Morgunblaðið - 19.05.2004, Page 38

Morgunblaðið - 19.05.2004, Page 38
MINNINGAR 38 MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Einar Ólafssonfæddist á Eski- firði hinn 11. maí 1925. Hann lést á líknardeild Land- spítalans í Kópavogi 8. maí síðastliðinn. Hann var sonur hjónanna Ólafs Hjalta Sveinssonar frá Firði í Mjóafirði, f. 19.8. 1889, d. 18.11. 1963, og Guð- rúnar Bjargar Ingv- arsdóttur, frá Ekru í Norðfirði, f. 1.12. 1896, d. 3.12. 1967. Einar var sjöundi í röð þrettán barna þeirra hjóna. Hin eru: Krist- björg, Sveinn (látinn), Margrét, Anna, Ingvar, Guðlaug Lovísa, Hjalti, Katrín (látin), Sigríður (lát- in), Ari (látinn), Snorri og Erling- ur. Hinn 1. janúar 1949 kvæntist Einar Hansínu Þorkelsdóttur, f. 22.4. 1927 á Siglufirði. Foreldrar hennar voru Þorkell Kristinn Svarfdal Sigurðsson, og Jóhanna Guðríður Kristjánsdóttir. Einar og Hansína eignuðust tíu börn. Þau eru: 1) Unnur, f. 20.10. 1947, gift Rafni Baldurssyni, börn þeirra eru: Baldur Orri, Ólafur Snorri og Halldóra Björg, fyrir á Rafn dæt- Gísla Guðmundssyni, börn þeirra eru Guðmundur Borgar, Ingvar og Signý. 9) Ari, f. 25.1. 1965, kv. Berglindi Jónsdóttur, börn þeirra eru Ísar Kári, Ástrós Birta og Arn- ar Snær, fyrir á Ari dótturina Lenu Margréti. 10) Snorri Páll, f. 26.6. 1968, kv. Elínu Láru Jóns- dóttur. Börn þeirra eru: Telma Huld, Sigurpáll Viggó og Hólm- fríður. Einar var útsölustjóri hjá ÁTVR, fyrst við Skúlagötu og síð- ar við Lindargötu í Reykjavík. Hann tók virkan þátt í verkalýðs- og félagsmálum. Hann var for- maður SFR frá 1969 til 1990. Einar var í aðalstjórn BSRB, kjörinn gjaldkeri 1962 til 1991. Hann var í stjórn fulltrúaráðs orlofsheimila BSRB frá 1970. Fulltrúi BSRB í framkvæmdastjórn kjararann- sóknarnefndar opinberra starfs- manna 1987 til 1991, í aðalkjara- samninganefnd BSRB við ríkið til fjölda ára eða þar til samningsrétt- ur opinberra starfsmanna breytt- ist og var færður á hendur aðild- arfélaganna. Einar var í stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins til 1993, og fulltrúi BSRB í Verð- lagsnefnd frá 1973 og í viðræðu- nefnd bandalagsins um ný samn- ingsréttarlög opinberra starfsmanna árið 1986. Einar og Hansína bjuggu lengst af í Kópavogi en síðustu 11 árin í Hafnarfirði. Útför Einars verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. urnar Margréti og Hrund. 2) Guðrún, f. 28.9. 1948, gift Hirti Páli Kristjánssyni, synir þeirra eru: Kristján Rafn, kv. Jónu Ósk Lárusdóttur en þau eiga tvo syni, og Einar Þór, f. 21.2. 1977. 3) Þorkell, f. 16.3. 1951, kv. Rut Marsibil Héðinsdótt- ur, börn þeirra eru: Einar Örn, kv. Þuríði Aðalsteinsdóttur og eiga þau eina dóttur, Héðinn Ingi í sambúð með Ásu Dóru Finnbogadóttur, og Hansína. 4) Gerður, f. 26.4. 1952, gift Þorsteini Sveinbjörnssyni, börn Þeirra eru: Ingibjörg, gift Ólafi I. Kjartanssyni þau eiga tvær dætur, Sveinbjörn Gísli, Einar Hans, hann á eina dóttur, og Þóra. 5) Ólafur Hjalti, f. 8.7. 1955. Börn hans eru, Unnur Helga, í sambúð með Haraldi Gunnarssyni og eiga þau þrjú börn, og Einar. 6) Sveinn Ingvar, í sambúð með Karin Marg- areta Johansson, þau eiga soninn Erik Svein og fyrir á Sveinn Atla Má, Egil, Snorra Pál og Anitu Hrund. 7) Pálmi, f. 23.2. 1959, dæt- ur hans eru, Anna Rut og Alma Rún. 8) Jóhanna, f. 20.11. 