Morgunblaðið - 19.05.2004, Síða 2
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MIKIÐ MANNFALL
Að minnsta kosti tuttugu Palest-
ínumenn létu lífið og yfir 30 særðust
þegar ísraelskir skriðdrekar og
hundruð hermanna réðust inn í Raf-
ah-flóttamannabúðirnar á Gaza-
svæðinu í gær. Sögðu Ísraelar mark-
mið sitt vera að stöðva vopnasmygl.
Mannréttindasamtökin Amnesty
International segja Ísraela seka um
brot á alþjóðalögum og stríðsglæpi.
Lýsa þungum áhyggjum
Borgarstjórn samþykkti í gær-
kvöldi ályktunartillögu Ólafs F.
Magnússonar, borgarfulltrúa frjáls-
lyndra, þar sem segir að stjórnin lýsi
þungum áhyggjum sínum vegna fjöl-
miðlafrumvarpsins. Alfreð Þor-
steinsson, oddviti framsóknarmanna
í R-listanum, segist hafa fundið
mikla óánægju með frumvarpið inn-
an flokks síns.
Hætta af ofsaakstri
Mikil hætta skapaðist af ofsa-
akstri á Suðurlandsvegi og Vest-
urlandsvegi í gær en lögreglumenn
reyndu að stöðva ökumann bifreiðar
sem sinnti ekki stöðvunarmerkjum
við Litlu kaffistofuna. Eftir langa
eftirför um stórar umferðaræðar á
háannatíma tókst lögreglunni að
króa manninn af í Mosfellsbæ. Mað-
urinn hafið rænt verslun á Laug-
arvatni daginn áður.
Sonia Gandhi hætti við
Sonia Gandhi, formaður Kon-
gressflokksins á Indlandi, hefur
ákveðið að verða ekki næsti for-
sætisráðherra landsins, þótt flokkur
hennar hafi unnið sigur í nýaf-
stöðnum kosningum. Kvaðst hún
óttast að harðlínusinnaðir þjóðern-
issinnar myndu „grípa til ör-
þrifaráða“, en þeir hafa vakið athygli
á ítölskum uppruna Gandhi.
Vesturport á West End
Uppfærsla Vesturports á leikrit-
inu Rómeó og Júlía verður líklega
sýnd á West End í London í sumar.
Einn stærsti leikhúsframleiðandi
Bretlandseyja stendur að tilboðinu.
Sýnt yrði í Trafalgar Studios-
leikhúsinu.
Danska stjórnin ásökuð
Rauði krossinn í Danmörku hefur
sakað þarlend stjórnvöld og þing um
brot á Genfarsáttmálanum um með-
ferð stríðsfanga með því að mót-
mæla ekki mannréttindabrotum
bandarískra hermanna í Írak og
Afganistan.
Y f i r l i t
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir
sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
-ráð dagsins
Stráið röku telaufi yfir ösku eða annað ryk sem
kann að þyrlast upp þegar sópað er. Hentar vel
fyrir fólk með rykofnæmi.
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 34
Viðskipti 12/13 Minningar 35/39
Erlent 14/16 Kirkjustarf 41
Höfuðborgin 19 Bréf 44
Akureyri 20 Staksteinar 46
Suðurnes 21 Dagbók 46/47
Landið 22 Fólk 52/57
Listir 24/27 Bíó 55/57
Forystugrein 30 Ljósvakamiðlar 58
Umræðan 28/34 Veður 59
* * *
LÖGREGLAN á Selfossi og fulltrúar
uppsveita Árnessýslu hafa stöðvað
framkvæmdir við bátalægi við Þing-
vallavatn en framkvæmdin sem var
unnin í óleyfi var langt á veg komin.
Að sögn Arinbjörns Vilhjálmssonar,
skipulagsfulltrúa í uppsveitum Ár-
nessýslu, hafa framkvæmdirnar í för
með sér óafturkræfar skemmdir á
umhverfi vatnsins og verður eiganda
gert að laga það tjón sem orðið er, að
svo miklu leyti sem unnt er.
