Tíminn Sunnudagsblað - 04.07.1971, Blaðsíða 14

Tíminn Sunnudagsblað - 04.07.1971, Blaðsíða 14
einkunn lamba undan hverjum hrút fyrir sig. Sá útreikningur sýndi, að meðaleinkunn alira lamba undan heimahrútum var 1,65, sem verður að teljast mjög lágt. Á sumum bæjum kom jafn- vel fyrir, að heimahrútar fengju núll að meðalali. En lömbin und- an Hólahrútunum á þessum bæj- um fengu aftur á móti meðaleink- unn 3,35, það er að segja tvöfalt hærri en lömb heimahrútanna. — En gerðuð þið ekki saman- burð á vænleikanum? — Jú. Fallþungi lambanna und- an Hólahrútunum var líka tekinn til samanburðar við afkvæmi heimahrúta, Þar kom fram, að lömbin undan Hólahrútunum voru sízt lakari. Víst má segja, að það hafi þurft íwkkurn kjark til þess að fara út í þessa rannsókn vegna þess, að verulegur hluti alhvítu hrútanna, sem nothæfir voru á Hólum þetta haust, voru seldir, en beztu hrút- unum haldið eftir heima. Seldu hrútarnir voru þannig lítið valdir, að öðru leyti en litnum. Margir bændanna, sem fengu þá, voru vissir um að þeir myndu spilla fallþunga, og ef engin rann- sókn hefði verið gerð, hefði sú skoðun vafalítið orðið almenn eft- ir á. Bændurnir dæmdu hrútana eftir útlitinu, en ekki eftir afkvæmunum. Mér fannst, aftur á móti, nauðsynlegt, að fá sem bezt- an mælikvarða á bað. hvernig þess ir hrútar reyndust út á við, sam- an borið við hrúta bændanna sjálfra. Ég taldi mig þurfa að vita sem gleggst, hvort Hólahrútarnir spilltu fjárstofni bændanna í kring, hvort þeir héldu honum óbreyttum eða bættu hann. Án þeirrar vitneskju var ábyrgðar- hluti að dreifa Hólafénu í stórum stfl út um nálægar sve. ír. Rannsóknin á þersum hrúium gaf til kynna, að Hó’aféð heíði sízt lakara eðli til vænleika Iieidur en fé á svæðinu í krin g. Það virð- ist þess vegna óhætt að mæla með því, að beztu alhvítu hrútarnir af Hólastofni séu notaðir tii kynbóta. Þeir eiga, samkvæmt þessari reynslu, að stórbæia lit og halda að minnsta kosti vel í horfir.u með vænleika. Við höfum ekki haft tadcifæri til þess að rannsaka alhvitu fjár- stofnana heima á búimum á þenn- an hátt, enn sem komið er. En það er ástæða til þess að benda á, að alhvítu stofnarnir á Hvann- eyri og Reykhólum hafa bæði mjög gotr litarfar og framúrskar- andi ullarfar með hliðsjón af loð- sútun á gærum. Stofnarnir á þess- um búum standa jafnvel Hólafénu framar að því leyti. — Hvernig fóruð þið að því að dæma gærurnar með hliðsjón af gæðum þeirra til loðsútunar? — Við höfum mörg undanfarin haust tekið gærur af sláturlömb- um frá Reykhólum og Hvanneyri og merkt hverja gæru með núm- eri strax eftir slátrun. Þessi númer eru höggvin í gærurnar með gaddastöfum og það er hægi að lesa úr þeim eftir að gærurnar eru sútaðar. Við höfðum lagt áherzlu á það undanfarin ár að fylgjast sem allra bezt með því, hvernig okkar eigið mat á gærum á lömbunum lifandi stæðist, þegar búið er að loðsúta gæruna. Með þessum merkingum hefur okkur tekizt að sýna fram á, að þær gærur, sem við teljum beztar á lifandi lömbum, eru ein- miit eftirsóttustu fæ urnar ti! loð- sútunar. Haustið 1970 gerðum við tilraun til að fá allar gæ.'ur af slátui- lömbum sérmerktar við