1960, gift Pabbi talaði ætíð hlýlega um fóstra sinn á Hoffelli við Hornafjörð. Þangað var hann sendur átta ára gamall og dvaldi nær samfleytt til sextán ára aldurs. Hann sagði að þar hefðu lífs- skoðanir sínar mótast og hann lært þar allt sem máli skipti í lífinu. Þar var manngæskan, hjálpsemin, vinnu- semin og virðingin fyrir náttúrunni í fyrirrúmi. Pabbi var hamingjusamt barn og unglingur. Við munum eftir sendingum seinna meir úr sveitinni, á barnmargt heimili pabba og mömmu við Þinghólsbraut. Þá var tekið til við að reyta fugla, svíða hausa, salta og reykja kjöt og engu hent. Matvendni var ekki liðin og við minnumst þess að til að fá okkur krakkana til að borða augu, tungu, eyru og annað óæti úr sveitasendingunum hafði hann þann háttinn á að byrja að borða sjálfur og sá sem horfði á gat ekki annað en fengið matarlyst líka. Pabbi og mamma innrættu með okkur þær skyldur að allir ættu að taka þátt í heimilishaldinu. Okkur var kennt að teygja þvott og strauja, skúra og skrúbba Við minnumst til- standsins, einu sinni sem oftar, þegar von var á mömmu heim með nýjan fjölskyldumeðlim. Pabba var í mun að allt væri hreint og klárt og við krakk- arnir klæddir í okkar fínasta púss. Þá var gott að eiga að Grétu systur hans á efri hæðinni og afa og ömmu á hæð- inni þar fyrir ofan. Svo fylgdumst við systur grannt með umræðunni um hve nýja barnið væri dásamlegt, hvort Ekru-svipurinn væri sterkari en Fjarðar-svipurinn. Rétt eins og annað kæmi ekki til greina. Yndislegar minningar eigum við um jólahald á heimilinu. Pabbi eldaði rjúpur sem hann veiddi sjálfur og eft- ir matinn var dansað og sungið í kringum jólatréð og endað á laginu, Jón trúður, sem ennþá er skyldusöng- ur allra í fjölskyldunni við jólatréð. Minnisstæðar eru helgarnar þegar búið var að baða og hátta allan skar- ann. Þá var sest í stofu, pabbi spilaði á orgelið og svo sungu hann og mamma saman, oft tvíraddað, ýmis söng- og dægurlög þessara ára. Harry Bela- fonte rís hátt í minningunni og fór pabbi á kostum í uppáhaldslaginu sínu „Day O“. Smátt og smátt lærðum við lögin og textana og fengum inn- göngu í kórinn. Aldrei leið pabba bet- ur en þegar fjölskyldan var saman komin, t.d. á gamlárskvöld, þegar pabbi stýrði bæði söng og sprengjum. Þegar börnin voru orðin sjö og þröngt um okkur á Þinghólsbrautinni byggði pabbi stórt hús á lóð úr landi Guðnýjar í Tungufelli við Fífu- hvammsveg. Þar var stærsta her- bergið þvottahúsið með auka baðkari og stórum tausuðupotti. Úti á lóð voru settir upp rammgerðustu snúrustaur- ar enda var skítalækurinn og heiðin aðalleiksvæði okkar krakkanna. Mikl- ir kærleikar voru með fjölskyldum okkar og Guðnýjar og Ingu dóttur hennar í Tungó. Margar sögurnar sagðar yfir kaffibollum, spáð og mikið hlegið. Pabbi minntist oft þessara ná- granna okkar með gleði, hlýju og eft- irsjá. Í kringum kosningar var pabbi í essinu sínu. Framsóknarmennskan var honum í blóð borin og við börnin alin upp í því að trúin á flokkinn væri sú eina rétta. Heimilið var lagt undir kosningaskrifstofur, húsið á Fífó borðalagt með slagorðum eins og „Ungan mann á þing“ eða „Framsókn framar öllu“. Hann átti auðvelt með að hrífa fólk með sér og fékk unga sem gamla úr nágrenninu í kosninga- vinnu og plataði ótrúlegasta fólk til að ganga í flokkinn. Við systurnar lítum á það sem for- réttindi að vera elstar í hópnum og hafa átt æskuár okkar með pabba á þessum tíma. Seinna, þegar fé- lagsmálin fóru að taka meiri tíma frá fjölskyldunni kom sér vel sú framþróun sem orðin var í heimilis- tækjunum. Eftir að tíunda barnið fæddist skellti mamma sér í bílpróf því nú var pabbi ekki alltaf til taks. Pabba var mjög annt um að sam- heldni ríkti innan fjölskyldunnar. Ef hann og mamma urðu þess áskynja að einhvers staðar hlypi snurða á