Sumarbústaður mannsins er á rík-
isjörð, í landi Heiðarbæjar á vestur-
bakka Þingvallavatns, skammt utan
þjóðgarðsins.
Hélt áfram að framkvæma
Arinbjörn segist hafa haft spurnir
af því að framkvæmdir stæðu yfir við
bátalægið í fyrradag og fór þá á vett-
vang og stöðvaði framkvæmdir og
tjáði eigandanum að þær væru
óheimilar. Í gær hafi fulltrúar frá
Umhverfisstofnun farið á vettvang til
að skanna skemmdir en þá hafi fram-
kvæmdir enn verið í fullum gangi.
Ákveðið var að kalla til lögreglu á
meðan framkvæmdir voru stöðvaðar
að nýju. Verktaki var þá á staðnum.
Að sögn Arinbjörns hafði eigand-
inn á orði í fyrradag að framkvæmd-
irnar væru mun meiri en hann hefði
ætlað sér.
Málið er til skoðunar hjá sveitar-
stjórn Bláskógabyggðar.
Skemmdir unnar á um-
hverfi Þingvallavatns
Ljósmynd/Arinbjörn Vilhjálmsson
Myndin var tekin í fyrradag en framkvæmdir voru lengra á veg komnar í
gær. Grjótið í bátalægið var tekið úr nærliggjandi klettabelti.
Eigandi sumarbústaðar framkvæmdi í óleyfi
TVEIR karlmenn, 17 og 23 ára, við-
urkenndu í yfirheyrslum hjá lögregl-
unni í Reykjavík að hafa brotist inn í
afgreiðslu Flugfélags Íslands á
Reykjavíkurflugvelli árla sl. mánu-
dagsmorguns og haft á brott með
sér ræstingamann sem kom að þeim
við innbrotið.
Eftir nokkra leit á mánudag fund-
ust mennirnir í Keflavík seint um
kvöld og voru handteknir. Bíll, sem
þeir stálu við flugvöllinn, fannst í
gær og er málið til frekari rannsókn-
ar hjá lögreglu, að sögn Karls Stein-
ars Valssonar aðstoðaryfirlögreglu-
þjóns. Hann vildi ekkert gefa upp
um það hvort þýfi úr innbrotinu
hefði fundist en mennirnir hafa báð-
ir afbrotaferil að baki. Var þeim
sleppt að yfirheyrslum og játningu
lokinni.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær tóku þeir ræstinga-
manninn, karlmann á fimmtugsaldri,
með sér í bílinn á flótta frá innbrots-
stað og skildu hann eftir í Selja-
hverfi í Breiðholti. Hann sakaði ekki.
Tveir menn
viðurkenndu
innbrot og
mannrán
OLGA Borodina messósópran-
söngkona kom til landsins í gær-
morgun til æfinga með Sinfóníu-
hljómsveit Íslands, en fyrri
tónleikar hennar verða í Há-
skólabíói í kvöld. Hún gaf sér
stund til að svara spurningum
blaðamanns Morgunblaðsins á
Hótel Sögu eftir fyrstu æfinguna.
„Ég var spennt fyrir að koma til
Íslands í fyrsta sinn og kynnast
þeim mikla tónlistaráhuga sem
hér er. Sömuleiðis er ég spennt
fyrir að sjá hvernig Íslendingum
mun falla sú rússneska tónlist sem
ég flyt ásamt hljómsveitinni,“
sagði Borodina, aðspurð hvaða til-
finningar bærðust innra með
henni við komuna til landsins.
Borodina kom með næturflugi
frá New York, en þar söng hún á
sviði Metropolitan-óperunnar á
mánudagskvöld, allt aðra dagskrá
en hún flytur hér á landi. „Það
eru skarpar andstæður að koma
beint frá New York til Reykjavík-
ur. Bæði er veðrið mjög ólíkt og
dagskráin sem ég flyt, og ég hef
ekki notið umhverfisins hér sem
skyldi enn sem komið er. Hins
vegar mun ég stefna á ystu brún
til að gera mitt allra besta á tón-
leikunum.“ Stjórnandi tónleikanna
er rússneskur, Alexander Ved-
ernikov, og segir Borodina það
hjálpa til við túlkun og samstarf
við æfingar.
