Morgunblaðið - 26.04.2004, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 26.04.2004, Blaðsíða 19
llum ðar um- orðið á atvinnu- hafa verið eru vel með um- ð einka- árfesting- ri fur fagn- nkarnir ar já- ir er- est- að laða l fjárfest- m orðið kjölfar nist af og víð- reytingar mikilvægt d ríkisins meðan stu á al- markaði bankarnir n í ná- grannaríkjunum og því er töluvert í að tryggt hafi verið algert við- skiptafrelsi á þessum mikilvæga markaði fyrir fjármálastarfsemi. Á sama tíma og jákvæðum breyt- ingum er fagnað er fjármálafyr- irtækjunum hins vegar rétt að benda á mikilvæg starfsskilyrði sem brýnt er að bæta og svara gagnrýni sem þeir telja ósann- gjarna. Bankar styðja skýrar reglur Í leiðaranum er rætt um þörf áframhaldandi umbóta á markaði og forsvarsmenn atvinnulífs hvatt- ir til þátttöku í þeirri þróun. Í því efni skal áréttað að samtök banka og verðbréfafyrirtækja hafa átt gott samstarf við stjórnvöld um umbætur á fjármálamarkaði. Má m.a. nefna eftirfarandi:  Samtök fjármálafyrirtækja hafa átt fulltrúa í opinberum nefndum sem samið hafa ný lög um fjármálafyrirtæki, um verð- bréfasjóði og fjárfestingarsjóði og verðbréfaviðskipti og tekið virkan þátt í samningu þeirra laga.  Fjármálafyrirtækin hafa því verið í forystu við að innleiða bætta stjórnunarhætti m.a. með stofnun sérstakra starfa regluvarða, skip- un endurskoðunarnefnda innan bankaráða og setningu ítarlegra innri starfsreglna til að forðast hagsmunaárekstur, tryggja rétta upplýsingagjöf og efla allt eftirlit.  Fjármálafyrirtækin hafa lagt sig fram um að innleiða hratt nýjar reglur á sviði fjármálaþjónustu til að tryggja sem mest öryggi í fjár- málaþjónustu. Forsvarsmenn bankanna hafa því stutt ötullega alla viðleitni til að bæta starfsum- hverfið eins og hvatt er til í leið- aranum. Bætt upplýsingagjöf og skilvirkt eftirlit Enginn ein atvinnugrein á jafn- mikið undir því að traust lagaum- hverfi gildi um atvinnustarfsemi og skilvirk framkvæmd eftirlits sé til staðar og fjármálaþjónustan, enda byggist lánastarfsemi og önn- ur fjármálaþjónusta alfarið á því að samningar séu virtir og hægt sé með skilvirkum hætti að tryggja efndir skuldbindingar á markaði að lögum. Atvinnugreinin hefur jafnframt mikilla hagsmuna af því að upplýsingagjöf fyrirtækja, reikningsskil og eftirlit með þeim sé skilvirk enda byggja fjármála- fyrirtækin stærstu viðskiptalegu ákvarðanir sínar á því að upplýs- ingar séu traustar. Samtök banka bæði hér á landi og í Evrópu hafa því tekið þátt í umræðu og umbót- um í upplýsingagjöf og eftirliti inn- an fyrirtækja. Af ofangreindu má sjá að bank- arnir hafa tekið af mikilli ábyrgð öflugan þátt í jákvæðum umbótum á markaði og hafa hagsmuni af upplýstri og sanngjarnri opinberri umræðu um framkvæmd þeirra umbóta á markaði. Áframhaldandi umbætur í frjálsræðisátt, m.a. á íbúðalánamarkaði, mun styrkja fjármálaþjónustu hér á landi og bæta heildarþjónustu við við- skiptavini fjármálafyrirtækjanna. Engum vafa er undirorpið að sam- keppnishæf starfsskilyrði banka á Íslandi eru í allra þágu. starfsumhverfi lra ’Á meðan yfir 50% affjármálaþjónustu á almennum viðskipta- bankamarkaði eru í höndum ríkisins búa bankarnir við lakari starfsskilyrði en í ná- grannaríkjunum og því er töluvert í að tryggt hafi verið al- gert viðskiptafrelsi á þessum mikilvæga markaði fyrir fjár- málastarfsemi. ‘ Höfundur er bankastjóri Landsbanka Ís- lands og