þráð- inn gengu þau í málin. Ósætti og ólund var þeim ekki að skapi. Pabbi var mikill barnakarl og naut þess mjög að fá barnabörnin og barna- barnabörnin í heimsókn. Hann var alltaf að leiðbeina og gefa heilræði og lét sér annt um velferð þeirra allra. Það var fagur maímorgunn, við spegilsléttan Kópavoginn, þegar pabbi kvaddi. Þá lauk snarpri loka- orrustu við vágest sem bankaði upp á fyrir ári. Hann var afar þakklátur „englunum sínum“ á líknardeild Landspítalans sem önnuðust hann síðustu tvær vikurnar, sem og frá- bæru starfsfólki krabbameinsdeildar- innar, við Hringbraut, sem hann þurfti oft að heimsækja síðasta árið. Einnig voru heimsóknir Karitas- vin- kvenna hans, honum ómetanlegur styrkur þennan tíma. Við biðjum algóðan Guð að styrkja mömmu í sorg hennar og þeirri bar- áttu sem hún á framundan vegna sama sjúkdóms. Með þakklæti og virðingu kveðjum við föður okkar. Guð blessi minningu hans. Unnur og Guðrún Einarsdætur. Elsku besti afi minn þú kvaddir þennan geim. Þó sárt þín sakni samt ég finn að þú sért kominn í betri heim. Ég veit að þarna bíður þín kaffi með mjólk í glasi, í gluggakistu pípan fín, fyrir utan blóm í grasi. Nægur arfi til að reyta, gróður til að hirða um. Þegar karlinn fer að þreyta, er vísindaþáttur í imbanum. Fjöldi fólks að spá og spjalla, veit ég vel þið hafið hist. Og eftirá þá færðu alla í rússa og tveggjamannavist. Kartöflur og siginn fiskur, með því íslenska vatnið kalt. Og hvergi liggur óhreinn diskur, þvegið hefur karlinn allt. Mitt í öllu staldrar við, lítur niður til oss. Brosir breitt af gömlum sið og sendir fingurkoss. (T. H. R.) Takk fyrir allt. Telma Huld. Ástkær frændi og vinur er fallinn frá langt fyrir aldur fram, Einar var að mínu mati aldurslaus. Einar hafði allt til að bera sem prýða má einn mann, hann var fallegur, skemmtileg- ur en umfram allt opinn faðmur fyrir stórfjölskylduna og vini að leita í, og þvílíkur faðmur. Margs er að minnast og væri of langt mál að telja það allt upp hér. En fyrst ber að nefna allar ferðirnar til fjölskyldunnar á „Fífó“ frá barnæsku minni til enda dags Einars, það var hvergi betra að koma eða vera. Eft- irmiðdagsboð til þeirra urðu oftar en ekki að helgarreisu hjá mér. And- rúmsloftið á heimili Einars og Hans- ínu var yndislegt og hver ferð á „Fífó“ var ævintýri líkust, margar skemmti- legar sögur voru sagðar og endalaust hlegið, farið í ótal leiki og grallarast. Kjúklinga fékk ég hvergi betri en hjá Hansínu og haft er í minni í fjölskyld- unni þegar ég sat við eldhúsborðið og nagaði kjúklingabeinin. Ógleymanlegar eru ófáar fjöl- skylduferðir okkar í Munaðarnes. Eitt skiptið vorum við 14 í litlum sum- arbústað og auðvitað amma Jóhanna með, að sjálfsögðu fundum við börnin ekki fyrir neinum þrengslum og Snorri Páll söng alla leiðina í bústað- inn „Þrúða fer í Munaðarnes…Þrúða fer í Munaðarnes.“ Tilhlökkunin var svo mikil hjá Snorra. Þegar Einar fór til útlanda keypti hann ekki bara gjafir handa sínum börnum heldur nutum við systkinin góðs af gjafmildi hans, við fengum líka pakka. Alltaf var jafnskemmtilegt og ynd- islegt er að eiga minningar um öll ára- mótin með fjölskyldu Einars ýmist á „Fífó“ eða í Hraunbænum. Einar var staddur á Rauða torginu í Rússlandi á verkalýðsdaginn 1. maí ári eftir að járnmúrinn féll í Sovétríkj- unum. Sá dagur var honum afar minnisstæður og minntist hann þess oft hve áhrifamikið það hafði verið að horfa á blómum skreytt torgið í stað vopnaðra hersýninga sem áður hafði tíðkast. Mér er efst í huga á kveðjustund þakklæti og ást