Morgunblaðið - 19.05.2004, Page 23
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2004 23
Ársfundur Háskóla Íslands verður haldinn í Öskju, hinu
nýja náttúrufræðahúsi Háskólans í Vatnsmýrinni,
miðvikudaginn 26. maí 2004 kl. 11.00 - 12.00.
Dagskrá
1. Páll Skúlason háskólarektor setur fundinn, fer yfir starfsemi
síðasta árs og fjallar um meginatriði í starfi Háskólans.
2. Ingjaldur Hannibalsson, formaður fjármálanefndar
háskólaráðs, gerir grein fyrir reikningum ársins 2003 og kynnir
fjárhag Háskólans.
3. Hörður Filippusson, forseti raunvísindadeildar, kynnir
starfsemi Háskólans sem fram fer í Öskju.
4. Rektor svarar fyrirspurnum.
Að loknum ársfundi verður boðið upp á létt hádegissnarl.
ÁRSFUNDUR
ÍSLAND á iði er fræðslu- og hvatn-
ingarverkefni á vegum Íþrótta-
sambands Íslands. Meginmarkmið
þess er að hvetja og styðja lands-
menn á öllum aldri til aukinnar
hreyfingar og heilsueflingar. Hjólað
í vinnuna er einn liður í að nálgast
þetta markmið og var það verkefni í
fyrsta skipti haldið í fyrra. Þá stóð
það yfir í eina viku, en nú stendur
það yfir í tvær vikur, frá 17.–28. maí.
Að sögn Gígju Gunnarsdóttur, sviðs-
stjóra almenningsíþróttasviðs, er
sérstök áhersla lögð á þátttöku fyr-
irtækja um allt land. Í fyrra tóku 45
fyrirtæki þátt í átakinu, en nú þegar
hafa 65 fyrirtæki skráð sig til leiks.
Medcare Flaga bar sigur úr být-
um í keppninni í fyrra og því er
nokkuð ljóst að fyrirtækið á titil að
verja. „Við ætlum að veita harða
keppni í ár og höfum skipt fyrirtæk-
inu upp í nokkur keppnislið, sem öll
ætla að standa sig og keppa einnig
hvert við annað, en auk hjólreið-
anna, gilda bæði hlaupnir og gengn-
ir kílómetrar. Hér ríkir mikill
keppnisandi því við erum bæði að
keppa við önnur fyrirtæki og inn-
byrðis innan fyrirtækisins, segir
Búlgarinn Marco Mintchev, sem bú-
ið hefur á Íslandi í sjö ár og starfar
nú sem hönnuður hjá Medcare
Flögu.
Marco er maðurinn sem heldur
kílómetrafjölda samstarfsmanna
sinna til haga ásamt liðsstjórum og
sér um að stappa stálinu í sína
menn. Vegalengdirnar eru svo
skráðar daglega inn á heimasíðu ÍSÍ
þar sem fylgjast má með frammi-
stöðu annarra fyrirtækja. Marco,
sem stundað hefur hjólreiðar frá
þriggja ára aldri og hjólar 10–15 km
á venjulegum degi, segir að hjól-
hesturinn sé frábær ferðafélagi og
Ísland ævintýraland hjólreiða-
mannsins enda flykkist erlendir
fjallahjólreiðamenn til landsins. „Við
ætlum aðeins að gefa í meðan á
átakinu stendur. Við keyptum kíló-
metramæla, sem starfsmenn geta
fengið lánaða og svo er gott að gera
sér grein fyrir vegalengdum á slóð-
inni www.borgarvefsja.is
Frábær aðstaða
Hjá Medcare Flögu starfa sam-
tals 66 manns og lætur nærri að um
helmingur þeirra hjóli reglulega til
og frá vinnu. Fyrirtækið er sér mjög
meðvitandi um kosti hreyfing-
arinnar og gerir starfsmönnum sín-
um sem auðveldast fyrir að stunda
þetta áhugamál sitt. Fyrirtækið var
flutt í björt og falleg húsakynni við
Síðumúla 24 í janúar síðastliðnum
þar sem m.a. er að finna hjólastanda
utan dyra, hjólageymslu innan dyra,
búnings- og sturtuaðstöðu auk borð-
tennis- og leikfimisalar, en blásið er
í flautu klukkan tíu á hverjum
morgni til merkis um að komið sé að
tíu mínútna teygjuæfingaþætti. „Á
föstudögum teygjum við í takt við
tónlist og má fastlega búast við að
Evróvisjón-lögin komi sterk inn
næsta föstudag,“ segir Marco. Inn-
an fyrirtækisins eru svo hópar sem
stunda knattspyrnu og badminton í
hádeginu auk þess sem hlaupahópar
fara á stjá þrisvar í viku. Á hverju
sumri efnir fyrirtækið til fjöl-
skylduhjólaferða og var síðast hjól-
að frá Öskjuhlíð, yfir í Fossvogsdal
og upp í Elliðaárdal þar sem var
grillað og farið í leiki. Þess má geta
að Medcare Flaga var valið fyr-
irtæki ársins í árlegri könnun Versl-
unarmannafélags Reykjavíkur, en
niðurstöður könnunarinnar voru
kynntar með viðhöfn í síðustu viku.
