Tíminn Sunnudagsblað - 16.05.1971, Síða 19

Tíminn Sunnudagsblað - 16.05.1971, Síða 19
rýnir vinkonur yðar. Lítur á yður sem fífl og fávita. Lokar yður ger- samlega út úr einkalífi sínu. Græt- ur af minnsta tilefni, er rustaleg við yngri systur sína. Skortir allt skopskyn, þegar hún á sjálf í hlut cg hugðarefni hennar. Getur með engu móti skilið, hvers vegna pabbi hennar giftist yður. Míranda starði á frú Gordon, augu hennar urðu kringlótt af undrun. — Sue, hvíslaði hún. — Er það eins með Sue og yður? — Sumar mæður fá sér miðdeg- isblund, sagði frú Gordon, — en aðrar fá sér í staupinu. Hún horfði á Míröndu með örvæntingarsvip. — Hugsa sér, að þér skulið eiga við þetta að stríða. Ég er meira en hissa. Ef ég hef álitið nokkra konu hamingjusama móður, þá eruð það þér. Þér eruð svo róleg og mild, lítið út eins og . . . ja, eins og mér finnst móðir eigi að líta út. Ég hef tekið eftir yður, þeg ar þér eruð að hlusta á fyrirlestr- ana, og ég hef tekið eftir dóttur yðar, þegar hún kemur hingað, og ég hef hugsað með mér, þarna er þó kona, sem hefur staðið sig og hefur ekki við nein vandamál að stríða. Ég segi yður alveg eins og er, að stundum held ég að ég láti alveg bugast. Táningar, sagði frú Gordon af miklum móði, þeir eru ófreskjur, allir með tölu. — Getur það verið? sagði Mír- anda. — Kannski eru það bara telpurnar okkar sem eru . .. — Nú skal ég segja yður nokk- uð, sagði frú Gordon, — ég hef spurzt fyrir í kyrrþey, og allar kon- ur, sem ég hef talað viðu eru innst inni að bilast á geðsmunum. Ég meina það. Ef komið er inn fyr- ir yzta lagið á nútímakonu með stelputáning, þá er þar að finna manneskju, sem berst við að halda sér frá fremstu nöf móðursýki. En duit skal það fara. Táninga- mæðurnar eru stærsta leynifélag heims. — Ó, sagði Míranda, — hvað ég er fegin að heyra þetta. Ég ætti ekki að vera það, en ég er það nú samt. Ég hélt það væri bara ég, sem væri svona vita ómöguleg, reglulegt skrímsli. — En það er svo margt, sem ég þyrfti að vita meira um, sálarfræði — og allt mögulegt. — Sálarfræði get ég sagt yður eitthvað um, ég hef tekið próf í sálarfræði. Höfundar bóka um sál- arfræði og uppeldisfræði eru ekki mæður. Eða þá að börn þeirra eru uppkomin og þeir hafa gleymt því, hvernig þau voru. Eins og maður gleymir fæðingarhríðum. Sálfræð- ingarnir segja manni, hvað maður á að gera, ef barn skrökvar, væt- ir rúmið á nóttunni, eða hnuplar. En þeir segja manni ekki það, sem maður hefui brýnasta þörf fyrir að vita. Þeir prédika í það óendanlega, að maður eigi að vera skilningsríkur og vorkunnlátur. — Ég veit það, sagði Míranda. — Ég skal segja yður, hver hef- ur mesta þörf fyrir skilning og samúð, það eru mæðurnar — tán- ingamæðurnar. — Ég hef verið að hugsa um að ganga til taugalæknis, sagði Míranda. — En ég hef verið hjá tauga- lækni, sagði frú Gordon. Það var sem andlit hennar herptist saman, minnkaði. — Stundum finnst mér að ég geti alls ekki meira. Það er ekki vegna þess, að mér þyki ekki vænt um Sue. Hún þurrkaði sér um nef- ið. — Ég get bata ekki þolað hana. — Karóla er ekki slæm, sagði Míranda. —- Hún er afskaplega góð við dýr. — Það er Sue líka, hún elskar dýr. — Kannski þetta lagist með tím- anum. — Það hlýtur að gera það fyrr eða síðar, sagði frú Gordon. Hún þurrkaði sér aftur um nefið, rétti úr sér og varð ögn glaðlegri. — Vitið þér hvað ég held? Ég held að telpurnar séu að komast yfir þetta. Ég held að breyting geti orðið þá og þegar. Það er nú í fyrsta lagi það . . . Frú Gordon líktist nú aftur formanni lrvenfé- lagsins, — að sérhver manneskja hefur ekki þrek og seiglu nema að vissu marki. Er það ekki rétt? Ég á við, að það sé hreint og beint óhugsandi að við eigum að líða svona endalaust, það hlýtur að vera á móti guðs og manna lög- um. Það er nú eins og þær verði auðveldari, þegar þær verða sautján ára. — Ó, haldið þér það, sagði Mír- anda með vonarneista í bláum augunum. — Þér haldið að þær breytist eins og sjálfkrafa, þegar verða sautján ára. — Sumar þeirra verða að minnsta kosti manneskjulegri, þeg ar þær komast á þann aldur, sagði frú Gordon. — Og svo er annað, sem sennilega skiptir mestu máli, afstaða þeirra til pilta breytist. Ég er nærri viss um, að ef þeim verður boðið á skólaballið í næstu viku, verður þeim við eins og þeim hafi verið gefinn allur heimurinn. — Haldið þér það í raun og veru? spurði Míranda. — Ó, hvað ég vildi að þeim yrði boðið. — Við getum ekki annað gert en vonað. sagði frú Gordon. Konurnar hovfðu með gagn- kvæmri samúð hvor á aðra. — Ég verð víst að koma mér heim, sagði Míranda. — Ég er hrædd um að kakan mín sé brennd, en það gerir ekkert, ég er svo glöð yfir því, að ég skvldi koma hingað og tala við yður. Frú Gordon brosti angurvær. — Ég býð vður velkomna í leynifélagið okkar. Míröndu var léttara um hjartað á heimleiðinni. Ég er ekkert öðru vísi en aðrar mæður, hugsaði hún. Ég er bara rétt eins og gerist og gengur. Sue var farin. Það var búið að ryksuga og þurrka af í dagstof- unni, ómur barst af söng Karólu. Míranda hlustaði og ætlaði varla að trúa sínum eigin eyrum. Hún heyrði létt fótatak í ganginum. — Mamma, hvað heldurðu að hafi gerzt? Drengirnir hringdu. Við Sue emm boðnar á skólaball- ið. — Ó, Karóla, mikið er ég glöð yfir þessu, sagði Míranda. Hún teygði armana móti Karólu og dóttir hennar þrýsti sér upp að henni frá sér numin. — John Thorpe bauð mér. Hann ber langt af öllum strákunum í skólanum. Mamma, viltu lána mér skartgripina þína með rínarstein- unum? — Alveg sjálfsagt, sagði Mír- anda. — Hvað ég vildi mér segja, ég er búin að ryksuga og laga til. Er ekki orðið þokkalegt hérna? — Jú, alveg ljómandi, sagði Míranda, þakklát fyrir gæzku for- sjónarinnar. — Ég tók kökuna út úr bakara- ofninum, mér sýndist hún vera bú- in. Hvar hefurðu eiginlega verið? Pollý var að leita að þér, hún hef- TÍM INN — SUNNUDAGSBLAÐ 427

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.