Morgunblaðið - 19.05.2004, Blaðsíða 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2004 13
FJÁRFESTINGARFÉLAGIÐ
Atorka hf. hefur eignast rúm 68%
hlutafjár í Lífi hf. og ætlar að gera
öðrum hluthöf-
um yfirtökutil-
boð og afskrá fé-
lagið úr
Kauphöll Ís-
lands.
Atorka átti áð-
ur tæplega 41% í
félaginu en
keypti í gær
samtals rúmlega
27% hlut af Afli
fjárfestingarfélagi og dótturfélagi
þess Isla, Eagle Investment Hold-
ings, sem er í eigu Arnar Andr-
éssonar stjórnarmanns í Lífi, MP
fjárfestingarbanka, Andrési Guð-
mundssyni, Sigurði Njálssyni og
Ólafi Njáli Sigurðssyni stjórnar-
manni í Lífi.
Viðskiptin fóru fram á genginu
5,20 og var greitt fyrir hlutina með
eigin bréfum í Atorku á genginu
3,35. Í væntanlegu yfirtökutilboði
til annarra hluthafa verða þeim
boðin sömu kjör. Miðað við gengið
5,20 er heildarhlutafé Lífs metið á
2,2 milljarða króna.
Á ekki heima á markaði
Styrmir Þór Bragason, starfandi
stjórnarformaður Lífs og fram-
kvæmdastjóri Fjárfestingarfélags-
ins Atorku og Afls fjárfestingar-
félags, segir að ekki hafi verið talið
að Líf ætti heima á markaði. Hann
segir að viðskipti hafi verið lítil
með bréf félagsins, eignarhald hafi
verið þröngt, fjárfestar hafi haft
litla trú á því og félagið hafi ekki
haft þörf fyrir að leita eftir auknu
fjármagni á markaði með útgáfu
nýs hlutafjár. Þá fylgi því talsverð-
ur kostnaður að hafa félag skráð á
markað, auk þess sem Líf sé eina
félagið í sínum geira sem sé skráð
og það hafi verið félaginu erfitt.
Styrmir Þór segist telja að til-
boðið til hluthafa sé hagstætt. Síð-
asta gengi hafi verið 4,35 en boðið
verði gengið 5,20. Boðin verði
skipti á bréfum í Atorku, sem þýði
að ef Líf muni ganga vel, og hann
hafi trú á að svo verði, muni hlut-
hafar í Atorku njóta þess.
Líf af markaði
Eignarhlutur Atorku fór úr 41% í 68%
Styrmir Þór
Bragason
CENTURY Aluminum, eigandi
Norðuráls á Grundartanga, hefur
ásamt málmfyrirtækinu Noranda
Inc. fest kaup á súrálsverksmiðju
Kaiser Aluminum í Gramercy í Loui-
siana-ríki í Bandaríkjunum og tengd-
an 49% hlut í báxítnámu á Jamaíku,
Kaiser Jamaica Bauxit Mining. Rík-
isstjórn Jamaíku mun áfram eiga 51%
í báxítnámunni. Kaupverð eignanna
er 23 milljónir dollara samanlagt,
tæplega 1,7 milljarðar króna.
Kaiser hefur verið í greiðslustöðv-
un frá því í febrúar 2002 og hefur
reynt að komast hjá gjaldþroti m.a.
með sölu eigna. Columbia Ventures
Corp., fyrri eigandi Norðuráls, gerði
t.d. tilboð í rafskautaverksmiðju Kais-
er í Washington-ríki í lok febrúar.
Í fréttatilkynningu frá Century Al-
uminum kemur fram að kaupin séu
háð samþykki skiptaréttar og hugs-
anlega verði Kaiser gert að halda
uppboð á eignunum, berist gild tilboð
í þær fyrir uppboðsdag sem ákveðinn
hefur verið snemma í júlí.
Century og Noranda, kanadískt
fyrirtæki sem framleiðir zink, nikkel,
kopar, ál, blý, gull, silfur og fleiri
málma, eiga hvort um sig helmings-
hlut í fyrirtæki sem hyggst kaupa sú-
rálsverksmiðjuna og skipta einnig
jafnt með sér öðru félagi, sem stofnað
er um kaup á báxítvinnslunni.
Náman á Jamaica getur framleitt
um 4,5 milljónir tonna af báxíti á ári.
