Morgunblaðið - 19.05.2004, Blaðsíða 26
LISTIR
26 MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
STEFANOSKÓRINN frá Svíþjóð
heldur tónleika í Norræna húsinu kl.
19.30 í dag, miðvikudag.
Stefanoskórinn var stofnaður af
Barbro Björklund 1979 í dómkirkju-
söfnuði Uppsala í Svíþjóð og er því 25
ára á þessu ári. Kórinn syngur að
mestu verk án undirleiks (a cappella).
Stefanoskórinn starfar oft með öðrum
kórum og hljómsveitum og hefur tekið
þátt í uppsetningum á stærri verkum,
s.s. Ein deutsches Requiem eftir
Brahms, Requiem eftir Verdi og Te
Deum eftir Arvo Pärts. Næsta haust
mun kórinn flytja Requiem eftir Dvor-
ak í dómkirkjunni í Uppsölum.
Kórinn hefur nokkrum sinnum tekið
þátt í guðsþjónustum Sænska útvarps-
ins, m.a. í þjóðlagatónlistarmessu. Í Ís-
landsferðinni fær kórinn til liðs við sig
tvo unga þjóðlagatónlistarmenn, Cec-
iliu Österholm og Ellinor Björklund
sem leika á fiðlu með snertlum (nyckel-
harpa) sem er aldagamalt sænskt al-
þýðuhljóðfæri. Auk tónleikanna í Nor-
ræna húsinu mun kórinn koma fram í
Hafnarfirði og á Selfossi, taka þátt í
messu í Hallgrímskirkju á sunnudag
og að kvöldi þess dags verður kórinn
með tónleika í Dómkirkjunni.
Barbro Björklund, kirkjutónlistar-
kona og stjórnandi kórsins, nam kór-
stjórn hjá Eric Ericsson við Tónlist-
arháskólann í Stokkhólmi. Sjálf hefur
hún mikla reynslu sem kórsöngvari. Í
samstarfsverkefnum kórsins hefur
Björklund unnið með mörgum kór- og
hljómsveitarstjórnendum, m.a. Inge-
mar Månsson og Per Åke Andersson
sem stjórnar Óslóaróperunni. Hún
stýrir jafnframt barna- og unglingakór
dómkirkjusafnaðarins í Uppsölum.
Stefanos-
kórinn í
Íslandsferð
ERLA B. Axelsdóttir opnar sína 16.
einkasýningu í Kirkjuhvoli á Akra-
nesi á morgun, fimmtudag. Á sýning-
unni eru um fimmtíu verk sem öll eru
unnin á sl. tveimur til þremur árum. Á
efri hæð hússins gefur að líta past-
elmyndir stórar og smáar. Þær vinn-
ur Erla oftast úti við og fangar mótífið
á staðnum. Á neðri hæðinni eru olíu-
verk. Þar brýtur Erla mótífið meira
upp og leyfir því sem hefur áhrif á
hana í nánasta umhverfi að koma til
sín og fléttast inn í verkin. Sýningin
er opin alla daga, nema mánudaga, kl.
15–18. Sýningin stendur til 6. júní.
Eitt verka Erlu B. Axelsdóttur.
Erla B. Axels-
dóttir sýnir í
Kirkjuhvoli
„DÍSURNAR“, kvartett skipaður Eydísi
Franzdóttur óbóleikara, Bryndísi Pálsdóttur
fiðluleikara, Herdísi Önnu Jónsdóttur víólu-
leikara og Bryndísi Björgvinsdóttur selló-
leikara, halda tónleika í Kálfatjarnarkirkju
á Vatnsleysuströnd kl. 17 á morgun, fimmtu-
dag. Á efnisskránni eru kvartettar fyrir óbó
og strengi eftir Britten og Mozart, stef úr
Fellini-myndum eftir Nino Rota í útsetn-
ingum Jóhanns G. Jóhannssonar, tónlistar-
stjóra Þjóðleikhússins, og kvartett fyrir
enskt horn og strengi eftir Francaix.
Óbókvartett Brittens er fantasía æskuár-
anna þrungin af krafti og spennu. Þrátt fyr-
ir að Britten hafi samið kvartettinn aðeins
19 ára gamall er þetta líklega eitt mest
flutta verk hans. Kvartett Mozarts er ein af
helstu perlum kammertónsmíða hans.
Franska tónskáldið Jean Francaix og ítalska
tónskáldið Nino Rota eiga það sameiginlegt
að hafa samið tónlist til að gleðja. Verk
Francaix einkennast af léttleika, glensi og
gríni, þar sem skiptast á hraðar hrynbreyt-
ingar og grípandi laglínur. Kvartettinn fyrir
enskt horn og strengi er þar engin und-
antekning
Tónleikarnir eru styrktir af Menning-
arsjóði FÍH. Dísurnar fjórar: Eydís, Herdís Anna, Bryndís P. og Bryndís B.
Kvartettar í
Kálfatjarnarkirkju
Dagskráin í dag
Kl. 17 Tónlistartorg Kringlunnar
Diddú og Anna Guðný Guðmundsdóttir.
Í tengslum við Tónlist fyrir alla.
Kl. 20 Háskólabíó Olga Borodina,
rússnesk mezzósópransöngkona, syngur
með Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Kl. 20 Þjóðleikhúsið Hibiki, jap-
anskt dansleikhús. Fyrri sýning.
Kl. 17 Borgarleikhúsið Acte, leik-
lestur. Seinni hluti.
Listahátíð
í Reykjavík
14. - 31. maí