Morgunblaðið - 19.05.2004, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 19.05.2004, Blaðsíða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2004 11 ALFREÐ Þorsteinsson, oddviti framsóknarmanna í Reykjavíkurlist- anum, segist hafa fundið fyrir mikilli óánægju meðal framsóknarmanna með fjölmiðlafrumvarp ríkisstjórnar- innar. Sjálfur telur hann að frum- varpið geti stefnt atvinnuöryggi fjölda fólks sem vinnur að fjölmiðlun í Reykjavík í töluverða hættu og lýsti þeirri skoðun sinni á aukafundi borg- arstjórnar í gærkvöld. Þá var á auka- fundinum lögð fram og samþykkt með níu atkvæðum gegn sex svo- hljóðandi ályktun Ólafs F. Magnús- sonar borgarfulltrúa: „Borgarstjórn Reykjavíkur lýsir þungum áhyggjum sínum vegna þess frumvarps um fjölmiðla, sem liggur fyrir Alþingi. Fram hafa komið rök- studdar ábendingar um að samþykkt frumvarpsins í óbreyttri mynd geti leitt til atvinnumissis hundraða borg- arbúa og skertrar afkomu enn fleiri. Borgarstjórn skorar því á Alþingi og sérstaklega þingmenn Reykvíkinga að koma í veg fyrir samþykkt frum- varpsins.“ Í bókun borgarráðsfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins kom fram að þeir telja nauðsynlegt að komið sé í veg fyrir óæskilega eignasamþjöppun á fjölmiðlamarkaði eins og stefnt sé að með fjölmiðlafrumvarpi ríkisstjórn- arinnar. Framsóknarmenn óánægðir „Ég hef, bæði í samtölum við flokksmenn í Reykjavík og víðar, fundið fyrir mikilli óánægju með þetta frumvarp,“ sagði Alfreð í sam- tali við Morgunblaðið. „Ég bendi líka á að það hafa þónokkur framsóknar- félög, bæði í nágrenni Reykjavíkur og úti á landi, ályktað gegn því, ásamt Sambandi ungra framsóknarmanna og ungum framsóknarmönnum í Reykjavík.“ Á fundi borgarráðs í gær var sam- þykkt með fjórum atkvæðum gegn þrem eftirfarandi ályktunartillaga borgarráðsfulltrúa Reykjavíkurlist- ans. Tillagan var svo samþykkt í borgarstjórn með níu atkvæðum gegn sex.: „Vegna umræðu um starfsumhverfi fjölmiðla vill borgar- ráð vekja athygli þingmanna á nauð- syn þess að fjölmiðlar búi við stöð- ugleika og öruggt lagaumhverfi ekki síður en önnur atvinnustarfsemi. Fjölmiðlarekstur og útgáfa er mik- ilvæg atvinnugrein í Reykjavík. Nægir þar að nefna að tvö til þrjú þúsund einstaklingar starfa við fjöl- miðla og þar með eiga jafnmargar fjölskyldur lífsafkomu sína að hluta eða heild undir blómlegum rekstri þeirra. Gera verður þá kröfu að að- gerðir ríkisstjórnarinnar stofni ekki rekstri fjölmiðlafyrirtækja og at- vinnuöryggi starfsfólks í hættu nema brýna nauðsyn beri til og ljóst sé að mildari úrræði nái ekki sömu mark- miðum. Borgarráð varar eindregið við því að málið verði keyrt fram með hraði og hvetur til vandaðrar og ít- arlegrar umræðu áður en lög verði samþykkt frá Alþingi. Borgarráð bendir á að þrátt fyrir þær breyting- ar sem boðaðar hafa verið í meðför- um Alþingis er ljóst að rekstur öfl- ugra fjölmiðla og atvinnuöryggi hundraða er í uppnámi verði frum- varpið að lögum. Alls óvíst virðist hins vegar hvort markmið frum- varpsins um fjölbreytni í umfjöllun og öfluga dagskrárgerð náist. Það er lágmarkskrafa að nægilegur tími gef- ist til að fullkanna hin víðtæku áhrif sem samþykkt frumvarpsins gæti haft í för með sér.