slátrun og sendar til sútunar með skilagrein- um, þannig að við gætum metið hverja gæru að sútu.i lokinni. Þetta tóksi, að því undanskildu þó, að við urðum fyrir áfalli með eina sendinguna. En við gátum dæmt gærur af lömbum undan öllum þeim hrútum, sem við höfum í notkun á búunum. Sá dómur gaf til kynna, eins og kannski mátti búast við, að gær- urnar voru verulega misjafnar eft- ir því, hvert faðerni lambanna hafði verið. Þetta þýðir með öðr- um orðum, að það getur verið sút- unariðnaði á íslandi mikið hags- munamál, að bændur leggi sig fram um notkun á þeim hrútum, sem gefa beztar gærur. — Hvernig bregzt iðnaðurinn við þessum nýju möguleikum? — Það er óhætt að segja, að hjá iðnaðinum sé áhugi allverulegur. Og ég vil sérstaklega geta þess, að tvær sútunarverksmiðjur á land- inu, það er að segja Sútunarverk- smiðja Sláiurfélags Suðurlands í Reykjavík og s útunarverksmiðjan Loðskinn h.f. á Sauðárkróki hafa veitt okkur margháttaða og ómet- anlega fyrirgreiðslu í sambandi við þessar rannsóknir. Þess er líka rétt að geta, að verksmiðjan á Sauðárkróki keypti tíu lambhrútá af hvíta sláturfénu á Hólum haust- ið 1969 og lánaði þá bændum í Skagafirði í því skyni að hvetja til framleiðslu á vel hvítum gærum. Þetta sýnir, að áhugi verksmiðj- anna á góðu hráefni er fyrir hendi. Aftur á móti hefur gengið erfið- lega að finna hagkvæmt fyrir- komulag á því, hvernig kaupend- ur gæranna, sem að mestu leyti eru sútunarverksmiðiurnar, geta mismunað bændum í gæruverði eftir því, hvort þeir framleiða góða vöru eða lélega. Þess má geia, að Kaupfélag Sval- barðseyrar, sem er hreint bænda- kaupfélag, tók upp þá nýbreytni haustið 1939, að litarflokka hvítu lömbin frá hverjum bónda í slát- urréttinni. Mislitar klemmur voru settar í lömbin, þar sem þau stóðu í réttinni, og var einn litur á klemmum fyrir hvern ullarlit: Al- hvítt, lítið gult og mikið gult. Svo voru gærurnar dregnar í sundur eftir slátrun ög hver flokkur salt- aður sér. Kaupfélagið greiddi síðan bænd- um verðuppbót á betri hluta gær- anna og hæst fyrir þær alhvítu. Þetta fyrirkomulag vakti mjög mikla athygli meðal bænda á fé- lagssvæði kaupfélagsins, og áhugi á ræktun alhvíts fjár óx mjög mikið. — Þetta hefur sem sagt verið vel þokkað? — Ég er ekki nógu kunnugur því, hvernig kaupendur gæranna brugðust við flokkuninni, eða hvað umframverð þeir töldu sig geta greitt fyrir bezta flokkinn. En ég átti nú fyrir fáum dögum tal við Valtý Kristjánsson, bónda í Nesi og kaupfélagsstjóra á Sval- barðseyri. Hann sagði mér, að þeir héldu ótrauðir áfram þessari flokk un. Þeir gerðu sér fulla grein fyr- ir því, að alhvítu gærumar væru miklu betri vara, en þær rauðgulu, og það hlyti að vera rétt stefna í framleiðslu að auka magn þeirr- ar vöru, sem eftirsóttust væri. Þótt þetta, sem hér hefur verið lýst, sé ekki þáttur í rannsóknar- starfseminni, þá er það beln af- leiðing hennar. Rannsóknirnar höfðu sýnt aö auðvelt var að dæma gærugæði lifandi lamba. Og þegar Kaupfélag Svalbarðseyrar hófst handa um gærumatið, var fenginn til þess Sigtryggur Vagnsson, bóndi í 590 TlMINN - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.