fyrir það sem Einar var mér og Erlingi syni mínum. For- eldrum mínum og okkur systkinunum er mjög brugðið, pabbi og Einar voru miklir bræður og svo ég vitni í orð Einars þá var mamma Þrúða uppá- haldsmágkonan. Mestur er þó missir hans yndislegu Hansínu og barnanna þeirra allra. Guð gefi ykkur öllum styrk á kveðjustund. Hildur Erlingsdóttir. Sterkur persónuleiki í fjölskyldu- hringnum er fallinn frá og minningar frá löngum kynnum koma upp í huga okkar krakkanna sem ólumst upp á Hólavegi 25 á Siglufirði. Einar var kvæntur Hansínu móðursystur okkar sem við lítum alltaf á sem stóru systur þar sem hún kom á heimili foreldra okkar sem ung stúlka og dvaldist þar uns hún hitti Einar og þau stofnuðu sitt heimili. Fjölskyldan þeirra stækkaði ört en samt var alltaf nægt rými fyrir ferðalanga að norðan í lengri eða skemmri tíma. Svona átroðsla hefði nú farið í taugarnar á einhverjum en aldrei gátum við fund- ið annað en hlýju og velvilja í okkar garð og við urðum sjálfkrafa hluti af fjölskyldunni. Við tókum þátt í ys og þys hvunndagsins enda var heimili þeirra Einars og Hansínu eins konar félagsmiðstöð stórfjölskyldunnar, því ef eithvað stóð til var safnast þar sam- an. Einar gekk til verks af alúð og heil- um hug í öllu sem hann tók sér fyrir hendur, hvort sem um fjölskyldu- eða félagsmál var að ræða eða jafnvel svo einfaldan hlut að gera sviðakjamma góð skil. Einar hafði fleiri strengi í hörpu sinni en margir þekktu til. Minnisstætt er meðal annars þegar hann settist við orgelið eða tók gít- arinn og krakkarnir hópuðust í kring- um hann og sungið var af hjartans lyst. Einar kunni sérstaklega að fanga augnablikið og gera það að hátíðar- stund. Kvenleggurinn í fjölskyldunni átti alltaf hauk í horni þar sem Einar var. Lengi verður í minnum haft þeg- ar hann stóð upp í einu brúðkaupinu og hélt á lofti kostum kvennanna í ættinni. Aldrei fór þó á milli mála, eins og hann sjálfur sagði, að Hansína var Afródítan í lífi hans. Þegar aðrir heiðruðu kvenþjóðina með Fóstur- landsins Freyju valdi hann „Blátt lítið blóm eitt er“. Alltaf var gaman að rökræða við Einar um allt milli himins og jarðar, enda var hann víðlesinn maður og fylgdist vel með lands- og heimsmál- um fram á síðustu stundu með allar fjölmiðlarásir tengdar. Kynni okkar af Einari hafa verið bæði lærdómsrík og skemmtileg og ekki hvað síst nutum við þess að eiga þennan góða vin sem hafði svo mikið að gefa. Far þú í friði, hafðu þökk fyrir allt og allt. Elsku Hansína og fjölskylda, eftir stendur minning um mætan mann. Eleonoru og Hjörleifs börn og fjölskyldur. Góður drengur er genginn. Kynni okkar Einars hófust er hann réð mig til starfa hjá Starfsmannafélagi rík- isstofnana. Hugmynd hans var að vekja félagið til lífs en nokkur drómi hvíldi yfir starfsemi þess að hans mati. Kyrrstaða og aðgerðarleysi átti á engan hátt við skaphöfn Einars. Hann var stöðugt með hugann við fé- lagsstarfið og vildi sjá hugmyndir sín- ar verða að veruleika, félagsmönnum til framdráttar. Einar var kosinn varaformaður SFR 1960 og formaður 1969–1990 á mesta vaxtarskeiði fé- lagsins. Oft fannst mér Einar stór, en stærstur er hann féll í kosningu. Eftir 30 ára farsælt starf í þágu félagsins sagði hann aðeins: „þannig er lýðræð- ið“ og óskaði nýkjörinni stjórn af ein- lægni, farsældar í starfi. Er hann rifjaði upp fyrri tíð komst hugur hans á flug. Minning hans um eflingu og vöxt BSRB eftir að hann, Kristján Thorlacius, Haraldur Stein- þórsson, Þorsteinn Óskarsson o.fl. náðu völdum innan samtakanna. Valdataka