“ Ekki verið ályktað vegna annarra starfsmanna Í bókun sinni taka borgarráðs- fulltrúar Sjálfstæðisflokksins undir þá skoðun R-listans að starfsemi fjöl- miðla byggist á öruggu lagaumhverfi og telja fjölmiðlafrumvarpið stuðla að því. „Með því að hafa skýrar reglur um eignarhald og aðkomu markaðsráð- andi fyrirtækja er ekki verið að veikja forsendur fyrir fjölmiðlastarf- semi heldur breikka og styrkja. Frumvarpið hefur nú verið í meira en tvær vikur til umræðu á Alþingi. Um- ræður um það hafa verið mjög ítar- legar og enn er eftir þriðja umræða um frumvarpið. Það hefur því gefist og gefst góður tími til að meta efni frumvarpsins en að baki því liggur ít- arleg rannsókn og skýrsla nefndar á vegum menntamálaráðherra. Hags- munaaðilar og sérfræðingar hafa komið fyrir þrjár nefndir Alþingis vegna málsins. Miklar breytingar eru á starfshátt- um fyrirtækja og starfsfólki fjölgar eða fækkar eftir því hvernig aðstæð- ur eru hverju sinni á atvinnumark- aðinum. Á þetta jafnt við atvinnufyr- irtæki á vegum einkaaðila og opinberra aðila. Það vekur athygli að flutningsmenn þeirrar ályktunartil- lögu sem hér liggur fyrir hafa ekki séð ástæðu til þess að flytja sérstakar ályktunartillögur vegna starfsörygg- is hundraða starfsmanna stofnana og fyrirækja, m.a. hjá Landspítalanum og Íslenskri erfðagreiningu. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks- ins telja framlagða tillögu byggða á röngum forsendum sem engin tilraun hefur verið gerð til að rökstyðja og lýsa þess vegna andstöðu sinni við hana,“ segir í bókun sjálfstæðis- manna. Í bókun Ólafs F. Magnússonar, borgarfulltrúa Frjálslynda flokksins, kom fram stuðningur hans við sjón- armið í bókun borgarráðsfulltrúa R- listans og taldi hann framgöngu Sjálfstæðisflokksins „aumkunar- verða“ í málinu. „Vegna bókunar borgarráðsfull- trúa Sjálfstæðisflokksins er fullljóst að undirritaður mun flytja tillögu í borgarstjórn í haust, ef ríkisstjórnin ræðst enn einu sinni á heilbrigðis- og velferðarþjónustuna í landinu og borginni með niðurskurði á stöðu- gildum og þjónustu Landspítala – há- skólasjúkrahúss. Ekki er að vænta stuðnings Sjálfstæðisflokksins við slíka tillögu, enda flokkurinn hollari ríkisstjórninn en starfsfólki Land- spítala – háskólasjúkrahúss.“ Markaðurinn finnur leiðir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borg- arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sagð- ist ekki myndu fullyrða um viðbrögð markaðarins við breyttu lagaum- hverfi. En sér hefði sýnst að mark- aðurinn væri æði fljótur að finna leið- ir til að halda áfram starfsemi sinni væri hún arðsöm. Engin gögn væru til sem segðu skýrt til um það að til- tekið fyrirtæki myndi hrynja saman yrði fjölmiðlafrumvarpið að lögum. Fjölmiðlafrumvarpið var rætt á fundum borgarráðs og borgarstjórnar í gær Meirihluti borgarstjórnar lýsir þungum áhyggjum Sjálfstæðismenn vilja koma í veg fyrir „óæskilega eignasamþjöppun“ FILIPPUS Darri Björgvinsson, sjö ára úr Mosfellsbæ, varð hlutskarp- astur í