Morgunblaðið - 26.04.2004, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 26.04.2004, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. APRÍL 2004 31 Nýr og betriHverfisgötu  551 9000 www .regnboginn.is „Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna“ Þ.Þ. Fbl. Sýnd kl. 6. Með íslensku tali Sýnd kl. 8 og 10.15. (Píslarsaga Krists) HP. Kvikmyndir.com Kvikmyndir.is  Skonrokk Ein umtalaðasta og aðsóknarmesta mynd allra tíma Til að tryggja réttan dóm En það var einn sem sá við þeim... Eftir metsölubók John Grisham Með stórleikurunum John Cusack, Gene Hackman, Dustin Hoffman og Rachel Weisz Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16. Jimmy the Tulip er mættur aftur í hættulega fyndinni grínmynd! Kvikmyndir.is Sýnd kl. 5.40, 8.30 og powersýning kl. 11.20. B.i. 16. Blóðbaðið nær hámarki. HP Kvikmyndir.com „Gargandi snilld“ ÞÞ FBL Powersýning kl. 11.20 www.laugarasbio.is „Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna“ Þ.Þ. Fbl. Sýnd kl. 6. Íslenskt tal.Sýnd kl. 8 og 10.10. Jimmy the Tulip er mættur aftur í hættulega fyndinni grínmynd! Blóðbaðið nær hámarki. HP Kvikmyndir.com Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16 Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. „Gargandi snilld“ ÞÞ FBL ÞAÐ voru breið bros bæði á sviði og í sal Borgarleikhússins á síðasta degi vetrar þegar nemendur í Dansskóla Birnu sýndu listir sínar. Þar koma fram nemendur á aldr- inum 7 til 35 ára og sýna hina ýmsu dansa, djassballet, söngleikjadansa, freestyle, fönk, streetdjass, mod- ern, hipp-hopp, allt það sem þeir læra í Dansskóla Birnu. Dansskóli Birnu er starfræktur í Sporthúsinu í Kópavogi og Þrek- húsinu í Reykjavík en danssýningin í Borgarleikhúsinu er fastur við- burður hjá skólanum og markar endalok vetrarstarfsins. Allir í takt. Dansararnir höfu greinilega æft sig vel fyrir sýninguna. Morgunblaðið/Golli Og Lína kann líka að dansa! Dans, dans, dans, dans Mikill fjöldi nemenda tók þátt í danssýningunni. UMDEILDIR hæstaréttardómar hafa verið ofarlega í umræðunni hér- lendis að undanförnu, svo hefur virst sem í nokkrum tilfellum hafi þeir mætt meiri andstöðu hjá almenningi í landinu en meðbyr. Kvikmyndin Klofinn kviðdómur – Runaway Jury, er vandað réttarsalsspennudrama, byggt á samnefndri metsölubók Johns Grisham. Hann er lögmennt- aður ritöfundur og í umræddu verki ræðst hann einmitt á dómsmálin í heimalandinu. Samkvæmt niðurstöð- um Runaway Jury, er ekki annað að sjá en við Íslendingar megum vel una við dómarakerfið okkar því myndin sýnir inn í rotið réttarfar þar sem kviðdómur ræður dómsorðinu. Þar sem slíkir dómstólar ríkja yfir dómskerfinu fyrirfinnast svokallaðir kviðdómsráðgjafar og leikur Gene Hackman einn slíkan. Sá nefnist Fitch, er útsmoginn lagarefur sem hvorki þolir né þekkir að tapa máli fyrir dómstólunum. Hann er ráðgjafi byssuframleiðanda sem er sóttur til saka í skaðabótamáli ungrar ekkju, maður hennar féll fyrir vopni fjölda- morðingja. Málið snýst ekki aðeins um niðurstöðuna í þessum afmörkuðu réttarhöldum, hún hefur óafturkræft fordæmisgildi og því ófyrirsjáanleg áhrif á umdeilda byssueign og vopna- framleiðslu í Bandaríkjunum. Það er mikið undir og Rohr (Dustin Hoffman), verjandinn í málinu, er vissulega ekki vanur