Tíminn Sunnudagsblað - 30.12.1973, Blaðsíða 4

Tíminn Sunnudagsblað - 30.12.1973, Blaðsíða 4
Sigurður Björnsson, Kviskerjum: Gluggað í gamla bók (Sl. vetur þurfti ég að dvelja á spitala um alllangan tima, en með hjálp góðs manns átti ég þess kost aö fá rit, sem ég hafði áhuga fyrir til lestrar, og var það raunar ævi ákveðins manns, sem ég hafði hug á að kynna mér. Er það skemmst frá aö segja að timinn leið fljótt við þann lestur, og dettur mér i hug að reyna að gefa öörum örlitla hugmynd um hvaö það var, sem stytti svo vel fyrir mér timann. S.B.) Eitt er það rit, sem þyrfti að vera til i hverju sýslubókasafni og raunar ætti að vera i hverju hreppsbókasafni. Það er Tiöindi frá alþingi, en svo voru fundargerðarbækur alþingis nefndar frá þvi að það var endurreist og þar til það fékk löggjafarréttindi, en árið 1875 var titlinum breytt i Alþingistiðindi. Hvergi er hægt aö kynnast þessum timum eins vel og með þvi að lesa þetta rit, þar kemur fjölmargt fram um ástand einstakra byggðarlaga, fyrir utan það, að þar er glögg mynd af þvi, sem i þjóðmálunum gerðist. Ekki má heldur gleyma þvi að þar gefa þingmenn sönnustu lýsingu á sjálfum sér, sem fengin verður, með viðhorfi sinu til mála. Væri þvi þörf á að séð yrði til þess að almenningur geti átt kost á að lesa þetta rit, en nú mun hluti þess ófáanlegur og i mjög fárra höndum. Sitthvað var með öðrum hætti á fyrstu áratugum hins endurreista al- þingis en maður á von á. Menn komu með,,uppástungur” en ekki „tillögur” og margar „bænarskrárnar” hefðu ekki verið nefndar þvi nafni nú og menn stóðu upp fyrir málum við at- kvæðagreiðslu, en oft var þó notað nafnakall. Kostnaðinn af þinginu báru jarðeigendur, greiddu ákveðna prósentu af jarðarafgjöldum. Ekki voru allir ánægðir með þetta fyrir- komulag, vegna þess að reiknings- kunnátta var ekki alls staðar á háu stigi og áttu þvi sumir erfitt með að vita hvað þeim bar að borga. Þess vegna ( og e.t.v. af fleiri ástæðum) var lagt til á þinginu 1861 að visst gjald yrði lagt á hvert jarðar hundrað. Eflaust hafa sumir jarðeigendur séð ofsjónum yfir þeim greiðslum, sem þeir urðu að inna af hendi, og talið að meiri sparnaðar mætti gæta en gert Sigurður Björnsson var t.d. kom ein bænarskrá til þingsins 1861 um að hætt yrði að prenta ræður þingmanna, og var hún nokkuð rædd. Ekki fékk það mál góðar undirtektir, og var þingið einhuga um að þing- ræður yrðu áfram prentaðar. Þó má vera að til þessa megi rekja, að hætt var um tima að reyna að hafa ræðurnar orðréttar. en aðeins efni þeirra rakið. Til aö þóknast jarðeigendum, flutti Halldór Kr. Friðriksson „uppástungu” á þinginu 1861, um að þeir sem áttu hundrað hundraða i jörðum, skyldu hafa rétt til setu á alþingi á sjálfs sins kostnað. Ekki hlaut þessi tillaga mikinn byr á þinginu, og dugði litt þó frummælandi benti á brezku lávarðar- deildina sem hliðstæðu. Jón Hjaltalin landlæknir taldi þá deild vera Bretum til litils sóma og mundi frummælandi ekki hafa óskað eftir slikri deild, ef hann hefði kynnzt henni. Stefán i Arnanesi kvað vitið ekki alltaf fylgja efnunum og mundi óvist, að þeir sem flest jarðarhundruðin ættu yrðu gagn- legir landinu á þingi. Lauk þessu svo að „uppa'stungan” var dregin til baka. Skal nú vikið að nokkrum málum sem rædd voru á alþingi árið 1861.: Stjórnin lagði fyrir þingið frumvarp að hjúalögum, og mun hafa ætlazt til að þau yrðu nokkur réttarbót. Nokkuð lögðu menn misjafnt til þessa máls og töldu sumir að.réttur húsbændanna þyrfti að vera sem bezt tryggður, en aðrir voru sammála Stefáni Eirikssyni (þingmanni A.-Skafteilinga) um að hjú ætti jafnan erfiðara með að ná rétti sinum en húsbændur, og þyrftu þvi fremurað vanda lögin hvað þau snerti en þá, svo að þau gætu i raun notið þess réttar, sem löggjafinn ætlaðist til. Viða að komu bænarskrár, m.a. nokkrar um að reynt yrði að takmarka fiskveiðar útlendinga við landið, og vegna þess skoraði þingið á stjórnina að reyna að koma i veg fyrir að útlend- ingar veiddu nær landinu en eina milu danska frá ströndum þess, og hvergi inni á flóum og fjörðum. Umræður i þessu máli voru mjög fróðlegar. Það kemur t.d. fram að Frakkar áttu meginhlutann af fiskiflotanum, sem við landið var. Stefán i Arnanesi, sagði að eftir að franski fiskiflotinn kæmi upp að ströndinni i mars, veiddist ekki hákarl við suðaustur ströndina, þvi hann legðist á niðurburðinn frá skútunum, en áður fyrr hefði hákarls- lýsið oft verið drjúgt innlegg hjá bændum i A.-Skaftafellssýslu. Ekki fara sögur af þvi hversu skelegg stjórnin var i þessu máli, en úrbætur fengust engar. Nokkrar bænarskrár komu um lög- gildingu hafna, þ.á.m. ein úr A,- Skaftafellssýslu og var hún um að Papós yrði löggiltur. Stefán Eiriksson lagði þá bænarskrá fram 9. júli, og var henni vel tekið. Þegar hún kom til annarar umræðu 24. s.m., gat Stefán sagt þær fréttir að honum hefði borizt bréf heiman úr héraði, þar sem sagt var að Austurskaftfellingar hefðu fengið kaupmann til að sigla á Papós, og væri sagt að hann væri úr Hafnar- firði og héti Jóhnsen. Siðar hefðu þeir fengið norskt timburskip til að sigla þangað og keypt upp farminn. Þingið mælti með iöggildingu flestra hafnanna, en ekki var það einróma nema með Papós. Þó mæði- og garnaveiki væru óþektar þá. höfðu bændur áhyggjur af heilsusauðkindarinnar rétt eins og nú. A-Skaftfellingar sendu bænaskrá um það að kláðasjúku fék yrði slátrað, eða Flutt á bls. 758 740 Sunnudagsblað Tímans

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.