samkeppni um nafn á björgunarmiðstöðina í Skógarhlíð 14 sem efnt var til fyrir nokkru. Lagði hann til að henni yrði gefið nafnið „Björgunarmiðstöðin Skóg- arhlíð“ að höfðu samráði við móð- ur sína en björgunarmiðstöðin var vígð í mars síðastliðnum. Það var samdóma álit þriggja manna dóm- nefndar að mæla með nafninu en yfir sex hundruð einstaklingar sendu tillögu og var Filippus einn um að senda umrædda tillögu að nafni. Verðlaun fyrir hana, gjafa- bréf að verðmæti 250 þúsund krónur frá Icelandair, voru afhent í Skógarhlíð 14 í gær að við- stöddum verðlaunahafanum og fjölskyldu hans. Til Bandaríkjanna næsta sumar Filippus var að vonum stoltur með verðlaunin og nafngiftina þegar blaðamaður ræddi við hann í gær og sagðist raunar alls ekki hafa átt von á þesssu. Fjölskyldan ráðgerir að fara til Bandaríkjanna sumarið 2005 og verður gjafabréf- ið notað upp í þá ferð. Fjölmargar tillögur bárust í keppnina, sem fyrr segir, og var fjöldi fólks á bak við ýmsar til- lögur, þar af lögðu flestir til nafn- ið Bjarg, eða 44. Ákveðið var að veita önnur verðlaun fyrir þá til- lögu og voru dregnir út 20 þátt- takendur sem fá senda vandaða sjúkrakassa frá Slysavarnafélag- inu Landsbjörg. Sjö ára drengur hlutskarpastur í samkeppni um nafn Var einn með verðlaunatillöguna Morgunblaðið/Júlíus Forsvarsmenn Björgunarmiðstöðvarinnar Skógarhlíð óska verðlaunahafanum, Filippusi Darra, til hamingju. ÁRSREIKNINGUR Reykjavíkur- borgar var samþykktur samhljóða eftir síðari umræðu í borgarstjórn í gær. Í bókun borgarfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins segir að útgjalda- þensla og skuldasöfnun séu áberandi í fjármálum borgarinnar. Borgarstjóri sagði á fundinum í gær að það væri sérkennilegt að minnihluti borgar- stjórnar reyndi að gera ársreikning- inn tortryggilegan. „Reykjavíkur- borg stendur best af öllum sveitarfélögum í landinu,“ sagði Þór- ólfur Árnason borgarstjóri. Hann sagði stöðu borgarsjóðs góða og stefnt væri að lækkun skulda borg- arinnar. Skuldaaukning vegna framkvæmda í orkumálum Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Sjálf- stæðisflokki sagði að þótt staða borg- arsjóðs væri góð hefðu heildarskuldir borgarinnar og fyrirtækja í hennar eigu aukist gífurlega á síðustu árum og þær skýringar sem meirihluti borgastjórnar hafi gefið á þeirri aukningu væru ekki boðlegar. Í bók- un fulltrúa Sjálfstæðisflokks kemur fram að heildarskuldir borgarinnar, á verðlagi ársins 2002, hafa vaxið úr um 19 milljarða árið 1994 í um 64 millj- arða árið 2003 utan lífeyrisskuldbind- inga. „Allir tilburðir R-listans til að tengja þá miklu skuldasöfnun við framkvæmdir Orkuveitunnar á Nesjavöllum fá ekki staðist enda framkvæmdir við Nesjavallavirkjun árin 1994–2003 einungis um fjórðung- ur af skuldaaukningu borgarinnar á þessu tímabili,“ segir í bókuninni. Alfreð Þorsteinsson R-lista sagði málflutning minnihlutans ekki ganga upp, borgarfulltrúar minnihlutans væru hlynntir fjárfestingum í orku- málum en á móti lántökum til að standa undir þeim. Alfreð sagði nauð- synlegt að minnihlutinn gerði sér grein fyrir að lán til virkjunarfram- kvæmda