stórátökum en hann ætlar að sýna og sanna fyrir um- heiminum hvers hann er megnugur. Þá er röðin komin að þriðja áhrifa- valdi málsins, kviðdómnum, eða öllu frekar þætti Easter (John Cusack), eins tólfmenninganna í kviðdómnum; útsmogins náunga sem erfitt er að átta sig á. Hann hyggst, í samvinnu við vinkonu sína (Rachel Weisz), ná meirihluta kviðdómsins á sitt vald og selja þeim aðilanum sem býður betur – verjanda eða sækjanda. Lengra verður söguþráðurinn ekki rakinn, það sem við tekur er sannkall- aður hráskinnaleikur þar sem gengur á ýmsu. Svo virðist vera sem spill- ingin sé sterkasta aflið í réttarsölum þar sem kviðdómur ríkir og leiðirnar að samvisku hans liggi gjarnan í gegnum seðlaveskið. Hitt ber að hafa í huga að Grisham fer afar frjálslega með sannleikann og taki sér ómælt skáldaleyfi til að haga atburðarásinni á þann veg að hún verði spennandi og tvísýn. Sjálfsagt þurfa menn að vera lög- fróðir til að skilja á milli skáldskapar og staðreynda í þessum margslungnu klækjabrögðum og málaferlum, það breytir engu um að leikmanninum finnst málflutningurinn á löngum köflum reyfarakenndur. En sem af- þreying virkar Rumaway Jury ósvik- in og grípandi. Gary Fleder er einn örfárra í hópi nýrra leikstjóra sem hefur vald á að byggja upp spennu og halda henni. Gera hlutina með stíl og marka persónlegu handbragði að auki. Handritið sem hann er með í höndunum er engan veginn trúverð- ugt, ekki hvað síst þegar dregur nær lokunum, en Fleder fatast ekki flugið. Keyrir myndina áfram frá upphafi til enda yfir skvompurnar og nýtur frá- bærra samstarfsmanna við að drífa hana jafnan vel upp úr meðalmennsk- unni. Hackman og Hoffman eru stór- kostlegir hæfileikamenn og geislandi persónuleikar og það er ekkert minna en söguleg stund að sjá slíka höfð- ingja saman á tjaldinu. Það eitt er ær- ið tilefni til að sjá Runaway Jury. En hún er þar að auki gædd slyngnum leik Cusacks og fjölda aðdáunar- verðra skapgerðarleikara (Weisz er e.t.v. full brothætt), magnaðri tónlist, kvikmyndatöku og óaðfinnanlegu út- liti. Veltið ekki sögufléttunni um of fyrir ykkur en látið fagmennskuna hrífa ykkur með sér að endamörkun- um. Refskák KVIKMYNDIR Smárabíó, Regnboginn Leikstjóri: Gary Fleder. Handrit: Brian Koppelman, David Levien, Rick Cleve- land og Matthew Chapman, byggt á skáldsögu Johns Grisham. Kvikmynda- taka: Robert Elswit. Tónlist: Christopher Young. Aðalleikendur: John Cusack, Gene Hackman, Dustin Hoffman, Rachel Weisz, Bruce Davison, Nora Dunn, Bruce McGill. 125 mínútur. 20th Century Fox. Bandaríkin. 2004 Klofinn kviðdómur (Runaway Jury)  Sæbjörn Valdimarsson SIGRÚN Bender, 18 ára Hafnfirðingur, var valin ungfrú Reykjavík árið 2004 á föstudag en keppn- in fór fram á Broadway. Fjóla Ósk Aðalsteins- dóttir, 19 ára Reykvíkingur, varð í 2. sæti og Matthildur Birgisdóttir, 21 árs Kópavogsbúi, varð í þriðja sæti. Ljósmyndafyrirsæta ársins var valin Steina Dröfn Snorradóttir en hún er tvítugur Reykvíkingur. Reykvísk fegurð frá Hafnarfirði komin Morgunblaðið/Jim Smart Fjóla Ósk, Sigrún og Matthildur „komust á pall“ í keppninni um ungfrú Reykjavík á föstudag. Stúlkurnar í keppninni um ungfrú Reykjavík þurftu að sýna að þeim væri ýmislegt til lista lagt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.