Morgunblaðið - 26.04.2004, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 26.04.2004, Blaðsíða 30
Svo virðist nefnilega sem Violent Femmes sé hið eilífa háskóla/ menntaskólaband og líftími hins sí- gilda og samnefnda frumburðar frá 1983 er ótrúlega langur. Téð plata, sem inniheldur hið ótrúlega „Blister in the Sun“ og önnur snilldarverk eins og „Kiss Off“, „Add It Up“ og „Gone Daddy Gone“, er líklega ein mesta „költ“- plata rokksögunnar og er nákvæm- lega jafn fersk, skemmtileg, reið og falleg og hún var þegar hún datt fyrst inn í plötubúðirnar. Meðlimir Violent Femmes gera sér fyllilega grein fyrir þessum ör- lögum sínum. Af mikilli reisn og innsæi gáfu þeir fólki nákvæmlega það sem það vildi, án þess að fórna heilindum sínum um leið. Þeim tókst að glæða margtuggin lög lífi og áttu oft firnagóða spretti. Violent Femmes var svo gott sem spiluð í heild sinni og einnig var talsvert leikið af Hallowed Ground, plötunni sem kom út árið eftir, en hún stendur snilld fyrstu plötunnar síst að baki (Á meðal laga: hið magnaða „Country Death Song“, hið undurfurðulega „I Hear the Rain“, hið stórkostlega „Jesus Walking the Water“. Öll voru þau spiluð). Maður var næstum búinn að gleyma hversu mikil snilld sum þessara laga eru. Brjálæðislega skemmtileg, stundum stórskrýtin, full af melódíum, sorg og jafnvel hamslausri reiði. Ferill sveitarinnar er í raun tví- skiptur því að hún hefur engan veginn náð að halda dampi síðustu ár (New Times (’94) og Freak Magnet (’00) eru svona „létt-Vio- lent Femmes“). Nokkur lög af hinni prýðilegu Why Do Birds Sing? frá 1991 fengu þá að fljóta með og a.m.k. eitt lag af Blind Leading the Naked. En ég saknaði þess að ekkert lag var spilað af hinni ágætu plötu 3. Ég kom á þessa tónleika alger- lega núllstilltur. Grunaði að brugð- ÞAÐ hefur komið mér á óvart, skemmtilega, hversu mikill áhug- inn hefur verið fyrir hingaðkomu Deep Purple í sumar. Eins kom það mér á óvart að það hefði selst upp á tónleikana sem hér eru til umfjöllunar, tónleika meðalstórrar nýbylgjusveitar frá Bandaríkjun- um sem er þekkt fyrir eina plötu sem út kom fyrir tuttugu og einu ári. Nei, segjum frekar að sveitin sé þekkt fyrir eitt lag sem út kom fyrir tuttugu og einu ári. Þegar á staðinn var komið blasti ástæðan hins vegar við. Það var gaman að rýna í áhorfendahópinn sem var saman kominn í fyrradag, því þarna voru þrjár nýbylgjukyn- slóðir. Gramm/Sykurmolakynslóð- in, fædd í kringum ’65, þá fólk fætt í kringum ’75 sem er alið upp á Pixies, Dinosaur Jr. og fleiru og svo glæný kynslóð sem var hressi- lega fjölmenn. Strokes-krakkar, fæddir í kringum ’85. Þessar kynslóðir tóku höndum saman, byggðu upp gríðarlega stemningu og sungu með í nánast hverju lagi, meðlimum Violent Femmes nánast til furðu. ið gæti til beggja vona. Ég hef grunsemdir í garð sveita sem ann- að hvort mega muna sinn fífil fegri eða eru að koma saman aftur á nýj- an leik. En um leið hafði ég það á tilfinningunni að þeir félagar gætu rúllað þessu upp, enda efniviðurinn til staðar. Mér til mikillar gleði reyndist hið síðarnefnda rétt. Tón- leikarnir voru frábærir. Tríóið er skipað skemmtilegum persónuleikum. Hinn smágerði en öflugi söngvari og gítarleikari, Gordon Gano, var lengst til vinstri („Ég var nörd í skóla en nú ætla ég að semja plötu til að hefna mín á ykkur. Hún á eftir að verða biblía allra unglinga í tilvistarkreppu!