Tíminn Sunnudagsblað - 16.05.1971, Síða 18

Tíminn Sunnudagsblað - 16.05.1971, Síða 18
— Nei, hefur þú heyrt nokkuð? — Ertu að gera at í mér? Hvorug stúlknanna gaf gaum að Míröndu, sem á leið sinni til dyra rak sig á ryksuguna, þá sauð upp úr. — Þessi ryksuga, sagði hún hátt og skýrt — hefur staðið þarna all- an daginn. Þú hefur tekið hana út úr skáp og sett hana þarna, Kar- óla, viltu gera svo vel og nota hana og ganga svo frá henni á eftir. Ég fer núna, en þú verður að vera búin að taka til í dagstofunni, þeg- ar ég kem aftur. — Herra guð, mamma, ér er bú- in að segja, að ég ætli að gera þetta, geturðu svo ekki hætt þessu rexi. Hún sneri sér aftur að Sue. — Heldurðu, að það geti nú ekki skeð að þeir hringi í dag? Gremjan sauð í Míröndu meðan hún arkaði gegnum bæinn, slitur af því, sem hún hafði lesið og heyrt um barnauppeldi flaug í gegnum huga hennar: Táningarnir eiga í erfiðleikum með sjálfa sig, þeir þarfnast samúðar og skiln- ings, reynið að skilja vandamál þeirra. Hún beygði hjá hverju götuhom inu eftir annað, gekk fram hjá hús- um, sem ljómuðu í vorsólinni, gekk eftir ókunnum götum og strætum. Mig langar til að berja hana, mig langar til að lúberja hana, hugsaði hún. Hárflygsa féll niður fyrir annað auga hennar, hún strauk hárið aftur og varð um leið litið á götuskilti, Jeffersonstræti. Sue átti heima í Jeffersonstræti. Ég þarfnast hjálpar, hugsaði Mír anda, ég þarfnast þess að tala við einhvern, sem getur sagt mér, hvað ég á að gera. Hún horfði á mig eins og hún hataði mig, mín eigin dóttir hatar mig. Míröndu vöknaði uir, augu. Htin kom að húsinu, er Sue átti heima í, en gekk fram hjá. Ég get ekki talað við frú Gord- on, get ekki látið nokkurn mann vita af því, hversu hrapallega mér hefur tekizt sem uppalanda — og sízt frú Gordon. Allt í einu fannst henni hún vera svo afskaplega þreylt, alltof þreytt til bess að hún kæmizt í ein- um áfanva heim aftur. Hún sneri við, vekk að húsinu, þar sem Gord- onsfjölskvldan bjó og hringdi á dyrabjölluna. Hún ætlaði varla að þekltja kon- una, sem lauk upp fyrir henni, sól- brúnt andlit hennar var dauflegt og enginn brosglampi í gráum aug unum, dökkt, grásprengt hár hennar, sem alla jafna var eins vel til haft og væri hún að koma af hárgreiðslustofu, var nú óliðað og óuppsett. — 0, eruð þetta þér, frú Weath- erby. Gjörið svo vel að koma inn. Hún fylgdi gestinum inn í stóra stofu, þar var hátt til lofts. Fallegt heimili, hugsaði Míranda. Einmitt svona hlaut heimili Sue að vera. Frú Gordon hlaut að dvelja löngum stundum í þessari dag- stofu niðursokkin í bækur sínar um sálarfræði. Á borði við legu- bekk var öskubakki með logandi sígarettu, tæmt vínglas stóð þar hjá. — Ég átti hér leið um, sagði Míranda. — Mér þykir vænt um, að þér skylduð líta inn. Fáið yður sæti. Frú Gordon tók glasið af borðinu, en spurði um leið: — Má bjóða yður í glas? Míranda brosti vandræðalega. — Nei, þökk fyrir samt. — Þá bý ég til kaffi handa yð- ur. Frú Gordon setti glas sitt aft- ur á borðið og skenkti í það líkt og annars hugar. Hún fór fram í eldhús og kom að vörmu spori aft- ur með kaffi og smákökur. — Kærar þakkir, sagði Mír- anda, dreypti á kaffinu og velti því fyrir sér, hvað hún ætti að segja við þessa fámæltu og settlegu og nánast ókunnugu konu. — Sue mun vera heima hjá yð ur, sagði frú Gordon. — Já, svaraði Míranda. — Þær eru mikið saman, telp- urnar okkar. Þér eigið alveg ein- staklega indæla dóttur. Míranda hló feimnislega. — Það er einmitt um þetta, sem mig langar til að tala um við yð- ur, um það, að.. . Frú Gordon setti glas sitt frá sér og lagði augun sem snöggvast aft- ur. * Hefur Sue baka yður óþægindi? — Nei, nei, hvernig getið þér látið yður detta annað eins í hug. Sue er yndisleg stúlka, alveg fyrir- myndar vinstúlka fyrir Karólu. Það er bara það, að ég. . . í sann- leika sagt, ég hef þörf fyrir ráð- legginear varðandi Karólu. Míröndu vöknaði um augun. — Þér vitið svo mikið um sálar- fræði og alla skapaða hluti: Það er eins og ég geti ekki... Míranda fann að haka hennar titraði. — ... það er eins og ég geti aldrei hitt á það, sem rétt er. Það er eins og það sé fullkominn fjand- skapur á milli okkar — alltaf nú orðið. Míranda reyndi hvað hún gat tll að vera róleg, reyndi að brosa. — Já, svona er það einmitt, það var sem rödd hennar brysti. — Ó, ég veit ekkert hvað ég á að gera. — Ó, sagði nú frú Gordon líka, og það var líkt og slaknaði á vör- um hennar. — Stundum finnst mér að ég hafi ekki krafta til að halda svona áfram. Ekki krafta til að vera góð móðir. í dag gat ég ekki fengið mér smáblund, fékk ekki frið til þass. Ég er nefnilega vön að fá mér lúr áður en Karóla kem- ur heim úr skólanum. Það er hræðilegt að þurfa að segja það, en ég þoli hana ekki, nema ég hafi getað hvílt mig áður en hún kemur heim. Frú Gordon setti glasið sitt á borðið. i — Ég er orðlaus, sagði hún. — Þetta er auðvitað allt mér að kenna, sagði Míranda aum. — En ég veit hvorki upp né niður. — Er það eitthvað sérstakt, sem Karóla gerir? Eða er það persón- an? — Það er víst persónan, fram- koma hennar, ég ... — Finnst yður eins og hún hati yður? Stundum, eða jafnvel allt- af? — Já, það er nú einmitt lóðið. — Tekur hún því illa ef þér biðjið hana að gera eitthvað, hversu lítið sem það er? Og slugs- ar hún? — Já, til dæmis núna í morg- un ... — Og svo setur hún út á yður, er það ekki? Finnur sér allt til, hvemig þér klæðizt, hvernig þér greiðið yður, matinn, sem þér bú- ið til, hvað eina, sem þér segið? Augu frú Gordon gljáðu einkennilega, hún laut fram. — Henni finnst áníðsla, ef þér biðjið hana einhvers og hún er ruddaleg og frek. — Æ, já, það er nú eitt af því versta, hún ... — Hún eyðir ógrynni af tíma í að dekra við útlit sitt. Hún gagn- 426 T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.