Morgunblaðið - 24.04.2004, Síða 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2004 29
© 2003 Trimble Navigation Limited. All rights reserved. All other trademarks are the property of their respective owners.
WWW.TRIMBLE.COM
Trimble lausnir í notkun um allt land – í öllum verkum.Trimble lausnir í notkun um allt land – í öllum verkum.
BORGARSTJÓRINN í Reykjavík,
Þórólfur Árnason, keypti fyrstu að-
göngumiðana í netsölu á nýrri
heimasíðu Borgarleikhússins og
opnaði þar með síðuna formlega á
dögunum.
Borgarleikhúsið er þar með fyrst
leikhúsanna til að opna fyrir netsölu
og mun það létta mörgum bið við
miðasölu leikhússins, sem verið hef-
ur undir miklu álagi í allan vetur, að
sögn Sigrúnar Valbergsdóttur kynn-
ingarstjóra LR.
„Kerfið annar fjölþættu framboði
á viðburðum í hverri viku í Borgar-
leikhúsinu og er því viðamikið í upp-
setningu, en einfalt í notkun. Það
geta verið 10 til 16 viðburðir í hús-
inu – á þrem mismunandi leiksviðum
– á einni viku: margar sýningar á
sama leikriti, tónleikar, danssýn-
ingar og svo framvegis.
Einnig hefur símkerfi hússins ver-
ið endurnýjað, en eldra kerfið ann-
aði ekki álaginu. Hver vikan af ann-
arri hefur verið metvika í aðsókn. Í
síðustu viku komu 5.500 gestir í hús-
ið. Þá voru 16 viðburðir í húsinu frá
þriðjudegi til sunnudagskvölds á
þremur leiksviðum,“ segir Sigrún.
Leikhúsmiðar
til sölu á Netinu
Morgunblaðið/Jim Smart
Guðjón Pedersen leikhússtjóri og Þórólfur Árnason opna nýju heimasíðuna.
Í TILEFNI af sjötugsafmæli Arn-
órs Hannibalssonar prófessors, hinn
24. mars sl., gengst Heimspekistofn-
un fyrir málþingi
um fagurfræði, í
Odda, stofu 101,
kl. 10–16 í dag.
Fagurfræðin var
önnur helsta
kennslugrein
Arnórs í heim-
speki, ásamt
þekkingarfræði.
Gunnar Harð-
arson nefnir er-
indi sitt: Eftirlík-
ing, tjáning og form: Um fagurfræði
nokkurra íslenskra listmálara.
Gunnar J. Árnason fjallar um fag-
urfræði: Heimspekileg samræða við
samtímalist. Sigríður Þorgeirsdóttir
nefnir erindi sitt list, fæðing og
dauði. Vilhjálmur Árnason fjallar um
fagurfræði tilvistarinnar og Róbert
H. Haraldsson nefnir erindi sitt Feg-
urðin ein? Fundarstjóri er Salvör
Nordal.
Málþing um
fagurfræði
Arnór
Hannibalsson
SÍÐUSTU sýningar á leikritinu
Tenórnum, sem sýnt er í Iðnó,
verða næstu tvo sunnudaga, 24.
apríl og 2. maí. Tenórinn var frum-
sýndur í Iðnó í byrjun október og
fjallar um tenórsöngvara sem hefur
verið langdvölum í útlöndum og er
að fara að halda tónleika. Leikritið
gerist á einum og hálfum klukku-
tíma í búningsherbergi ónefnds
tónlistarhúss þar sem söngvarinn
og undirleikari hans eru að búa sig
undir tónleikana.
Leikstjóri sýningarinnar er Odd-
ur Bjarni Þorkelsson. Höfundur
leikritsins, Guðmundur Ólafsson,
leikur og syngur Tenórsöngvarann,
undirleikari hans er Sigursveinn
Kr. Magnússon og Sigrún Edda
Björnsdóttir ljær eiginkonu söngv-
arans rödd sína.
Tenórinn af
fjölunum
♦♦♦
♦♦♦
Á VEGUM Tónlistarskólans í
Reykjavík verða minningartónleikar í
Íslensku óperunni kl. 20 á þriðjudags-
kvöld. Tónleikarnir eru til að minnast
Hermínu S. Kristjánsson sem hefði
orðið eitthundrað ára 16. mars sl og
Rögnvaldar Sigurjónssonar sem lést
28. febrúar á þessu ári.
Hermína S. Kristjánsson hóf störf
við Tónlistarskólann í Reykjavík árið
1948. Áður hafði hún stundað nám í
píanóleik og starfað sem píanókenn-
ari í Kaupmannahöfn og Hamborg.
Hermína var brautryðjandi í mennt-
un píanókennara hér á landi og var
einn aðalhvatamaður þess að píanó-
kennaradeild var sett á stofn við Tón-
listarskólann í Reykjavík árið 1963.
Hermína veitti deildinni forstöðu
fyrstu fimmtán árin, allt þar til hún
lét af störfum fyrir aldurs sakir 1978.
Rögnvaldur Sigurjónsson lauk
burtfararprófi í píanóleik frá Tónlist-
arskólanum í Reykjavík árið 1936.
Hann var í hópi fremstu listamanna
þjóðarinnar og einn af aðal píanó-
kennurum Tónlistarskólans um fjöru-
tíu ára skeið.
Snorri S. Birgisson minnist Herm-
ínu og Halldór Haraldsson minnist
Rögnvaldar. Nemendur skólans leika
verk eftir Bach, Bartók og fleiri.
Rögnvaldur
Sigurjónsson
Hermína St.
Kristjánsson
Minningar-
tónleikar