Náman hefur séð súrálsverk-
0smiðjunni í Gramercy fyrir hráefni
og verksmiðju í eigu annars fyrirtæk-
is í Texas. Súrálsverksmiðjan í Gram-
ercy var reist 1959 og endurnýjuð ár-
ið 2000. Hún getur framleitt 1,25
milljónir tonna af súráli á ári, en
Century og Noranda kaupa hvort um
sig um hálfa milljón tonna súráls á ári
frá Gramercy, fyrir álver Century í
Hawesville í Kentucky og álver Nor-
anda í New Madrid í Missouri.
Century
kaupir
súráls-
verksmiðju
HLUTFALL vanskila af útlánum
innlánsstofnana hafa lækkað úr
3,1% í árslok 2003 í 2,7% í lok fyrsta
fjórðungs þessa árs og hefur van-
skilahlutfallið ekki verið lægra frá
því á fyrri hluta árs 2001, að því er
fram kemur í frétt Fjármálaeftir-
litsins.
Vanskil bæði fyrirtækja og ein-
staklinga hafa farið lækkandi á
fyrstu mánuðum ársins, en Fjár-
málaeftirlitið segir að athuga beri
að á undanförnum misserum hafi
útlán aukist verulega umfram aukn-
ingu vanskila sem skýri lækkandi
vanskilahlutfall. Útlánaaukningin
kunni að koma fram í auknum van-
skilum síðar.
Eins og sjá má á meðfylgjandi
mynd hefur vanskilahlutfall fyrir-
tækja lækkað úr 2,5% í 2,1% á
fyrsta fjórðungi ársins og í frétt
Fjármálaeftirlitsins segir að þetta
skýrist bæði af lækkun vanskila um
rúmlega 7% og aukningu útlána um
12,8%.
!" # $% $ & $
Minnkandi vanskil
● GREININGARDEILD Landsbank-
ans telur að íslenski hlutabréfamark-
aðurinn sé í heild sinni talsvert
yfirverðlagður. Miðað við verðmats-
greiningu deildarinnar er vænt
ávöxtun LAISEX -0,1%, sem er lækk-
un úr 6,9% væntri
ávöxtun frá síð-
ustu útgáfu. LAI-
SEX er vísitala
greiningardeild-
arinnar og inniheld-
ur 18 fyrirtæki í
Kauphöllinni sem standa fyrir 90% af
markaðsverði hlutabréfa á Aðallista.
Í umfjöllun greiningardeildarinnar
segir að fyrir utan þá hækkun sem
orðið hafi á markaðnum þá hafi
ávöxtunarkrafa til hlutbréfa farið
hækkandi vegna hækkunar á
áhættulausum vöxtum.
Yfirverð á markaði
Peningamál Jón Steinsson hag-
fræðingur fjallar á málstofu Seðla-
bankans í dag um stjórntæki pen-
ingamála og hagkvæmni í
fjármálakerfinu. Málstofan er haldin
í fundarsal Seðlabankans, Sölvhóli,
klukkan 15.00.
Í DAG
Ný húsnæðislán
Íslandsbanka
● ÍSLANDSBANKI býður húsnæðis-
kaupendum nú tvo nýja fjármögn-
unarkosti. Annars vegar óverðtryggð
lán í íslenskum krónum til allt að 40
ára og hins vegar óverðtryggð lán án
afborgunar í fimm
ár. Vextir af lán-
unum eru nú
6,63% til 8,88%
eftir veðsetning-
arhlutfalli.
Síðarnefndu lán-
in eru svokölluð kúlulán þar sem af-
borgunin er í einu lagi eftir fimm ár
en vextir eru greiddir allan lánstím-
ann. Veðsetningarhlutfallið vegna
þeirra lána fer ekki yfir 65% en vegna
hinna lánanna fer veðsetningarhlut-
fallið upp í allt að 80%.
Jón Þórisson, aðstoðarforstjóri Ís-
landsbanka, segir að mikill hljóm-
grunnur sé fyrir fjármögnun banka á
húsnæði. Hann segir að frá áramót-
um, þegar Íslandsbanki hafi byrjað
að bjóða erlend og blönduð óverð-
tryggð lán til húsnæðiskaupa, hafi
hlutdeild bankans í nýjum húsnæð-
islánum verið á bilinu 7%–10%.
ÞETTA HELST …
VIÐSKIPTI
● GREININGARDEILD KB banka
spáir því að verðbólgan muni áfram
mælast mikil á næstu mánuðum
og árshækkunin
verði um 3,4%.
Deildin rökstyður
þetta með hækk-
un bensínverðs,
fasteignaverði,
lækkun krónunnar
og taxtahækkunum.
Í haust muni verðbólguþrýstingur
hins vegar heldur hjaðna.
KB banki spáir
3,4% verðbólgu