Morgunblaðið - 24.04.2004, Side 21
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2004 21
Fermingarbörn frá Akureyrarkirkju
og Lögmannshlíð 1954
Ágætu fermingarsystkin!
Munið að staðfesta þátttöku ykkar fyrir 1. maí.
Hittumst heil.
Nefndin.
EININGAR-
IÐJUFÉLAGAR!
Aðalfundur Einingar-Iðju verður haldinn
þriðjudaginn 4. maí 2004 kl. 20.00 í salnum á
4. hæð Alþýðuhússins á Akureyri
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Ársreikningar liggja frammi á skrifstofum félagsins.
Félagar fjölmennið - Kaffiveitingar
Stjórnin.
„ÞAÐ er alveg dásamlega gott,“
sagði Víkingur Björnsson og vitnar
þar í kakó Arngríms Kristjánssonar
múrara, en Aggi eins og hann er
kallaður hefur til margra ára boðið
Víkingi og félögum hans upp á kakó,
kleinur og súkkulaði að lokinni
göngu yfir gömlu brýrnar á Eyja-
fjarðará á Sumardaginn fyrsta. „Við
göngum þarna nokkur alla daga árs-
ins, en þetta er eini dagurinn þar
sem veitingar eru í boði,“ sagði Vík-
ingur. „Þess vegna þykir öllum sér-
staklega gaman í gönguferðinni
þann daginn.“
Arngrímur sagði það góðan sið að
fagna sumri með kakói og kleinum.
„Ég hef mjög gaman af þessu,
göngumenn eru þakklátir og við eig-
um saman góða stund,“ sagði Arn-
grímur. Í hópnum eru 7-8 menn, sem
mæta upp á hvern dag kl. 10 og
ganga saman 5 kílómetra leið yfir
gömlu brýrnar. „Ég hjóla,“ sagði
Arngrímur, hjólar 16 kílómetra
hring en var á sínum tíma einn fé-
laga í gönguhópnum. „Maður verður
óneitanlega dálítið vinsæll,“ sagði
Arngrímur og bætti við að menn
fylgdust vel með almanakinu og
sumarkomunni og hlökkuðu greini-
lega til kakódrykkjunnar.
Ljósmynd/Myndrún/Rúnar Þór
Arngrímur Kristjánsson, Aggi, hellir í glasið hjá Hreini Óskarssyni, en aðrir félagar í gönguhópnum fylgjast með;
Víkingur Björnsson, Sæbjörn Jónsson, Gunnar Lórenzson, Anna María Jóhannsdóttir og Jóhann Helgason.
Kakóið hans Agga dásamlega gott
Sameiginleg kynning háskóla |
Allir háskólar landsins hafa tekið sig
saman um að kynna námsframboð á
háskólastigi á Íslandi. Kynningar
hafa farið fram í hverjum landshluta
og nú er komið að Norðurlandi, en
þetta er í fyrsta skipti sem slík
kynning er haldin á Akureyri. Hún
verður í húsnæði Háskólans á Ak-
ureyri, Sólborg, í dag, laugardaginn
24. apríl og stendur hún frá 13:00 til
16:00. Námsframboð íslenskra há-
skóla verður kynnt og
fulltrúar frá háskólunum sitja fyr-
ir svörum um staðarnám og fjarnám.
Einnig er hægt að fá upplýsingar
um háskólana á sameiginlegri
heimasíðu þeirra, www.haskolar.is
Jón segir frá| Jón Laxdal Hall-
dórsson mun segja frá verkum sín-
um og sýningunni í Kunstraum
Wohnraum, Ásabyggð 2 á Akureyri
á morgun, sunnudaginn 25. apríl, frá
kl. 11 til 13.
Þetta er jafnframt síðasti sýning-
ardagur og eru allir velkomnir.
Jón hefur haldið yfir 16 einkasýn-
ingar, þá fyrstu í Rauða húsinu 1982.
Hann var bæjarlistamaður Akureyr-
ar 1993-1994.
ALÞJÓÐLEGT vélsleðamót
(WSA mót) verður í Ólafsfirði í
dag, laugardag kl. 14. Þetta er
jafnframt lokaumferð Íslands-
mótsins í snjókrossi og ráðast
þar úrslit mótsins.
Fjórir erlendir keppendur
taka þátt í mótinu og má búast
við miklum tilþrifum. Vélsleða-
mót í Ólafsfirði hafa jafnan vak-
ið mikla athygli enda oft farið
fram á götum bæjarins. Nú
verður keppt á ósunum vestan
Ólafsfjarðarár, en þar er að-
staða sem Vélsleðafélag Ólafs-
fjarðar hefur komið sér upp
bæði fyrir hjól og sleða.
Unnið var við það í gær að
aka snjó á fjölda tækja að móts-
stað og byggja upp brautina.
Alþjóðlegt
vélsleða-
mót
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111