fráfarandi formaður Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja (SBV). Morgunblaðið/Sverrir 50% einstaklingslánamarkaðar enn í höndum ríkisins. MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. APRÍL 2004 19 A ð undanförnu hefur tals- vert verið rætt um möguleika á að koma upp léttlestakerfi á höfuðborgarsvæðinu. Umræðan sprettur upp í kjölfar ferðar samgöngunefndar Reykja- víkur til Þýskalands þar sem nefnd- armenn kynntu sér almennings- samgöngur í fjórum þýskum borgum, þar af þremur á stærð við höfuðborgarsvæðið. Á dögunum var samþykkt tillaga fulltrúa Reykjavíkurlistans í sam- göngunefnd þess efnis að kannaðir skyldu framtíðarmöguleikar á að koma upp slíku kerfi hér á höf- uðborgarsvæðinu, kostir þess og gallar, kostnaður og mögulegur sparnaður vegna aukinnar notkunar á almenningssamgöngum. Það er fyrir löngu orðið tímabært að velta upp nýjum möguleikum í almenn- ingssamgöngum og það vill Reykja- víkurlistinn gera. Ýmsar goðsagnir eru til um al- menningssamgöngur á Íslandi. Þær má heyra í málflutningi stjórnmála- manna úr ólíkum flokkum og eru flestar neikvæðar. Þær snúast flestar um að Íslend- ingar séu of miklir einstaklings- hyggjumenn til að taka strætisvagn eða lest, þeir vilji bara vera á sínum einkabíl og svo sé veðrið hvort eð er svo vont á Íslandi að það sé engum manni bjóðandi að þurfa að ganga þrjú til sjö hundruð metra út í bið- skýli og taka svo almenningsvagn. Vissulega er rétt að hlutfallslega fáir nýta sér almenningssamgöngur á Íslandi, í Reykjavík eru það um 4–5% íbúa, sem vissulega er ekki mikið. Að tengja það hins vegar við „þjóðareðli“ eða það að veðrið sé svo miklu verra hér en annars staðar er hins vegar alveg fráleitt. Íslendingar eru ekkert frábrugðnir öðrum þjóð- um; víkingaeðlið er líklegast aðeins goðsögn og veðrið hér er að vísu rysjótt en alls ekki verra en víða annars staðar þar sem almennings- samgöngur hafa gengið ágætlega. Ljóst er að ef kenna á um óbreyt- anlegum fyrirbærum, á borð við veð- ur og „eðli“ þjóðar, er lítill vilji til að breyta ástandinu. En hverjar eru hinar raunverulegu ástæður og hvað er til ráða? Höfuðborgarsvæðið er að mörgu leyti erfitt fyrir þá sem skipuleggja almenningssamgöngur. Reykjavík er dreifð á stórt svæði. Núverandi leiðakerfi er í raun gam- alt kerfi miðað við minni borg og síð- an hefur verið bætt við nýjum leið- um fyrir ný hverfi. Við þessu er hins vegar margt hægt að gera. Mjög mikilvægt er að þétta byggð og gera um leið ráð fyrir góðum almennings- samgöngum. Þannig verður hag- kvæmara að reka kerfið. Og miðað við aðalskipulag höfuðborgarsvæð- isins og Reykjavíkur er vissulega ætlunin að þétta byggð sem hlýtur að teljast jákvætt í heildina tekið. Einnig er nauðsynlegt að leita nýrra leiða í almenningssam- göngum. Nú er unnið að nýju leiða- kerfi Strætó bs. Stefnt er að því að þjónusta verði bætt og jöfnuð fyrir allt höfuðborgarsvæðið. Kerfið er endurskipulagt frá grunni og miðast nú við sex stofnleiðir og 12 sérleiðir. Hugsunin með kerfinu er að það sé einfalt, þægilegt í notkun og skil- virkt. Tíðni á stofnleiðunum verður meiri á álagstímum en nú er og opn- að er fyrir ýmsa framtíðarmöguleika á enn betri þjónustu og skilvirkni. Framundan eru spennandi tímar í strætómálum. En ekki dugir að horfa aðeins á strætisvagnakerfið, kanna verður aðra kosti til að móta framtíðarsýn til lengri tíma. Það er ekki nóg að hugsa bara um daginn