Tíminn Sunnudagsblað - 16.05.1971, Blaðsíða 21

Tíminn Sunnudagsblað - 16.05.1971, Blaðsíða 21
um meiri, er áður voru dæmi um. Fyrirboði þessa voða var sá, að átta stjörnur voru í þann veginn að komast í afstöðu, sem þær höfðu aldrei fyrr haft og fornhelg fræði sögðu, hvað hafa myndi mikla refsidóma í för með sér. Víða í Austurlöndum, þar sem kunnugt var um þennan spádóm, seldi fólk allar eigur sínar, og gamalt fólk og sjúkt var flutt með ærinni fyrirhöfn og miklum til- kostnaði á ginnhelga staði, svo að það mætti deyja þar. Þúsundir manna leituðu einnig í hella í fjöll- um, ef vera mætti, að einhver tætla af þeim stæðist áraunina. í Bengal voru námaverkamenn ófá- anlegir til þess að fara niður í námurnar þann dag, er þetta allt átti að gerast, og viðskipti hjá tryggingarfélögum jukust meira en nokkur dæmi voru um. Meðal Hindúa var algengt, að brúðkaup- um væri frestað. í Bandarkjunum var taisvert slangur af fólki, sem ekki ef- aði, að indversku stjörnuspámenn- irnir hefðu rétt að mæla. Tuttugu og tveir menn úr félagsskap ein- um, sem nefndist Skilningur hf, gekk á fjall eitt í Arizóna til þess að ljúka þar ævidögunum. Sagan segir, að þetta fólk hafi verið dá lítið skömmustulegt, er það kom aftur til mannabyggða, bráðlifandi. Þó að það hefði í rauninni átt að vera glatt og þakklátt, ef það kærði sig á annað borð um að lifa lengur. Maður einn í New York, sem hefur það að atvinnu að segja fyrir óorðna hluti, lét samt þau orð falla, að hann furðaði sig ekki á því, þó að spádómur Hindúanna reyndist haldlítill „Því að“. sagði hann, „ég hef sjálfur iátið menn vita, að þriðja heimsstyrjöldin hefst ekki fyrr en í haust“. Henni var að sjálfsögðu ógerlegt að hrinda af stað í stórlömuðum heimi. ítalir eiga spámann einn, sem heitir Emilíó Bianea, og í júlímán- uði 1960 komst hópur fólks, sem á hann tniði, langt upp í hlíðar á Mont Blanc. Þar ætlaði þetta fólk að bíða hinnar miklu stundar, er herra himins og jarðar kæmi að dæma lifendur og dauða. Emilíó hafði sagt, að það yrði á þriðju- degi, er klukkuna vantaði fimmtán mínútur í tvö eftir hádegi. Sumt af þessu fólki var komið alla leið sunnan úr syðstu héruðum Ítalíu — fátækir bændur, sem selt höfðu lítilfjörlegar eigur sínar, svo að þeir ættu fyrir ferðakostnaði norð- ur í Alpana. Þótt spámönnum sé gjarnt til þess að tefla á tvær hættur í boð- skap sínum og spásögnum, eru þeir samt til, er leitast við að hafa vaðið fyrir neðan sig. Svo var um spámann einn í Bandaríkjunum, er þóttist geta lesið þar út úr ritningunni árið 1933, hvenær dómsdags væri að vænta. Hann taldi saman öll vers biblíunnar og reyndust þau vera 20067, að sögn hans. Hann kynnti uppgötvun sína í útvarpsfyrirlestrum, því að út- varpstíma má kaupa eins og gaff- albita eða hænsnakjöt í Banda- ríkjunum, og boðaði fólki, að það gæti lifað óttalaust enn um hríð, því að dómsdagur yrði ekki fyrst um sinn. Tala biblíuversanna sýndi sem sé ártalið, þegar heim- ur ferst. Ekki er það dæmalaust í seinni tíð, að spámenn ýmsir séu í harla nánum tengslum við kaupsýslu- menn eða iðjuhölda, sem ekki slá hendinni á móti því, að fjör fær- ist í viðskipti þeirra. Sumir spá- menn eru jafnvel svo séðir, að þeir ætla sér að hreppa gróðann sjálfir. Skömmu eftir heimsstyrj- öldina síðari boðaði annar banda- rískur spámaður tortimingu ver- aldarinnar í septembermánuði 1946. Hafði hann áður samið mjög handhægt og nytsamlegt rit: Hvernig þú getur öðlazt vist í himnaríki. Bókin seldist auðvitað með ágætum, þegar hann fylgdi auglýsingunum eftir með guðleg- um fullyrðingum sínum um það, hve skammur tími væri til stefnu. Þegar lögreglan ætlaði að fara að hnýsast í þessi mál, fannst hvorki spámaður, höfundur né útgefandi. Hann var flúinn til Tangier, þrí- ein persóna, og hafði getað stung- ið á sig laglegri peningafúlgu, áð- ur en hann kvaddi heimalandið. Og af því geta menn ráðið, að það eru líka til spámenn, sem kunna að snúa snældu sinni. -—— -—-——■---------- Skvett ur klaufum „ALDEILIS FÖÐURBETRUNGUR“ „Hann er sonur fátæks inn- flytjanda, en hefur reyndar al- deilis gerzt föðurbetrungur, því hann kemur naumast tölu á milljónir sínar“. (Vísir, 29. apríl). Það þarf ekki frekari vitna við en milljónanna — maðurinn hlýtur að vera stórgóður, og tæpast nefnandi í sömu anddrá og karl faðir hans, bölvaður fátæklingurinn. Úlfaldinn og nálaraugað — ekkert nema fjas og hindurvitni. BLESSAÐUR FRIÐURINN. „Aðspurður um mótmælin miklu í síðustu viku gegn að- ildinni að stríðinu í Indó-Kína sagðist forsetinn ekki geta flýtt heimkvaðningu hermanna mcira cn þegar væri orðið, því of hrað ur brottflutningur bandarísks liðs frá Víetnam myndi raksa mjög hernaðarhlutfallinu á Kyrrahafssvæðinu og þannig auka líkur á styrjöld“. (Alþýðublaðið, 30. apríl). Já, hvað vilja menn ekki á sig leggja fyrir friðinn? Þeim brygði við þarna austur frá, ef þeir vöknuðu við það ein- hvern morguninn, að friðurinn væri frá þeim vikinn. Sjálfsögð greiðasemi „Enginn vafi er á, að sjálfir eiga íslendingar stórfé í bönk- um erlendis og þeir munu fá að flytja þetta fé inn í Iandið . . . Margar ástæður geta leg- ið til þess, að maðurinn vilji fela peningana. Þeir geta verið alla vega fengnir, en við spvrj- um ekki um það, frekar en Sviss Iendingar“. Segjum tveir: Enga andskot- ans forvitni um svoleiðis hé- góma. Það hefður alltaf verið hörð kenning, að sá þurfi að kunna að fela, er a? (isekju vill stela. 4 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 429

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.