Morgunblaðið - 19.05.2004, Qupperneq 18
GÓÐUR liðsauki hefur heimsótt nemendur
Tjarnarskóla í Reykjavík í vetur. Gerður
Colot sem er af bandarísku bergi brotin,
Íslendingur þó og virkur þátttakandi í for-
eldrahópnum, hefur heimsótt nemendur
reglulega og eflt með þeim notkun ensk-
unnar. Að sögn Margrétar Theódórsdótt-
ur, skólastjóra Tjarnarskóla, er hug-
myndaflug Gerðar óþrjótandi, en hún
hefur spjallað við nemendur og sett upp
leiki og fjölbreyttar aðstæður þar sem allt
fer fram á enskri tungu.
Margrét segir ómetanlegt lið í foreldrum
í námsferlinu. Því sé afar skemmtilegt að
sjá virka þátttöku þeirra inni í skólanum.
Góður liðsauki
í enskukennslu
Morgunblaðið/Hafþór
Húsavík | Sunneva Birgisdóttir er ung
stúlka á Húsavík sem á ættir að rekja til
Ungverjalands og er hún fermdist í Húsa-
víkurkirkju á dögunum var hún klædd
ungverskum hátíðarbúningi. Afi Sunnevu,
Mikael Þórðarson, er með henni á mynd-
inni en hann var einn þeirra flóttamanna
frá Ungverjalandi sem komu hingað til
lands árið 1956.
Fermdist í
ungverskum
hátíðarbúningi
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Ending og gæði lerkis | Rannsóknastöð
skógræktar á Mógilsá hefur sett upp tilraun
þar sem kanna á endingu og gæði lerkis við
notkun utanhúss. Þessi
rannsókn er styrkt af
SamNordisk Skogs-
forskning til þriggja ára.
Að rannsókninni standa
aðilar frá Norðurlönd-
unum fimm ásamt Lit-
haugalandi, segir á vef
Skógræktar ríkisins. Íslensku þátttakend-
urnir eru Rannsóknastöð skógræktar á Mó-
gilsá í samvinnu við Skógrækt ríkisins á
Hallormsstað. Verkefnastjóri á Íslandi er
Ólafur Eggertsson, Mógilsá.
Markmiðið er að kanna endingu og gæði
lerkis við notkun utanhúss, en lerki er ein af
fáum trjátegundum sem hafa náttúrulega
vörn gegn veðrun og rotnun. M.a. verða
könnuð upptaka vatns, stöðugleiki, styrkur,
eðlisþyngd, veðrun og ending.
Hvatinn að þessari rannsókn er að á síð-
ustu áratugum hefur verið mun erfiðara að
fá við sem hefur mikla endingargetu, t.d.
hægvaxta skógarfuru. Viður í dag er ekki
eins endingargóður og á árum áður og þarf
því að verja hann á ýmsa vegu. Íslenska
lerkið, sem notað er við rannsóknirnar, kem-
ur frá Hallormsstað og var gróðursett 1937.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Nánast óbreytt sala | Samkvæmt yfirliti
yfir sölu og framleiðslu á nautakjöti hefur
orðið 5,7 tonna söluaukning síðustu 12 mán-
uði miðað við sama tímabil árið áður eða
0,1%. Tölurnar sýna mjög mikinn samdrátt
í framleiðslu á kýrkjöti, en slátrað var 725
gripum færra miðað við sama tímabil í
fyrra. Slátrun í ungnauta- og úrvals-
flokkum tók hins vegar kipp, að því er fram
kemur á bondi.is.
Sala nautgripakjöts í apríl var nokkuð
meiri en á sama tíma í fyrra, en í apríl í ár
var salan 284,280 tonn miðað við 273,5 tonn
árið áður.
Stínu veitingar | Gengið hefur verið frá
samningum um veitingasölu á landsmóti
hestamanna í sumar og mun danska fyr-
irtækið Stina’s Catering sjá um þau mál.
Fyrirtækið er í eigu hinnar íslensku Krist-
ínar Guðmundsdóttur, sem er betur þekkt
sem Stína og fyrirtækið er kennt við, að því
er fram kemur á bondi.is
Stína hefur unnið í veitingageiranum í
meira en aldarfjórðung og hefur mikla
reynslu af viðamiklum verkefnum. Hún hef-
ur m.a. unnið hjá hinu þekkta ráðstefnuhót-
eli Radisson SAS í Kaupmannahöfn og lærði
til konditors í Kransakökuhúsinu þar í borg.
Stofnfundur und-irbúningsfélags umstofnun Fugla-
athugunarstöðvar á Höfn
verður í dag, miðvikudag-
inn 19. maí kl. 17, í fund-
arsalnum í Nýheimum.
Formaður Félags fugla-
áhugamanna á Hornafirði
setur fundinn og kynnir
verkefnið. Einnig verður
myndasýning frá ferð
undirbúningshóps til
fuglaathugunarstöðva í
Danmörku og Svíþjóð.
