeir fylktu sér um líkkistu, sem þeir höfðu meðferðis, neðan við ráðhúsþrepin, hófu upp þúsund ir spjalda með áletrunum af ýmsu tagi, sungu söngva, hróp- uðu vígorð og sprengdu kín- verja. Þúsundraddaður talkór flutti ávarp bændanna. Að þrem stundum liðnum tók for- ingi þeirra, Heereman von Zu- ydtwyck, til máls, en að því búnu fóru bændur í flokkum um borgina með kröfuspjöld sín. Orsök þessa ' er óánægia bændanna með kjör sín og mis- munun, sem þeir eru beittir. Nefndi Heereman von Zuyd- wick til dæmis, að verð á hveiti hefði verið 3,6% lægra í des- ember 1970 en ári fyrr, en eigi að síður hefði brauð verið 8— 10% dýrara, og verð það, sem bændur fá fyrir svínakjöt hafi fallið um 23%, en söluverð í búðum haldizt óbreytt. Hinn sameiginlegi Evrópumarkaður hefði enga leikið jafngrátt og bændur, og þess sæjust" hvergi merki, að neinn bæri hag þeirra fyrir brjósti. Við fjöldafundina í Bonn brá svo við, að- málstað þeirra var lýst í blöðum, útvarpi og sjón- varpi, þótt varla hefði verið á erfiðleika þeirra minnzt í fjöl- boðum fram að því. ★ Árið 1950 sáðu Svíar rúgi í hundrað þúsund hektra, en ár- ið 1965 voru rúgakrarnir ekki orðnir nema 35 þúsund hektar- ar. Síðan hefur rúgræktin geng- ið saman ár hvert, þar til nú, að meira verður sáð af rúgi en áður. Orsökin er sú, að í jurta- kynbótastöðinni í Svalöv hefur tekizt að búa til nýtt afbrigði af rúgi, sem þolir votviðri og storma miklu betur en hin eldri afbrigði og skemmist síð- ur af völdum sveppa/ Þetta af- brigði er nefnt Ótelló, og hefur tekið tólf ár að rækta það. Tal- ið er, að það geti staðið tveim vikum lengur á ökrunum held- ur en annar rúgur, án þess að skemmast. ★ í Norður-írlandi eru til lög frá árinu 1922, sem heimila lög- regluaðgerðir, er um flest eru keimlíkar aðferðum þeim, sem hin ofstækisfulla Suður- Afríkustjórn beitir gegn blökkumönnum. Hermenn og lögregluþjónar geta komið um miðja nótt, tekið fólk höndum og lokað það inni í fangahúðum. án nokkurrar rannsóknar eða ákæru, og haldið því þar árum saman. Slíkum aðíerðum var bsitt gegn kaþólsku fólki á Norður-írlandi ailt fram til árs- ins 1962, er átta hundruð menn, sem setið höfðu i þvílíkum fangabúðum í allt að fimm ár, voru látnir lausir. Þessum lögurn (ef lög skal kalla) vilja nú öfgamenn í hópi mótmælenda láta beita gegn andstæðingum sínum á nýjan leik. 'k í Svíþjóð, hafa um skeið ver- ið gerð í sumarbústöðum sal- erni, þar sem hvorki er notað vatn til þess að skola burt saurnum né nein efni, sem hafa í för með sér skjóta eyðingu. Bæði heilbrigðisstjórnin norska og náttúruverndarráðið hafa mælt með þessari nýju gerð salerna við Norðmenn. Salernum þessum fylgir þró eða geymir, sem gengið er frá í grunni hússins. Á botni þró- arinnar er haft lag af mold og og trjálaufi, og galdurinn er sá, að sveppa- og gerlagróður, sem þar myndast, vinnur fljótt og örugglega á úrganvsefnun- um. Þróna þarf ekki að tæma fyrr en eftir tvö ár, þótt fernt dveljist í sumarbústaðnum, og þá eru það einungis örfáar mold arrekur, er bera þarf burt. Þótt einkennilegt kunni að virð ast, fylgir ekki neinn óþefur þessum salernum. Þrónni er sem sé tengdur loftræstingarút- búnaður, sem svo er úr garði gerður, að loft sogast í sífellu niður úr salerninu. Þetta þyk- ir allgóð uppfinning, þar sem hún hefur verið reynd, því að salerni hafa jafnan verið tals- vert vandamál í sumarbústaða- hverfum, ekki sízt á vatnsbökk- um eða grennd við ár og læki. í salernisþrær þessar má einnig fleygja sorpi og úrgangi, sem fylgir matargerð. Allt, sem upp leysist á annað borð, eyðist í þeim. T t M 1 N N — SUNNUDAUSBLAÐ 333

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.