“). Í miðjunni var hinn litríki trymb- ill, Victor de Lorenzo. Hann stóð fyrir framan tvær trommur og- málmgjöll og lét öllum góðum lát- um. Lengst til hægri var svo fjöl- hljóðfæraleikarinn Brian Ritchie. Tónleikarnir fóru hægt af stað en þegar þeir voru um það bil hálfnaðir hrökk tríóið í gírinn. Það virtist spennulosandi þegar Óskar Guðjónsson,saxafónleikari og Matt- hías M.D. Hemstock stigu á svið ásamt tveimur Bandaríkjamönn- um, sem ég kann því miður ekki deili á, og hjálpuðu Femmes að breyta „Confessions“ af fyrstu plötunni í avant garde spuna. Eftir þetta innslag fór allt í gang. Eitt sem ég verð svo að koma að hér undir rest. Broadway hentar engan veginn sem staður fyrir rokktónleika. Rýmið bara býður ekki upp á það. Það var auðsætt að hin mikla stemning kom sveitinni í opna skjöldu – og um leið gleðilega á óvart. Þegar á leið fóru meðlimir að gera að gamni sínu og léku á als oddi undir rest. Lögin urðu u.þ.b. tuttugu og punkturinn yfir i-ið var svo hressileg útgáfa af „Kiss Off“. Þetta var dæmalaust góð byrjun á sumrinu. Lifi Violent Femmes! Tónlist Gleði- konur Violent Femmes BROADWAY  Bandaríska tríóið Violent Femmes lék við hvurn sinn fingur. Dr. Gunni hitaði upp. Að kvöldi sumardagsins fyrsta, 22. apríl 2004. Arnar Eggert Thoroddsen Morgunblaðið/Sverrir Violent Femmes náðu upp mikilli stemningu á Broadway á fimmtudaginn. 30 MÁNUDAGUR 26. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 15.00 EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS „Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna“ Þ.Þ. Fbl. Sýnd kl. 3.20 og 5.40. Með ensku tali Sýnd kl. 3.20 og 5.40. Með íslensku tali (Píslarsaga Krists) HP. Kvikmyndir.com Kvikmyndir.is  Skonrokk Sýnd kl. 8 og 10.40. B.i. 16. Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.15. Sýnd kl. 8 og 10.40. Til að tryggja réttan dóm réðu þeir utanaðkomandi sérfræðing En það var einn sem sá við þeim... Eftir metsölubók John Grisham Með stórleikurunum John Cusack, Gene Hackman, Dustin Hoffman og Rachel Weisz Kvikmyndir.is Sýnd kl. 5.10, 8 og 10.50. B.i. 16. Blóðbaðið nær hámarki. HP Kvikmyndir.com kl. 5.40, 8.30 og 11.20. B.i. 16. „Gargandi snilld“ ÞÞ FBL Stóra svið Nýja svið og Litla svið CHICAGO eftir J. Kander, F. Ebb og B. Fosse Fi 29/4 kl 20 - AUKASÝNING Fö 30/4 kl 20 - UPPSELT, Lau 1/5 kl 15 - ATH: 1. MAÍ TILBOÐ Lau 1/5 kl 20 - UPPSELT, Fö 7/5 kl 20 - UPPSELT, Lau 8/5 kl 20 - UPPSELT Su 9/5 kl 20 - AUKASÝNING Fö 14/5 kl 20, - UPPSELT, Lau 15/5 kl 20, Su 23/5 kl 20, Fö 28/5 kl 20, Lau 29/5 kl 20, Fö 4/6 kl 20, Lau 5/6 kl 20 Ósóttar pantanir seldar daglega Miðasala: 568 8000 Nýr opnunartími: Mánudaga og þriðjudaga: 10:00 - 18:00 miðviku-, fimmtu- og föstudaga: 10:00 - 20:00 laugardaga og sunnudaga: 12:00 - 20:00 www.borgarleikhus.is midasala@borgarleikhus.is NÝTT: Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is SPORVAGNINN GIRND e. Tennessee Williams Fö 30/4 kl 20 SÍÐASTA AUKASÝNING Ath:. Ekki er hægt að hleypa í salinn eftir að sýning hefst PARIS AT NIGHT - KABARETT eftir ljóðum Jacques Prévert - Í samvinnu við Á SENUNNI Mi 28/4 kl 20:15 - Síðasta sýning Ath. breytilegan sýningartíma BELGÍSKA KONGÓ eftir Braga Ólafsson Frumsýning fi 6/5 kl 20 - UPPSELT Fi 13/5 kl 20, Su 16/5 kl 20 LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren Su 2/5 kl 14, Su 9/5 kl 14, Su 16/5 kl 14, Su 23/5 kl 14 Síðustu sýningar GLEÐISTUND: VEITINGAR - BÖKUR - VÖFFLUR - BRAUÐ FORSALURINN OPNAR KLUKKUTÍMA FYRIR KVÖLDSÝNINGU SEKT ER KENND e. Þorvald Þorsteinsson Su 2/5 kl 20 Takmarkaður sýningafjöldi Miðasala í síma 555-2222 theater@vortex.is Fim. 29. apríl kl 21 Fös. 30. apríl kl 21 síðustu sýningar Fantagott stykki...frábær skemmtun sem snerti margan strenginn -Ómar Garðarsson Eyjafréttir eftir Jón Atla Jónsson Sýnd kl. 8. Jimmy the Tulip er mættur aftur í hættulega fyndinni grínmynd! Sýnd kl. 10.10.Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16. Blóðbaðið nær hámarki. HP Kvikmyndir.com Sýnd kl. 6. „Gargandi snilld“ ÞÞ FBL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.