Mjög stíf dagskrá
Borodina heldur tvenna tónleika
hér á landi, í kvöld og á laug-
ardag. Að þeim loknum heldur
hún beinustu leið á svið Scala-
óperunnar í Mílanó. Blaðamanni
er spurn hvernig hún byggi upp
úthald fyrir svo mikla dagskrá.
„Þetta er ekki auðvelt. Ég veit
aldrei hvernig morgundagurinn
verður, og þar sem röddin er mitt
hljóðfæri verð ég að fara varlega.
Það er forsenda þess að ég geti
haldið út svo stífri dagskrá,“ sagði
Borodina að lokum.
Rússneska söngkonan Olga Borodina komin á Listahátíð
Gleðst yfir að kynnast
tónlistaráhuga Íslendinga
Olga Borodina
ALLSHERJARNEFND Alþing-
is fundaði í gærkvöldi þar sem
fram komnar breytingartillögur
á fjölmiðlafrumvarpinu voru
kynntar.
Bjarni Benediktsson, formaður
allsherjarnefndar, gerir ráð fyrir
að þriðja umræða um frumvarpið
hefjist á Alþingi í dag. „Það voru
engar frekari breytingartillögur
ræddar en stutt umræða um
helstu forsendu þeirra breytinga
sem er verið að leggja hér til,“
sagði hann í gærkvöldi.
Jónína Bjartmarz varaformað-
ur nefndarinnar sagði að það
eina sem hún vildi segja væri að
hún styddi allar breytingartillög-
ur sem væru til bóta á frumvarp-
inu. „Það eru þessar alveg eins
og breytingartillögurnar sem
allsherjarnefnd gerði í sinni fyrri
afgreiðslu.“
Tillögurnar gera ráð fyrir því
að óheimilt verði að veita fyrir-
tæki útvarpsleyfi ef annað fyrir-
tæki á meira en 35% eignarhlut í
því en þetta hlutfall er 25% í
frumvarpinu. Hins vegar er lagt
til að núverandi útvarpsleyfum
verði leyft að renna út gildistíma
sinn uppfylli fjölmiðlafyrirtæki
ekki lagaskilyrðin, þó þannig að
ekkert þeirra renni út fyrr en
eftir tvö ár þegar lögin taka
gildi.
Þriðja umræðan
fer fram í dag
Fjölmiðlafrumvarp
BREYTINGARTILLÖGUR við
vændisfrumvarpið svokallaða voru af-
greiddar úr allsherjarnefnd í gær. Í
breytingartillögunum er gert ráð fyr-
ir að hver sem láti af hendi eða lofar
að láta af hendi greiðslu eða annan
ávinning fyrir vændi skal sæta sekt-
um eða fangelsi allt að einu ári. Ágúst
Ólafur Ágústsson, þingmaður Sam-
fylkingarinnar, segir að gangi þetta
eftir verði kaup á vændi refsiverð en
sala ekki.
Kolbrún Halldórsdóttir, þingmað-
ur Vinstri grænna, er fyrsti flutnings-
maður frumvarpsins. Jónína Bjart-
marz, þingmaður Framsóknarflokks-
ins, studdi þessar tillögur með stjórn-
arandstöðunni.
Sigurður Kári Kristjánsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, óskaði
eftir því að breytingartillögurnar
yrðu lagðar fram skriflega en því var
hafnað. Greiddi hann atkvæði gegn
afgreiðslu málsins úr nefndinni en var
í minnihluta ásamt þremur öðrum
þingmönnum Sjálfstæðisflokksins.
Vændisfrum-
varp sam-
þykkt í alls-
herjarnefnd