Morgunblaðið - 19.05.2004, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 19.05.2004, Blaðsíða 16
ERLENT 16 MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÍRASKA framkvæmdaráðið í Bagd- ad er fjölskrúðugur hópur – klerkar með svarta túrbana, konur í hefð- bundnum íslömskum klæðnaði og karlar í jakkafötum – og stjórnmála- skoðanir þeirra eru jafn fjölbreyttar og fatnaðurinn. Frá því að ráðið var skipað í júlí í fyrra hafa meðlimir þess átt í basli með að vinna íraskan almenning á sitt band – og halda lífi. Morðið á Abdel-Zahraa Othman, forseta framkvæmdaráðsins, varpar ljósi á vandræði ráðsins, sem er skipað 25 mönnum og átti að end- urspegla trúar- og þjóðernis- fjölbreytnina í Írak. Othman, sjíti frá borginni Basra í sunnanverðu landinu, beið bana í sprengjuárás í Bagdad á mánudag og er annar fé- laginn í framkvæmdaráðinu sem hefur verið myrtur. Frá því að Bandaríkjamenn og bandamenn þeirra skipuðu fram- kvæmdaráðið fyrir tíu mánuðum hefur það reynt að ávinna sér traust Íraka sem hafa alltaf verið mjög tor- tryggnir í garð þess. Margir Írakar líta á framkvæmdaráðsmennina sem aðkomumenn þar sem tæpur helm- ingur þeirra sneri aftur úr útlegð eftir að stjórn Saddams Husseins var steypt fyrir 13 mánuðum – eða tækifærissinna sem hugsi aðeins um eigin hag. „Aldrei látið sig áhyggjur fólksins varða“ „Framkvæmdaráðið hefur aldrei látið sig áhyggjur fólksins varða,“ sagði Ahmed Jassim, 52 ára bíla- partasali í Bagdad. „Núna hefur for- seti framkvæmdaráðsins verið myrtur. Einhver annar sem reynir að notfæra sér vanda Íraks deyr á morgun.“ Framkvæmdaráðinu hefur gengið illa að bæta opinberu þjónustuna og tryggja öryggi borgaranna. Ekkert lát hefur verið á hryðjuverkum og árásum uppreisnarmanna sem bein- ast oft að fólki sem vinnur fyrir her- námsliðið. „Frá því að við samþykktum að taka sæti í ráðinu gerðum við okkur grein fyrir því að líf okkar væri í hættu vegna allra hryðjuverkanna,“ sagði Salama al-Khufaji, sem var skipuð í framkvæmdaráðið í stað Aquila al-Hashami, kúrdískrar konu sem var myrt nálægt heimili sínu í Bagdad 20. september. „Ég veit að ég er líka skotmark.“ Hættan á árásum á meðlimi ráðs- ins hefur verið tekin alvarlega. Nokkrir af þekktustu ráðsmönn- unum, svo sem kúrdíski leiðtoginn Jalal Talabani og sjítaleiðtoginn Ab- del-Aziz al-Hakim, búa í húsum sem líkjast virkjum, með vopnaða verði, málmleitartæki og steinsteypta múra til að verjast hugsanlegri sprengjuárás. Nokkrir þeirra dvelja á hótelum þar sem öryggisgæslan er mikil, en þar eru einnig embætt- ismenn hernámsstjórnarinnar og starfsmenn erlendra verktaka. Fjölskyldur margra þeirra dvelja erlendis þar sem talið er of hættu- legt fyrir þær að búa í Írak. Nokkrir meðlima ráðsins mæta sjaldan á fundi þess og senda í staðinn full- trúa sína. Framkvæmdaráðið er með aðsetur á Græna svæðinu svo- kallaða, þar sem öryggisgæslan er mjög mikil. Þar eru einnig höfuð- stöðvar hernámsstjórnarinnar. Álitnir réttdræpir svikarar Óvinsældir nokkurra af með- limum ráðsins hafa stuðlað að hætt- unni. Ekki er óalgengt að sjá veggjakrot þar sem ráðsmönnunum er lýst sem „svikurum“ og „banda- rískum útsendurum“ sem Írakar ættu að drepa. Róttækir klerkar fordæma þá í moskunum og kveða svo fast að orði að öfgamenn geta túlkað ummælin sem leyfi til að ráða „svikurunum“ bana. Fyrr í mánuðinum dreifðu upp- reisnarmenn flugritum skammt frá Bagdad þar sem þeir lofuðu Írökum andvirði tæprar hálfrar milljónar króna fyrir að myrða Mouwafak al- Rubaie, sem átti sæti í fram- kvæmdaráðinu en var skipaður þjóðaröryggisráðgjafi í síðasta mán- uði. Margir í borginni Fallujah, þar sem andstaðan við hernámið er mik- il, hafa hótað að myrða sjítann Ahm- ad Chalabi, sem á sæti í fram- kvæmdaráðinu, fari hann til borgarinnar. Þeir skírskotuðu til ummæla hans um að