Í tilefni af átakinu „Hjólað í vinn-
una“ hyggst ÍSÍ standa fyrir skrúð-
reið næsta fimmtudag, uppstigning-
ardag, frá Laugardalsvelli klukkan
14.30, um Laugaveg niður að Ing-
ólfstorgi. Þar munu hjóla fremst í
flokki Siv Friðleifsdóttir umhverf-
isráðherra og Ellert B. Schram, for-
seti ÍSÍ. Markmið hjólalestarinnar
er að vekja enn frekari athygli á
hjólhestinum og þeim kostum, sem
honum fylgja.
HJÓLREIÐAR|Hjólað í vinnuna er átaksverkefni ÍSÍ
Hjólhesturinn er frábær ferðafélagi
Morgunblaðið/Ásdís
Hjólaáhugi: Starfsfólk Medcare Flögu notar hvert tækifæri sem gefst til að fara út að hjóla.
Óvíða í fyrirtækjum er
jafnmikill áhugi á hjól-
reiðum og hjá starfs-
mönnum Medcare
Flögu, en þar hjólar um
helmingur í og úr vinnu.
Jóhanna Ingvarsdóttir
þáði morgunsopann með
sveittum hjólagörpum.
TENGLAR
..............................................
http://hjolad.isisport.is
„ÞETTA VAR afar hressandi í góða
veðrinu. Búinn að hjóla 50 kílómetra í
morgun og ætla í 70 kílómetrana
seinni partinn,“ sagði Böðvar Þór-
isson, framkvæmdastjóri sölu- og
markaðssviðs hjá Medcare Flögu,
þegar hann mætti til vinnu sinnar löð-
ursveittur sl. mánudagsmorgun með
jakkafötin í poka. Böðvar hefur verið
með óbilandi hjóladellu frá því hann
var smágutti, en sjaldan meiri en nú.
„Hjólreiðarnar eru algjör snilld og
rækta bæði líkama og sál. Hægt er að
tengja alla fjölskylduna í þessu
áhugamáli auk þess sem ég er í góð-
um tíu manna hjólaklúbbi, sem við
köllum saumaklúbbinn. Meðlimir
hans hittast á hverju þriðjudags-
kvöldi til að hjóla saman og allt sum-
arið er skipulagt vel fram í tímann. Í
fyrrasumar hjóluðum við Laugaveg-
inn, 55 kílómetra, á einum degi og í
sumar eru fyrirhugaðar tvær slíkar
ferðir. Þetta tekur auðvitað á, en við
lítum á þetta sem hópefli í heilbrigði.“
Að sögn Böðvars eiga mörg sveit-
arfélög þakkir skildar fyrir sýnda við-
leitni í því að bæta aðgengi fyrir hjól-
reiðamenn. Nú sé nánast hægt að
fara á reiðhjólum um allt án þess að
vera í bráðri lífshættu þótt ákveðna
hjólatengingu kunni að vanta á milli
sveitarfélaga. „Maður er á hjólastíg-
um í borginni frá austri til vesturs án
þess að þurfa yfir götu, en ætli maður
að fara frá Reykjavík til Hafn-
arfjarðar, vantar að tengja saman
stíga.“
Svæfir börnin á hjóli
Dellukarlinn Böðvar
býr að mörgum
reiðhjólum, en
neitar því alfarið að einhver flottræf-
ilsháttur ráði ríkjum í vali. „Sum
minna hjóla hafa kostað mig mörg
hundruð þúsund, en fyrir mér er það
aðeins eðlilegur hluti af áhugamálinu.
Í mínum huga er aðalatriðið að hjólið
virki eins og til er ætlast.“
Í sumarfríinu ætlar Böðvar, ásamt
eiginkonu og börnum, 4 og 6 ára, í
vikulangan hjólatúr um skosku há-
löndin. „Við komum til með að leigja
okkur hjól úti og verður yngsti fjöl-
skyldumeðlimurinn dreginn í kerru.
Börnin eru orðin býsna vön hjóla-
kerrunni því ég svæfi þau oft á kvöld-
in með því að setja þau í kerruna í
náttfötunum, hjálminn á og sængina.
Svo fer ég bara út að hjóla,
svæfi börnin og svala
minni hreyfiþörf í leið-
inni. Þeim finnst þetta
æðislegt og allir eru
sáttir.“
DELLUKARLINN| Böðvar Þórisson hjólreiðakappi
Svæfir börnin í hjólatúr
M
or
gu
nb
la
ði
ð/
Þ
Ö
K
Böðvar Þórisson með
börnunum sínum,
Sigfinni, 6 ára, og
Kristínu, sem er að
verða 4 ára, í
hjólakerru.
LENGI hefur verið talið að vítam-
ín gætu verndað hjartað en nú
benda rannsóknir vísindamanna
við New York-háskóla til þess að
inntaka vítamína geti líklega auk-
ið slæma kólesterólið í lík-
amanum, að því er fram kemur á
vef BBC.
E- og C-vítamín, auk betakarót-
íns, geta stöðvað niðurbrot lifr-
arinnar á kólesteróli á frumstigi,
að því er rannsóknirnar benda til,
og vísindamennirnir segjast því
ekki geta mælt með því að fólk
taki inn vítamín.
Þessi vítamín eru andoxunar-
efni og eru gagnleg til að verjast
sýkingum sem herjað geta á lík-
amann, en nú hafa komið í ljós
þessi neikvæðu áhrif á kólester-
ólið. Vísindamennirnir leggja þó
áherslu á að frekari rannsóknir
séu nauðsynlegar til að staðfesta
þessar niðurstöður.
HEILSA
Vítamín
auka kól-
esteról
Morgunblaðið/Arnaldur