Tíminn Sunnudagsblað - 16.05.1971, Page 4

Tíminn Sunnudagsblað - 16.05.1971, Page 4
Brynjólfur Jónsson frá Minna-Núpi var merkilcgur maður. Heilsu- brestur varS honum ungum fjötur um fót, en eigi að síður var hann alla ævi sístarfandi að margvíslegum hugðarefnum. Hann var sagna- ritarj góður, eins og bækur hans sýna og sanna, og hugleiddi mjög heimspekileg efnj og reyndi að hrjóta þau til mergjar í rituðu máli. Hann fékkst við skáldskap og þýddi hækur, og hann var hneigður til náttúrufræði. Fjölda greina og ritgerða skrifaði hann, og átti bréfa- skipti við ærið marga, innan lands sem utan, jafnt vísindamenn sem bændur og búalið. Aðalstarf hans var þó barnakennsla á vetrum eins og þá var títt um þá, sem ekki þoldu erfiðisvinnu, en á sumrin vann hann í þágu Fornleifafélagsins aHlengi. í bréfasafni hans, sem varðveitt er í Landsbókasafninu, kennir margra grasa, og verða hér birtir fáeinjr kaflar úr bréfum til hans — í þeirrj trú, að einhverjir þylcjast verða nokkru vísari. 1. Bólu-Hjálmar í elli sinni Magnús Andrésson frá Syðra- Langholti var prestur á Gils- bakka í nær fjóra áratugi. Árið 1874 var hann fylgdarmaður Kristians Kaalunds víða um land, þá námspiltur í latínu- skólanum. Löngu scinna iýsti hann svo komu sinni að Gríms tungu í Vatnsdal, er þeir Kaa- lund voru á suðurleið í sept- embermánuði um haustið: „Þá frétti ég, að Hjálmar væri þar staddur, og beiddist ég að fá að koma til hans. Var mér þá fylgt upp á loft og inn 1 herbergi þar, og þar var Bólu-Hjálmar einn fyr- ir. Ég heilsaði honum, .talaði lítið eitt við hann, mest eða eingöngu þannig, að ég skrifaði á stein- spjald, en hann las og svaraði svo munnlega. Því næst skrifaði ég A spjaldið þessi orð: „Til virðingar við skáldið" — og lagði jafnframt á spjaldið fáeinar krónur. Hann leit á, tók krónurnar og sagði: „Dálaglega skrifað!“ Og rétt á eftir mælti hann fram vísuna: Blómstrum skrýða letur lönd, sem ég lærði þegar. En í vasabók mína skrjfaði Hjálmar ekkert. Og ekki er ég viss um, að hann hafi ort vísuna við þetta íækifæri, þótt ég héldi það helzt þá. En mig minnir, að ég sæi seinna vísuna í ljóðabók Hjálmars, og par I miðju kvæði einu, hvern- ig sem á því stendur“. 2. Nál í handlegg maddömu Séra Magnús átti a8 konu Sigriði Pétursdóttur frá Höfn í Mclasveit, Eins og kunnugt er fékkst séra Magnús mjög við lækningar, enda virðist hann hafa verið mætavel að sér í þeim fræðum, er lækn- um urðu þá að tileinka sér. 30. desember 1902 skrifaði hann Brynjólfi skrítna sögu: „Hinn 27. október var nál skor- in úr handlegg konu minnar, og hafði nálin verið þar í meira en þrjátíu ár. Sárið greri nokkuð seint, en nú algróið“. Brynjólf frá Minna-Núpi hefur fýst að vita meira um þessa nál í handlegg prestsmaddömunnar á Gilsbakka, því að 25. marz 1903 vék séra Magnús að þessu á ný: „Þegar konan mín var barn á Selalæk fyrir meira en þrjátíu ár- um síðan, var hún að leita að ein- hverju fyrir ofan kistu þar. Þá stakkst nálin svo rækilega inn í nandlegginn — ekki beint, heldur næstum samsíða hörundinu — , að fiún hvarf inn, en fannst greini- iega að utan undir skinninu. Af ótta við lækninn og óperasjón þorði barnið ekki að geta um þetta við neinn mann, og svo ílengdist nálin í handleggnum, unz hún var tekin 27. október fyrra árs. Að ekki gróf kringum nálina, hefur stafað af því, að voggerlar (bakteríur) hafa ekki komizt inn með henni — ekki verið á henni. 1ÍMINN — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.