Fallujah væri aðsetur hryðjuverkamanna og hann endurtók þau eftir morðið á mánu- dag. Eiga í basli með að ávinna sér traust og halda lífi Mikil andstaða meðal almennings við ráðið sem er sakað um svik við þjóðina Bagdad. AP. AP Abdel-Zahraa Othman, forseti íraska framkvæmdaráðsins, sem var myrtur á mánudag, var borinn til grafar í gær. Eftirmaður hans, Ghazi Mashal Ajil al-Yawer, gengur hér framhjá mynd af Othman við útförina. Al-Yawer er súnníti og verkfræðingur frá Mosul í norðanverðu Írak. Forseti ráðsins borinn til grafar ’Einhver annar semreynir að notfæra sér vanda Íraks deyr á morgun.‘ Fjölskrúðugur hópur karla og kvenna í framkvæmdaráðinu í Írak MEIRIHLUTI Norðmanna vill ganga í Evrópusambandið, ESB. Kemur þetta fram í könnun skoðanakannanafyrir- tækisins Opinion en alls var leitað álits 1.000 manna frá 10. til 12. maí. Kvaðst 51% vilja að- ild en 36% voru henni andsnú- in. 13% höfðu enga skoðun. Kjell Magne Bondevik, for- sætisráðherra Noregs, sagði á mánudag, að þjóðaratkvæða- greiðsla um aðild yrði hugsan- lega haldin á árunum 2005 til 2010. Forseti í annað sinn LEONEL Fernandez, fram- bjóðandi frjálslyndra, var í fyrrakvöld lýstur sigurvegari forsetakosninganna í Dómíník- anska lýðveldinu en þær fóru fram á sunnudag. Áður hafði fráfarandi forseti, Hipolito Mejia, frambjóðandi jafnaðar- manna, lýst sig sigraðan. Strax við fyrstu tölur var ljóst, að Fernandez myndi sigra örugg- lega en hann gegndi forseta- embættinu frá 1996 til 2000. Fangar brunnu inni AÐ minnsta kosti 100 fangar létu lífið og á þriðja tug slas- aðist í eldsvoða í fangelsi í norðurhluta Hondúras snemma á mánudagsmorgni. „Allt brann,“ sagði Jose Maur- icio Lopez, einn fanganna sem slösuðust, í útvarpsviðtali, sem tekið var við hann á sjúkrahúsi. „Þetta gerðist allt svo hratt á meðan við sváfum. Það kvikn- aði í og þegar við vöknuðum stóðu rúmin okkar og fötin í ljósum logum.“ Um 1.600 fang- ar voru í fangelsinu sem var ætlað að vista 800 manns. Undir fölsku flaggi ÖRYGGISMÁL bresku kon- ungsfjölskyldunnar hafa verið tekin til endurskoðunar enn einu sinni eftir að maður, sem þóttist vera lögreglumaður, komst í fyrradag óhindraður inn í Windsor-kastala ásamt vinkonu sinni og næstum alla leið að svefnherbergi Elísabet- ar drottningar. Var hún að vísu ekki heima, var bara nýfarin, en þetta gerist á sama tíma og hvatt er til í skýrslu að örygg- isgæslan verði stórhert. Óttast Bush MEIRA en þriðjungur ungs fólks í Hollandi telur utanríkis- stefnu George W. Bush Banda- ríkjaforseta vera mestu ógn- unina við heimsfriðinn en í öðru sæti er íslömsk öfgastefna. Kemur það fram í könnun, sem dagblaðið De Volkskrant greindi frá í gær. Var hún gerð meðal 4.500 manns, fólks á aldrinum 12 til 30 ára, og nefndu 38%, einkanlega kven- fólkið, Bush sem mestu ógn- unina. 30% nefndu íslamska öfgastefnu og þar voru karl- menn í góðum meirihluta. Könnunin var gerð áður en myndir voru birtar af mis- þyrmingum bandarískra her- manna á íröskum föngum. STUTT Vilja ganga í ESB SJÖ manns fórust þegar flutningaflugvél hrap- aði til jarðar í Xinjiang-héraði í Kína í gær. Um var að ræða fjögurra hreyfla vél af gerðinni Il-76 en hún hrapaði aðeins tveimur mínútum eftir að hafa tekið á loft. Virtist sem flugstjórinn væri að reyna nauðlendingu en vélin kom niður á baðm- ullarakri og rann eftir honum þar til hún tættist að hluta í sundur í miklum sprengingum. Hafði hún áður runnið yfir fjós en sjálft bændabýlið slapp. Kínverskir fjölmiðlar segja, að flugvélin hafi verið í eigu flugfélagsins Azerbaijan Air en talsmaður þess segir aftur, að hún hafi verið á vegum úkraínska flugfélagsins Skywin. Kín- verskir slökkviliðsmenn vinna hér að því að slökkva elda í flugvélarbrakinu. AP Sjö fórust í flugslysi í Xinjiang-héraði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.