á morgun. Í því samhengi hafa verið nefndar til sögu svokallaðar léttlestir sem eru nútímalegir og endurbættir spor- vagnar. Þær ferðast á spori og sé þeim veittur forgangur á einkabíla- umferð lenda þær ekki í umferð- arhnútum eins og venjulegir stræt- isvagnar. Léttlestir hafa víða verið settar upp í Þýskalandi enda Þjóðverjar framarlega á sviði almennings- samgangna, ekki síst af umhverf- isástæðum. Samgöngunefnd Reykjavíkur heimsótti þrjár borgir á stærð við höfuðborgarsvæðið, þ.e. Freiburg, Saarbrücken og Kassel og það sem eftirtekt vekur er að í þessum borg- um hefur hlutfall almennings- samgangna aukist verulega, eða úr 11% í 18% í Freiburg, 18% í 22% í Saarbrücken og úr 14% í 19% í Kas- sel. Þessi aukning hefur orðið þó að einkabílum hafi á sama tíma fjölgað þannig að kerfinu er ekki stefnt til höfuðs þeim heldur er áherslan á að aukningu um- ferðar sé beint í almennings- samgöngur en ekki einkabíla- umferð. Í þýsku borgunum má víða sjá rafræn upplýsingakerfi þar sem sjá má nákvæmlega hversu langur tími er þar til næsta lest kemur og slíkt kerfi er einnig hægt að nota á ferðir strætisvagna. Þá eru fjöl- breyttir möguleikar í boði við greiðslu fargjalda og einnig er sums staðar boðið upp á þann möguleika að geyma bílinn á sérstökum, yf- irleitt ókeypis, bílastæðum á meðan maður tekur lestina í miðbæinn. Stjórnvöld í þessum borgum hafa rekið skýra stefnu í almennings- samgöngum og þjónusta við not- endur léttlestanna virðist vera mjög góð. Með tilliti til reynslu þeirra eiga borgaryfirvöld hér í Reykjavík tvo kosti. Annars vegar að hafna öllum nýjungum og ákveða fyrirfram að þær séu of dýrar í framkvæmd. Hins vegar að bera saman á vandaðan og málefnalegan hátt kostnað við nýj- ungar á borð við léttlestakerfi og kostnað við aðrar gatnafram- kvæmdir. Léttlestir eru raunhæfur val- kostur samhliða öflugu stræt- isvagnakerfi á höfuðborgarsvæðinu og sjálfsagt er að kanna þennan möguleika frekar. Í því felst engin skuldbinding heldur er fyrst og fremst ætlunin að kanna nýjar og spennandi leiðir með jákvæðu og opnu hugarfari. Því er furðulegt að fylgjast með neikvæðum viðbrögðum fulltrúa sjálfstæðismanna þegar rætt er um að efla almenningssamgöngur en þeir hafna því fyrirfram að skoða málið en leggja ofurkapp á byggingu fleiri mislægra gatnamóta. Það er skringilegt að ungir menn vilji ekki horfa heildrænt á samgöngumál höf- uðborgarsvæðisins og huga að um- hverfisþáttum við framtíðarskipulag þeirra. Miðað við velgengni léttlesta erlendis og stórhug í endur- skipulagningu leiðakerfis stræt- isvagna fáum við raunhæfa mögu- leika á að stórefla almenningssamgöngur og auka hlut þeirra án þess að vega að núverandi einkabílaumferð. Þetta hlýtur öllu ungu fólki að vera kappsmál sem vill áfram búa í heilnæmri og hreinni höfuðborg. Ný framtíðarsýn í almennings- samgöngum Eftir Katrínu Jakobsdóttur Höfundur er varaformaður Vinstri- hreyfingarinnar – græns framboðs. ’Því er furðulegt aðfylgjast með neikvæðum viðbrögðum fulltrúa sjálfstæðismanna þegar rætt er um að efla al- menningssamgöngur en þeir hafna því fyrirfram að skoða málið. ‘ vegar al- un, að sérstætt miðla- kveðnar um þann markaður- æmur, til þess að ngum á m fer í r á hinu m vett- þannig egri um- fa jafn- ðarás ars í við- eyndir tum ef em við við, eru ur í gildi kaðinn. nandi eft- stæðum ki kunn- r sé því vers konar regluverks af þessu tagi gangi gegn stjórnarskrárvörðum