Tíminn Sunnudagsblað - 16.05.1971, Blaðsíða 12

Tíminn Sunnudagsblað - 16.05.1971, Blaðsíða 12
prestur í Eydölum. Móðir mín hét Ragnhildur Stefánsdóttir og var frá Stakkahlíð í Loðmundarfirði. Stefán, faðir hennar, var Gunnars- son, bróðir séra Sigurðar Gunnars- sonar á Hallormsstað. Móðir móð- ur minnar var Þorbjörg Þórðar- dóttir frá Kjarna í Eyjafirði. Henn- ar nafn ber ég. — Hvernig var að vera barn og unglingur á sunnanverðum Aust- fjörðum fyrir svona sjötíu til átta- tíu árum? — Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar, að á uppvaxtarárum mínum hafi menningarlíf verið meira á Austurlandi en víða ann- ars staðar á íslandi. Sjálfsagt kem- ur þar margt til, og fleira en ég veit, en ég álít að ein orsökin sé samskiptin við umheiminn. Sigl- nefnilega ekki einn dalur, heldur tveir, Norðurdalur og Suðurdalur. Það sakar ekki, að þetta komi fram, vegna þeirra sem ókunnug- ir eru á þessum slóðum. — Er þér einhver af kennurum þínum sérstaklega minnisstæð- ur? — Fyrst þú spurðir, er rétt, að ég geti um einn kennara minn, eða kennslukonu öllu heldur, sem er og verður mér ógleymanleg vegna gáfna sinna og mannkosta — að öllum öðrum ólöstuðum. Þessi manneskja var Þórdís Stefánsdótt- ir, elzta systir Metúsalems Stefáns- sonar, skólastjóra á Eiðum, og Halldórs Stefánssonar alþingis- manns, sem nýlátinn er hér í Reykjavík í hárri elli. Voru þau tólf, systkinin, svo ekki er að 1 „Þetta hef ég staðið allt af mére og Hfi nú eins og blém í eggi" Það var urhellisrigning í henni Reykjavík daginn sem ég kvaddi dyra þjá Þorbjörgu Pálsdóttur, þar sem hún dvelst hjá dóttur sinni og tengdasyni að Bergstaðastræti 28. Fyrsta verulcga gróðurregnið á ný- byrjuðu vori. Hitt þarf ekki að taka fram, að mér var tekið tveim höndum. Þor- björg leiddi mig til herbergis síns, og samtal okkar hófst. — Ert þú fædd á Gilsá í Breið- __dal, Þorbjörg? spurði ég, þegar ég hafði komið mér svo fyrir sem mér þótti hæfa. — Já. Ég fæddist að Gilsá árið 1885. Faðir minn var Páll Bene- diktsson, sem þar bjó lengi og var hreppstjóri Breiðdæla i þrjátíu ár. Var hann sorxsr séra Benediktoi Þórarinssonar, sem síðast var ing var tiltölulega mikil til Aust- urlands. Og þótt ýmsir hafi orðið til þess að hnýta í frönsku sjó- mennina — og vissulega var þar misjafn sauður í mörgu fé, — þá báru þeir þó með sér framandi menningaráhrif. Framkoma þeirra og klæðaburður var oft til sannrar fyrirmyndar — og varð líka fyrir- mynd, vitandi eða óafvitandi. Á uppvaxtarárum mínum var barnafræðsla alls ekki orðin al- menn í sveitum, cn þó tóku þeir sig saman, bændur á þrem bæjum í Norðurdal, og réðu til sín barna- kennara í heilan vetur í einu. Var hann tvo mánuði á hverjum bæ, sex mánuðir í allt, sem hann dvald- ist í dalnum. — Þú sagðir Norðurdal? — Já. Sveitin Breiðdalur er furða, þótt þau komi við sögu á löngu árabili. Þórdís Stefánsdóttir var einstök afbragðsmanneskja, bæði sem kennari og félagi. Ég hændist mjög áð henni. og þróað- ist það upp í vináttu, sem entist okkur á meðan báðar lifðu. Þórdís varð gömul kona, og ég hélt alltaf sambandi við hana, þótt hún ætti heima á Akureyri, en ég í Breið- dal. Að vísu kom þar einnig frænd semi til, því mæður okkar voru systradætur. Eftir að ég náði tólf ára aldri var alltaf ráðinn heimiliskennari til okkar sérstaklega, en ekki í fé- lagi við aðra. Einn þeirra var Bjöm Stefánsson, bróðir Þórdísar. Hann var einnig ágætur kennari. Kenndi hann mér fermingarvetur minn. 420 T 1 M I N N — SUNNUDAGSBLAD

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.