Tíminn Sunnudagsblað - 11.04.1971, Qupperneq 22
r-
Skvett úr klaufum
JAFNRÉTTI KYNJANNA
„Sú loðna, sem skipsmenn
höfSu náð í, var eintómt karl-
síli, sem búið var að hrygna“.
(Morgunblaðið, 30. marz).
Þar kom loks í leitirnar sam-
félag, þar sem karldýrið kemst
ekki lengur upp með svivirði-
lega sérhlífni og kynferðislega
mismunun. Vonandi verður
þessu maklegur gaumur gef-
inn, og má ekki minna vera en
rauðsokkur beri myndarlega
loðnu í göngunni 1. maí í vor.
BUXNASTRlÐ
„George Brown hyrjar nú að
tala. . . Hann hysjar öðru hvoru
buxunum upp á ístruna með
frjálsmannlegum hreyfingum,
svo að enginn efast um, að lá-
varðurinn er einnig sósíaldemó-
krati.“
(Morgunblaðið, 30. marz).
Við héma, sem hreytum úr
klaufunum ,vitum nú ekki bet-
ur en Georg Brown hafi ein-
mitt misst buxurnar heldur hast
arlega niður um sig ekki alls
fyrir löngu. En það er eitt hið
versta, sem getur hent, jafnt
lávarða sem sósíaldemókrata,
því að þá má ekki lengur greina,
hver maðurinn er ,eins og Þor-
steinn Erlingsson uppgötvaði
við kynni sín af JörundL
VINNUHAGRÆÐING
,Ferðin yfir Sandvíkurheiði
var erfiðasti hjallinn í umræddri
ferð, en læknirinn var sex tíma
að komast yfir lieiðina á jeppa
sínum. Mikill snjór var á heið-
inni, og þurfti læknirinn að
moka sér leið áfram.“
(Alþýðublaðið, 3. apríl).
Þjóðfélagið er sparsamt á
lækna og fleiri embættismenn
1 þeim hlutum landsins, þar
sem ekki gefur sýn til Faxaflóa.
Þess vegna ríður á að nýta þá
vel, er enn eru á stangli hing-
að og þangað. Þarna sýnir sig,
að Vopnafjarðarlæknirinn get-
ur sem bezt verið snjóýta hjá
vegamálastjóminni á heiðunum
á Norðausturlandi. Þá þurfa
mannaskrattarnir ekki að kvarta
um það lengur, að þeim sé mis-
munað í því.
ANNÁLSVERÐUR FISKSALI
„. . . eftir ábendingu blaða-
manna Vísis, sem blöskraði út-
gangurinn á fiskflutningabifreið
fisksala, sem auk þess að vera
með eindæmum skítugur stóð
hálfan sólarhring með fiskfarm
óvarinn við fjölfarna umferðar-
götu.“
(Vísir, 3. apríl).
Þrekmenni er þetta, hvað sem
öðru líður, að kikna hvorki und-
ir skít sinum né fiskfarmi, og
þolgóður að standa svona lengi
verjulaus.
STERKT OG EÐLILEGT
„Með því að miða flutning-
inn við fjörutíu mínútur fáum
við betri pressun á plötuna, sem
hefur ákaflega mikið að segja
hvað varðar tóngæðin, þannig að
sándið verður sterkara og eðli
legra.“ (Vísir, 3. apríl).
Ja, þó það nú væri! Fjörutíu
mínútur er nákvæmlega það,
sem sándið og pressunin heimta.
4
Þættir úr Noregsför —
Framhald af 321. síSu.
um listamönnum skyggnari í þessu
efni, því að svo tær sýnist mér
hin mannlega fegurð koma fram
í mörgu því, sem ég hef séð eft-
ir hann.
En hvað skyldi þá mega segja
um hinn frægasta listamann Nor-
egs, Vigeland, sem eins og Thor-
valdsen og höggmyndasnillingar
fornaldarinnar/fékkst einkum við
hið mannlega útlit? Var það næst-
síðasta daginn okkar í Osló. að við
skoðuðum þennan fræga garð,
sem við hann.er kenndur, og sann-
arlega er líka hinn veglegasti. Og
áhrifamikið þótti mér þar að
koma, og hygg ég. að þar sé mikil
saga lifenda og þióðar skráð í
stein. Niðurinn, sem þarna berst
frá gosbrunnum og tilbúnum foss-
um, fannst mér leika undir í gam-
alli sögu, gömlum minningum,
sumum ljúfum, en öðrum beisk-
um og sárum. Einni lítilli lágmynd
man ég þannig eftir, sem sérstak-
lega verkaði á mig á þennan veg,
og ekki var þó annað en beina-
grind einhvers einstæðings, sem
úti hafði orðið, og var hún fallin
saman að nokkru og sameinuð um-
hverfi sínu.
Víðátta þessa garðs er mikil, og
gat ég ekki vel gert mér grein
fyrir takmörkum hennar. Er þar
gróður mikill og fríður, tré og
blóm, og eins og fyrr segir,
streymandi vatn og tjarnir, þar
sem ýmsar endur voru á sundi,
Lausn
13. krossgátu
en einungis einn svanur. Og rúm-
um sólarhringi síðar en við vorum
þarna, vorum við aftur komin á
loft í flugvél, sem bar okkur heim-
leiðis gegnum myrkur og nótt.
sr bi
T A K A F'A *
t> P l Ntt / /
í, / HV I HN i
K N S/fto i
U K n '0 T fl t
H A u S t H H ft T * * *
Ú L ff L'n H i P'I NH fl
nu & ft l t r t n n tt K
i R / S 3 fí bÞ A A N Á
VINNA OK Mi*A I
ÍNWA 6 F fi K I J> M
IN NbX I ‘06 N T E
l m a ? * p i n nK /? s
* v £ fcj ieIRA#
) * B K ft T B L I £ u n l
I a i run c u$
V L U R I NN Kb N I N N
WiöAífl F 0 P I A/W >
n $ - p'n-4 r a r n r
334
T I M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