Tíminn Sunnudagsblað - 16.05.1971, Blaðsíða 10

Tíminn Sunnudagsblað - 16.05.1971, Blaðsíða 10
SÉRKENNILEGASTA HÚSIÐ í HÖFUÐ- BORGINNI OKKAR Menn eru yfirleitt íhaldssamir og fastheldnir við landsvenju, þeg ar þeir byggja lyi,s. Þorri húsa er af sömu gerð í meginatriðum, eða minnsta kosti avipaðri, og hvarfli að einhverjum að reisa sér hús, er stingur verulega í stúf við hús annarra, brestur þann hinn sama oftast áræði til þess að fara sínar götur í því efni. Það þarf sem sé talsvert sálarþrek og viljastyrk tii þess að fara ótroðnar slóðir í húsa gerð og búa síðan til langframa í afbrigðilegu húsi — allt öðru vísi en hinum venjúvígðu, yfghelguðu húsum nágranfóúiiB,. Að búa í sérlegu húsi — það er liér um bil eins og aðhyllast kenn- ingar Búddha í borg Kalvínstrúar- manna eða halda fram þeirri gömlu kenningu í Wall Street, að fyrr komist úlfaldinn í gegnum nálar- augað en ríkur maður í himnaríki. Þetta ber þó ekki að skilja svo, að þeir, sem búa í húsum af venju legustu gerð, geti alls ekki þolað öðrum að víkja þar frá. Iíitt er hugsunin, að það þarf ætíð og ævinlega þrek og manndóm til þess að víkja út af almannaleiðum, einn síns liðs. Lengi bjó Jpður og gegn þjóð félagsþegn í litlum bæ suður á Grímsstaðaholti, og þótti rart, eins og Eiríkur á Brúnum sagði um smíðisgripi sína ágæta. Nú mun sérkennilegasta íbúðarhi'is höfuð borgarinnar vera inni í Blesugróf, þar sem heitir Garðstunga. Stíll inn minnir fremur á það, sem sést í borgum og bæjum Mára í Norður-Afríku, ^ en byggingarlag- ið, sem húsameisturum þessa lands er jafneðlisgróið og jakobsfíflin- um að ræta sig í móanum og grá- sleppunni að ganga í þarann. Annars segja fróðir menn, að húsameistari einn í Frakklandi teikni hús, sem að ýmsu leyti svip ar til Garðstungu, þótt meiri séu í sniðum. Þar er smíði sjálfrar náttúrunnar, hamrar og kletta- belti, helzti aflvaki hugmyndanna, og aðferð meistarans til þess að finna nýja leið í húsagerðarlist, er sú að stílfæra náttúrufyrirbrigðin og fella þau að þeim kröfum, sem mannskepnan gerir um bústaði sína, umfram álfa og huldufólk og aðra bergbúa. En úr liinu verð- ur ekki skorið, hvort Frakkinn hef 418 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.