þeirra olli byltingu í orðs- ins fyllstu merkingu. Doði sem hvíldi yfir samtökunum hvarf og þau breytt- ust í lifandi fjöldahreyfingu sem olli straumhvörfum næstu árin í kjara- og réttindabaráttu opinberra starfs- manna. Óvinsælar aðgerðir stjórn- valda, gengisfellingar, kjaraskerðing og minnkandi kaupmáttur gáfu þeim félögum byr undir báða vængi. Höf- undar og forgöngumenn hallarbylt- ingarinnar innan BSRB urðu burðar- ásar samtakanna næstu áratugina og breyttu þeim úr viljalítilli jáhreyfingu í pólutískt baráttutæki sem gjör- breytti viðhorfum opinberra starfs- manna til aðildarfélaganna og sam- takanna í heild. Einari var ómögulegt að skilja á milli BSRB og SFR, honum var fé- lagshyggjan í blóð borin. Gæti hann með ákvörðunum sínum eða for- göngu komið einhverju til leiðar heildinni til góða lá hann ekki á liði sínu. Í þeim anda beitti Einar sér af alefli fyrir byggingu orlofsbúða op- inberra starfsmanna í Munaðarnesi. Hann taldi sjálfsagt að öflugri félög- in innan BSRB öxluðu meginþunga uppbyggingarinnar svo orlofsbúðir samtakanna yrðu að raunveruleika. Það var skoðun Einars að það væri ekki nóg að launþegar ættu rétt á orlofi. Samtök þeirra ættu að sjá til þess að fjölskyldum þeirra gæfist kostur á að njóta þess í fögru um- hverfi. Hann var óþreytandi að leita uppi hentugan stað fyrir orlofsbúð- irnar sem að lokum fannst á bökkum Norðurár í Borgarfirði. Óumdeilan- lega á einum fegursta stað landsins. Það er of langt mál að rifja upp allt það sem Einar og félagar hrundu af stokkunum í valdatíð sinni og hvorki tími né rúm til að telja það upp. Einar verður þó ekki kvaddur án þess að minnast á fjölskyldu hans og eigin- konu. Það er öllum ljóst að þátttaka í félagsmálum reynir á þolinmæði fjöl- skyldunnar, ekki síst makans. Hans- ína kona Einars var þeim gáfum gædd að hafa fullan skilning á þörfum eiginmanns síns. Hann var ekki ein- hamur fengi hann „eitthvað á peruna“. Þá var hvorki spurt um stund né stað. Verkefni sem tóku huga Einars hverju sinni áttu allan hans tíma og krafta. Þrátt fyrir það var Einar mikill fjölskyldumaður og ófáar sögurnar sagði hann stoltur af börnunum sínum tíu. Eða voru þau fleiri? Að minnsta kosti var alltaf fullt hús hjá Hansínu og Einari. Hvergi vildu barnabörnin frekar leita skjóls en í hreiðrinu hjá afa og ömmu. Alltaf var tími, rúm og efni ef þörf krafði. Hansínu, börnum þeirra Einars barnabörnum og öðrum ættingjum sem um sárt eiga að binda sendi ég einlægar samúðarkveðjur á erfiðum tímamótum. Gunnar Gunnarsson. Höfðinginn Einar Ólafsson hefur kvatt þennan heim. Hann var eftir- minnilegur maður sem hafði sérstak- lega góða nærveru, glöggur og spaug- samur. Fyrir liðlega tíu árum kynntist ég honum náið og hafði lengst af síðan daglegt samneyti við hann og hans ágætu konu, Hansínu Þorkelsdóttur, eftir að þau fluttu í þjónustuíbúðir Hafnar í Hafnarfirði. Hún var stoð hans og stytta alla tíð. Lengst af var hann hrókur alls fagnaðar þar á bæ, enda var Einar algjört félagsmála- tröll. Hann var þeim gáfum gæddur að hann fékk alla til að hlusta er hann flutti mál sitt með miklum sannfær- ingarkrafti, kurteis en fylginn sér. Einar var mikið náttúrubarn. Mér er enn í fersku minni leiðsögn hans um heimasveit sína Nesjar, er við efndum til hópferðar austur til Hornafjarðar fyrir nokkrum árum. Hann lýsti af innlifun fallegri blóma- breiðu, fuglum, æskumyndum, rækt- un landsins og mannlífi. Þarna reis hann hæst. Hann tók líka oft snarpar EINAR ÓLAFSSON

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.