og dreifikerfa væru ekki eyðslulán heldur langtíma fjárfest- ingar. Borgarstjóri minnti á að það fé sem sett væri í dreifikerfi væri ára- tugafjárfestingar. Ekki rétt að setja allt í eina skuldasúpu Guðrún Ebba Ólafsdóttir Sjálf- stæðisflokki nefndi að það vantaði „al- vöru heildstæða úttekt á fjármálum borgarinnar“. Stefán Jón Hafstein R- lista sagði það hins vegar ekki rétta greiningu á fjárhagsástandi borgar- innar hjá Sjálfstæðisflokki að „setja allt í eina skuldasúpu“. Nær væri að skoða hvern málaflokk fyrir sig. Með- al þeirra góðu tíðinda sem að sögn Stefáns Jóns felast í ársreikningnum er hversu vel forystumenn í fræðslu- málum hafa náð tökum á rekstrinum. „Það er öllum ljóst að R-listinn hef- ur nú sem fyrr lítil tök á fjármálum borgarinnar. Allar lykiltölur í reikn- ingum sýna, svo ekki verður um villst, áframhaldandi verulega skuldasöfn- un og það eina sem 3 ára fjárhags- áætlanir borgarinnar sýna er það sama – stöðug skuldasöfnun á skulda- söfnun ofan,“ segir í bókun borgar- fulltrúa Sjálfstæðisflokks. Ólafur F. Magnússon Frjálslynda flokknum óskaði eftir því við borgar- stjóra að hann greindi frá því hve mikill kostnaður hefði fallið á borgina vegna nýbyggingar Orkuveitu Reykjavíkur og hversu mikið hefði komið í hlut borgarsjóðs á móti vegna sölu á eignum. Hann tók undir með fulltrúum Sjálfstæðisflokks og sagði bætta stöðu borgarsjóðs milli ára eiga ekkert skylt við góða fjármálastjórn. Hann sagðist þó ekki telja skulda- söfnun borgarinnar vera eins alvar- legt mál og fulltrúar Sjálfstæðisflokks vildu vera að láta. Risastórt stökk hefði verið tekið fram á við í þjónustu borgarinnar og það væri jákvætt. Staðan góð en skuldir áhyggju- efni Ársreikningar Reykjavíkurborgar TILBOÐ voru opnuð í tveimur út- boðum hjá Landsvirkjun í gær vegna framkvæmda við Kára- hnjúkavirkjun, annars vegar í loku- búnað virkjunarinnar og hins vegar í strengjalagnir að vinnubúðum við Ufsarlón. Fimm tilboð bárust í lokubúnað- inn og voru þau öll vel yfir kostn- aðaráætlun Landsvirkjunar og ráð- gjafa hennar, upp á rúmar 569 milljónir króna. Lægsta tilboð kom frá ítölsku fyrirtæki, ATB Riva Calzoni, upp á 717 milljónir króna eða 25% yfir áætlun. Næstlægsta boð, 824 milljónir, kom frá portú- galska fyrirtækinu Alstom SA, og síðan buðu þýsku fyrirtækin DSD Stahlbau 832 milljónir og VA Tech Hydro 983 milljónir. Hæsta boð kom frá GE Hydro, eða upp á 1.076 millj- ónir króna. Verkið felst í deilihönn- un, efni, framleiðslu, flutningi, upp- setningu og prófun á inntaksristum, lokubúnaði og stálhurðum, með til- heyrandi afl- og stjórnbúnaði. Fjögur tilboð, öll undir áætlun, bárust í lagningu rafstrengs og ljós- leiðara frá Axará á Fljótsdalsheiði að væntanlegum vinnubúðum við Ufsarlón. Ingileifur Jónsson ehf. bauð lægst, 13,2 milljónir, og síðan voru Austfirskir verktakar hf. með ríflega 18 milljóna tilboð, Grafan með 18,9 milljónir og Ljósvirki Cabl- ox ehf. með rúmar 22 milljónir. Kostnaðaráætlun var upp á 30,8 milljónir króna. Kárahnjúkavirkjun Tilboð í lokubúnað hátt yfir áætlun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.