grundvallarsjónarmiðum um at- hafnafrelsi, eignarrétt eða tján- ingarfrelsi, eins og oftsinnis hefur verið haldið fram í umræðum hér á landi undanfarna daga. Sérstakar reglur á ýmsum sviðum viðskiptalífsins Af umræðum hér á landi mætti einnig ráða, að hugmyndir um lagabreytingar sem varða fjöl- miðlamarkaðinn séu á einhvern hátt einstakar og úr takti við aðra lagasetningu hér á landi. Þetta sjónarmið stenst ekki skoðun. Í fyrsta lagi er rétt að geta þess að ákveðin gildandi lagaákvæði leggja ríkari skyldur á herðar fyr- irtækjum í fjölmiðlarekstri en gilda á öðrum sviðum. Slík ákvæði má meðal annars finna í útvarps- lögum, þar sem meðal annars er kveðið á um leyfisskyldu til rekstrar ljósvakamiðla og fleiri at- riði. Einnig má vísa til laga um prentrétt varðandi prentmiðla. Á öðrum sviðum viðskiptalífsins er víða að finna ákveðnar sérreglur og nægir þar til dæmis að nefna löggjöf um fjármálafyrirtæki, sem að mörgu leyti búa við mun strangari reglur heldur en gengur og gerist um fyrirtæki. Þar má til dæmis nefna tilkynningarskyldu um viðskipti með eignarhluta og áskilnað um samþykki Fjármála- eftirlits þegar aðili öðlast virkan eignarhluta í fjármálafyrirtæki. Einnig eru settar ákveðnar höml- ur á eignaraðild fjármálafyr- irtækja að fyrirtækjum í óskyld- um rekstri. Slík ákvæði eiga sér auðvitað rót í sérstöku eðli fjár- málafyrirtækjanna, sem ráðast bæði af bolmagni þeirra til að hafa áhrif á önnur fyrirtæki og jafn- framt af því að fjármálafyrirtæki hafa yfir að ráða viðkvæmum upp- lýsingum um viðskiptavini sína og verða að gæta þess að nýta þær ekki til annarra hluta en lög heim- ila. Dæmin um sérstakar reglur á ýmsum sviðum viðskiptalífsins eru mun fleiri og því ekki hægt að halda því fram með gildum rökum, að það sé eitthvað einstakt eða óeðlilegt að setja einhverjar regl- ur sem varða fjölmiðlamarkaðinn sérstaklega. Með því er auðvitað ekki sagt að hægt sé að setja hvers konar reglur um þennan markað, því auðvitað verður að gæta eðlilegra varfærnissjónar- miða og byggja reglusetninguna á málefnalegum sjónarmiðum eins og endranær. Gæta verður varfærni Það er rétt, sem fram hefur komið í opinberri umræðu, að gæta ber eðlilegrar varfærni þeg- ar reglur eru settar um viðskipta- lífið. Á undanförnum árum hefur markvisst verið unnið að því af hálfu ríkisstjórna og Alþingis að létta af ýmsum hömlum í atvinnu- lífinu og hefur sú stefna leitt til af- ar jákvæðrar þróunar og bættra lífskjara alls almennings í landinu. Skattar á atvinnulífið hafa verið lækkaðir, opinber fyrirtæki einka- vædd og frjálsræði aukið á mörg- um sviðum. Starfsumhverfi at- vinnulífsins hefur verið stórbætt þótt vissulega megi betur gera á ýmsum sviðum. Það hlýtur því að vera útgangspunktur ríkisstjórn- arflokkanna og Sjálfstæðisflokks- ins sérstaklega, að við breytingu á öllum lögum og reglum sem snerta atvinnulífið að þess sé gætt að setja ekki óeðlilegar hömlur og ganga ekki lengra í takmörkunum heldur en nauðsyn ber til hverju sinni. Sá meðalvegur er auðvitað vandrataður en út frá þessum sjónarmiðum hljóta þingmenn að nálgast verkefni sitt á næstu vik- um þegar þeir taka afstöðu til væntanlegs frumvarps um fjöl- miðlamarkaðinn. etning hér á landi mætti ráða, að agabreytingar sem varða ðinn séu á einhvern hátt takti við aðra lagasetn- Þetta sjónarmið stenst Höfundur er þingmaður Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.