Tíminn Sunnudagsblað - 16.05.1971, Page 9

Tíminn Sunnudagsblað - 16.05.1971, Page 9
V/Ð GLUGGANN Rannsókn hefur leitt í ljós, að jafnvel æðstu embættismenn stjórnarinnar í Saigon hafa stór gróða af því að selja bandarísk um hermönnum eiturlyf, þar á meðal voldugir stjó;nmála- menn. Að sjálfsögðu I ita þeir aðra annast viðskiptin, en gróð inn, sem er ósmár, r;nnur að verulegu leyti til þeirra. Velt- an er ekki svo lítil. Bandaríkja menn í Víetnam skipta hundruð um þúsunda, og fast að því helmingur hermannanna neytir orðið að staðaldri einhvers kon ar eiturlyfja. Flestir reykja hass, en ískyggilega margir hafa í kjölfar þess orðið heró- íni að bráð. Þeir, sem minnst vilja gera úr heróínneyzlunni, nefna tíu af hverju hundraði, en aðrir ætla, að sú tala sé mikils til of lág og nær sanni, að fimmti hver maður í banda rísku hersveitunum í Víetnam neyti heróíns. Því er haldið fram fullum fetum, að ráðherrar úr suður- víetnömsku ríkisstjórninni haldi verndarhendi yfir eitur- lyfjasölunni og fái í staðinn ágóðahlut. yfirsængur úr æðardúninum úr Kolli, og börnin okkar, sem nú eru búsett hér á Nýhafnartorfunni, munu vera vel á veg komin að gera hið sama — það er þriðja kynslóðin. SVARTBAKURINN. „Grísir gjalda, gömul svín valda“, segir gamalt orðtak. Þegar við fengum loks sjálfstæði okkar, beindist öll hugsun og viðleitni okkar að því, að hreiðra. um okk- ur í sjálfstæðu ríki sem allra lík- ast hinum gömlu og svellgrónu háttum hinna ríkjanna með öllum þeirra tízku- og tíðarandafyrirbrigð um. Þetta kostaði að sjálfsögðu óhsmju peninga. Þá skyldi sækja á hin auðugu fiskimið, en í hita áhugans gleymdist afrás veiðinnar í fjörum og heilum haugum á út- gerðarstöðunum. Þetta setti svartbakspláguna á stað. Ég hef ekki hugsað neitt upp í þeirri veru að eyða svarthaknum, en ég veit óbrigðult ráð til þess, reynt fyrir réttum hundrað árum. Ég vildi, að ég hefði getað látið stiórnarvöldin sverja það að fram- fylgja því af hiklausri diörfung og einbeitni, áður en ég flíka því. En þess er englnn kostur, og verð ég þ». að láta mér lynda að treysta því, að svo verði. Það var nú fyrir réttum hundr- að árum, að móðir mín gerðist vinnukona á Sigurðarstöðum hjá Magnúsi Rafnssyni, bónda þar. Hann var einn af hinum kunnu sonum Rafns Jónssonar, Vigfússon- ar frá Brekku. Það eru tveir varp- liólmar 1 hinu stóra og prúða Sig- urðarstaðavatni, rétt suður af bæn- um, og heita Flatur og Bæjar- hólmi. Bæiarhólminn er liálendur, þurr og þýfður, og virðist hann hafa verið afburðavarpland frá fyrstu tíð. Hinn hólminn er aftur á móti lágur og blautur. Hefur víst oftast lítið orpið í honum, en þó munu þá þegar hafa orpið þar nokkrar kollur. Kríuvarp var þar allmikið, en það var þar eins og víða mun vera, að fleiri sóttu þang- að en boðnir voru. Það varp nefni- lega svartbakur í Flat á þessum ár- um. Magnús á Sigurðarstöðum talaði oft um sig í þriðju presónu — sagði til dæmis gamli maðurinn um sjálfan sig, og kann að hafa gert það frá yngri árum. Hann sagði móður minni, að „gamli maður- inn“ hefði nú sínar aðfarir við svartbakinn. í rauninni þætti sér vænt um, að svartbakurinn yrpi í Flat, því hann væri svo duglegur og áræðinn að verja varpið fyrir tófunni. Frá bænum er Flatur fjær hólmanna tveggja — nær heiðinni. Tófan lagði fyrst leið sína í Flat, ef hún kom, en aftur á móti var löng leið yfir í Bæjarhólma. Þótt- ist Magnús hafa séð tófuna koma alblóðuga upp úr vatninu, eftir hið hvassa og beitta nef svartbaksins, sem liún gat ekki ?arizf á sundi. Öðru máli hefði gegnt á þurru landi, þar sem tófan hefði getað velt sér á hrygginn, og óvíst að svartbakurinn hefði viljað koma nærri henni, þegar klærnar sneru upp. í varptíðinni voru hólmarnir gengnir þriðja hvern dag, og var þá farið á báti, og mun Magnús þar hafa sjálfur oftast farið með. Það sagði Magnús móður minni, að svartbakurinn liefði orpið í Flat frá fyrstu tíð hans þar. En hann sagðist hafa gert honum þann grikk að hrista eggin, þar til hann taldi, að vonlaust væri fyrir svart- bakinn að unga þeim út, jafnvel þótt hann hefði orðið að gera sér sérstaka ferð út í hólmann til þess. Einnig sagði hann, að ef hann hefði tekið eggin undan svart baknum hefði hann hætt að verpa þar. Þetta er eiginlega öll sagan. En það er eins með það og þegar mýsnar vildu láta hengja bjölluna á köttinn, svo að þær gætu heyrt til hans, en enginn í liði músanna fékkst víst til þess. Ég óttast mest, að eins fari með svartbakinn. Það þarf líklega meiri einbeitni og stað- festu en svo til þess að hrista hvert svartbaksegg alla ævitíð þeirra, að það verði gert. En nú ganga ósköpin öll á, svo að hvín í fjöll- unum, að velta á hjólum sitjandi rassi sínum að tína upp flösku- brot og bréfsnepla um landið vítt og breitt. Öðru máli kann að gegna um að keifa á fótum sínum um Esju og Hafnarfjall og aðrar byggð- ir svartbaksins um landið allt, svo skipulega um hálfsmánaðarskeið, að gagn verði að. Sannarlega væri það ekki síður líklegt til að auka og stæla líkamann en hjólasetan. Mér hefur dottið í hug aðferð til að gera skipulagða göngu, til dæm- is í Esju, 1 þessu skyni. Hún er sú að merkja hana í tígla með smá- vörðum eða reisa upp steina með því millibili, að tryggt væri, ef gengið er eftir þessum línum, að ekkert lireiður yrði eftir milli þeirra. Síðan aðrar línur með sama millibili í gagnstæða stefnu. Aðrar línurnar skulu liggja austur og vestur, en hinar út og suður. Skyldu þá vörðurnar út og suður málaðar gular, en hinar er liggja austur og vestur rauðar. Ef þessari aðferð Magnúsar værl beitt, í ævitíð svartbaksins, þá þyrfti ekki annað púður á hann. TÍMINN SUNNUDAGSBLAÐ 417

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.