Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 30.12.1973, Qupperneq 10

Tíminn Sunnudagsblað - 30.12.1973, Qupperneq 10
Á einum stað á leiðinni misstu þau einn hestinn niður i pytt og ætluðu þau aldrei að geta náð honum upp úr aftur, en það hafðist á endanum, eftir mikið erfiði. Ekki kvaðst Petrina hafa verið vel búin til heiðarferðar i stórhriðar veðri og ófærð. Hún reið i söðli eins og allar konur á þeim tima. Hún var i skósiðu peysupilsi og með skinnskó á fótunum, en mestan hluta leiðarinnar þennan dag gekk hún og rak féð. Þeim mundi veitast örðugt stássmeyjum nútimans, að kafa ófærð i 15 klukkutima og reka hálf uppgefið fé, sem það hlýtur að hafa verið orðið. Eg hefi oft farið þessa leið, á hestum og einu sinni fór ég ásamt öðrum manni þessa leið að haustinu. Við vorum með tvo til reiðar og fórum beinustu leiö og héldum vel áfram og vorum átta klukkutima á leiðinni, heimanað frá Kolugili að Réttarvatni, sem er rétt hjá Arnarvatni. Heyrt hefi ég haft eftir samferða- mönnum Petrinar i þessari svaðilför að hún hafi ekki gefið þeim eftir karl- mönnunum að harðfengi og dugnaði og áræðni, enda svndi hún það siðar i sinni erfiðu lifsbaráttu, að hún var hverjum vanda vaxin og lagði aidrei árar i bát þó að á móti blési. Seint um kvöldið komust þau með féð i sæluhúsið, sem þá stóð við Arnar- vatn hið stóra og Hliðskjálf nefndist, nú standa aðeins rústir þessa sæluhúss eftir, en það er nú, árið 1972, að mestu fallið inn. Þau höfðu hestana inni i kofanum um nóttina. Voru þau öll mjög þrekuð eftir ferðina. Uppi i kofanum var smá ioft, sem hægt var aðsofa á, og þangað fóru þau og lögðu sig til svefns, en litið gátu þau sofið um nóttina fyrir kulda. Þau höföu litið sem ekkert ofan á sér og sá litli hiti sem var i kofanum var frá hestunum. Var þetta mjög ónota- leg nótt fyrir hina þrekuðu ferðamenn. Morguninn eftir var veður farið að ganga niður og fóru þau timanlega af stað. Leiðin frá Hliðskjálf liggur suður yfir Arnarvatnshæðir. Snjórinn fór heldur minnkandi eftir þvi sem sunnar dró. I ieitarmannakofa i Álftarkrók, stutt frá Norðlingafljóti áðu þau, og þar gátu þau hitað sér kaffi og hresst sig vel. Frá Álftar- króksskála lá leið þeirra með féð niður hæðif og siðan með Norðlingafljóti sem leið liggur og gekk furðu vel, enda varð snjórinn minni eftir þvi sem nær dró byggð og i byggðum Borgarfjarðar var snjólaust. Hið þrekaða ferðafólk renndi hýru auga til hinna blómlegu byggða, sem nú opnuðust þeim og það hefur ábyggi- lega getað tekið undir þessar vel kveðnu visur eftir Steinbjörn bróður Petrinar, er hann leit Borgarfjarðar- hérað eftir langan aðskilnað. Birtast minnar bernskulönd bjart er um hæð og leitin falla eins og hanz,ki að hönd heiörikjan og sveitin. Blikar sól umBorgarfjörð birtast fagrar sýnir fjallagnýpur, gil og skörð gamlir vinir minir Rekstrarfólk Borgfirðinga kom með féö niður að Fljótstungu og þar var gist við góðan beina þeirra sæmdar- hjóna sem Fljótstungu byggðu þá, þeirra Guðrúnar Pétursdóttur og Jóns Pálssonar. En þau höfðu oft margan þreyttan ferðalanginn hýst. Mikið var ferðafólkið hvildinni fegið og þó þau hafi ekki hugsað út i það, hversu oft hurð hefur skollið nærri hælum að ekki fór verr og þau sluppu áfallalaust úr þessu ferðalagi, þá munum við, sem þekkjum þessa leið milli Húnavatnssýslu og Borgar- fjarðarhéraðs vita vel, að ekki má mikið út af bera, svo allt fari vel og hlýtur þetta ferðalag að hafa verið þrekraun hin mesta fyrir þá,sem voru i þvi þátttakendur. Eftir góða nótt i Fljótstungu og þeginn beina þar að morgni var féð, sem að norðan kom, rekið suður yfir Hvitá um Barnafossbrú og sleppt i Stóra-Áss land. Petrina var Jósef Eliassyni samferða heim til sin. Þetta var Petrinar fyrsta alvarlega þolraun i lifinu, en ekki sú siðasta. En hún hefur vfirstigið þær allar og getur nú eftir langt ævistarf litið yfir farinn veg sem sigurvegari i þolraun lifsins. Petrina giftist árið 1921 Albert Gunnlaugssyni og settu þau saman bú á Akranesi og bjuggu þar allan sinn búskap. Þau Albert og Petrina eignuðust 9 börn og eru afkomendur þeirra orðnir margir. Albert maður Petrinar andaðist árið 1935, 41 árs að aldri og stóð þá Petrina uppi með börn sin og varð hún ein að vinna fyrir sinum stóra barnahópi og án allrar hjálpar. Kom hún börnum sinum áfram unz eldri börnin fóru að koma henni til hjálpar. En á þessum árum var erfitt með atvinnu og lifsbjargar möguleika alla. Petrina býr nú á Akranesi, i eigin húsi.sem hún á með yngsta syni sinum, er býr þar einnig. Agnar Gunnlaugsson. Sunnudagsblað Timans Yorið og söngfuglinn 1 Sumarrós ég sé þig aftur, i sólin roðar vangann smá, 1 fuglinn syngur frelsisljóðin, i faðmar glaður loftin blá. i Ljúfi söngva vinur sæti. Þegar allt er grænt og gróiö i i seztu enn á vegginn minn. og glaðan leikur söngur þinn. ( Berðu yfir sæinn sumar þá er lif i litla dalnum sumarljós og friðinn þinn. við iága bæjarkofann minn. ! Þegar leikur létt um vanga Guð þér gefi sólar sumar. ljúfur blærinn þýður, kær. sælt svo uni börnin þin, 1 vakir aftur vonin bjarta, svo þau aftur svngja megi 1 1 vorsins gjalla ljóðin skær. sólar riku ljóðin sin. 1 J.A. i 746

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.