Fjölmörg félög og stofn-
anir eystra koma að stofn-
un félagsins. Nátt-
úrufræðistofnun er boðið
að gerast aðili að félaginu.
Almenningi, fyrirtækjum
og stofnunum sem áhuga
hafa á því að gerast stofn-
aðilar verður gefinn kost-
ur á því að skrá sig.
Fuglaathugun
Fagridalur | Nemendur
og kennarar yngri hóps í
umhverfismennt og ný-
sköpun í Grunnskóla Mýr-
dalshrepps í Vík náðu sér
í 50.000 kr. verðlaun í
hugmyndasamkeppni
Landsbankans: Hvernig
sérð þú miðbæ Reykjavík-
ur? Hugmyndirnar voru
að byggja upp alls konar
ævintýraveröld, svo sem
tröllaland, þar sem m.a.
Grýla, Leppalúði og jóla-
sveinarnir væru með mat-
sölustað.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Nemendur þriðja og fjórða bekkjar Grunnskóla Mýr-
dalshrepps ásamt Kolbrúnu Hjörleifsdóttur og Símoni
Þór Waagfjörð með verðlaunin.
Nýsköpunarnám
Hreiðar Karlssonfékk nóg af lát-unum vegna fjöl-
miðlafrumvarps:
Þjóðin hefur heyrt og séð
hnútur fljúga milli granna.
Furðu slegin fylgist með
fíflalátum höfðingjanna.
Davíð Oddsson spilaði
víst badminton við Ólaf
Ragnar Grímsson í gamla
daga. Sigurður Ingólfs-
son orti:
Endalaust er þvælt og þráttað,
þusað bæði lon og don
höfðingjarnir hefðu átt að
halda sig við badmínton
Kristján Bersi Ólafsson:
Á æskuskeiði undu tveir
við íþrótt sína lon og don.
Á gamals aldri eru þeir
enn að spila badminton.
Hjálmar Freysteinsson:
Ágætan þeir áttu fund
í eina og hálfa klukkustund,
þrættu lengi lon og don
um leikreglur í badminton.
Af badminton
pebl@mbl.is
Hólmavík | Áhugasamir þriðju-
bekkingar á Hólmavík heim-
sóttu Þverárvirkjun ásamt
kennara sínum nýlega. Skoð-
unarferðin var farin að frum-
kvæði krakkanna sjálfra, en
þau höfðu verið að fræðast um
fossa og virkjanir í tengslum
við námsefnið „Komdu og skoð-
aðu land og þjóð“. Þorsteinn
Sigfússon, svæðisstjóri Orku-
bús Vestfjarða, tók á móti
hópnum og byrjaði á að sýna
þeim stífluna þar sem Þyr-
ilsvallavatn myndar uppistöðu-
lón fyrir virkjunina. Útskýrði
hann fyrir börnunum ferli
vatnsins frá því snjórinn bráðn-
ar í fjöllunum og þar til vatnið
fer gegnum virkjunina. Börnin
fengu því næst að skoða rör
eins og þau sem vatnið ferðast í
en þvermál röranna er svipað
og hæð barnanna. Loks var
gengið um virkjunarhúsið og
fræðst um tækjabúnaðinn og
annað áhugavert innan dyra.
Þverárvirkjun var tekin í
notkun laust fyrir áramót árið
1953 en vígð í september 1954.
Virkjunin á því fimmtíu ára
vígsluafmæli í haust. Síðan hef-
ur hún verið stækkuð oftar en
einu sinni, síðast 2002 þegar
byggt var virkjunarhúsið og afl-
ið aukið úr 1176 kw í 2430.
Morgunblaðið/Kristín SigurrósKrakkarnir í þriðja bekk skoðuðu Þverárvirkjun.
Áhugasöm í skoðunarferð
Þverárvirkjun
♦♦♦
Borgarnes | Nemendur í 1. bekk í
Grunnskólanum fengu gefins reið-
hjólahjálma nýlega eins og önnur
börn á landinu sem eru fædd
1997. Kiwanis, Eimskip og Flytj-
andi standa sameiginlega að gjöf-
inni og afhentu Kiwanismenn í
Borgarnesi krökkunum hjálmana.
Um leið kom lögreglan í heimsókn
og fræddi börnin um hjólreiðar og
öryggisútbúnað. Kennd var rétt
notkun á reiðhjólahjálmum og
áhersla lögð á mikilvægi þess að
vera alltaf með hjálm á höfðinu
þegar verið er að hjóla. Voru
börnin einnig beðin að minna eldri
systkini og foreldra á þetta örygg-
isatriði.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Alda Baldursdóttir lögreglumaður sýnir rétta notkun reiðhjólahjálma á
Erlu Björk Kristjánsdóttur, nemanda í 1. bekk.
Alltaf með hjálm á höfðinu