Morgunblaðið - 19.05.2004, Síða 46

Morgunblaðið - 19.05.2004, Síða 46
DAGBÓK 46 MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. ein- takið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Skipin Reykjavíkurhöfn: Bjarmi Sæmumndsson kemur og fer í dag. Mánafoss kemur í dag. Tenor og Lagarfoss fara í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Kroonborg kemur í dag. Ocean Tiger fer í dag. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur. Skrifstofa s. 551 4349, fax. 552 5277, mataraðstoð kl. 14–17. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 vinnustofa og postulín, kl. 13 postulín, kl. 13.30 Leshringur í fund- arsalnum. Hársnyrting, fótaaðgerð. Árskógar 4. Kl. 9–12 bað og handavinna, kl. 10.30–11.30 heilsu- gæsla, kl. 13–16.30 smíðar og handavinna, kl. 13 spil. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8– 13 hárgreiðsla, kl. 8– 12.30 bað, kl. 9–16 handavinna, spil fellur niður vegna handa- vinnusýningar. Sími 535 2760. Félagsstarfið, Dalbraut 18–20. Kl. 9 aðstoð við bað og hárgreiðsla, kl. 10 leikfimi, kl. 14.30 bankinn, kl. 14.40 ferð í Bónus. Félagsstarfið, Dalbraut 27. Kl. 8–16 handa- vinnustofan opin, kl. 10– 13 opin verslunin, kl. 13.30 bankinn, kl. 11– 11.30 leikfimi. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Postulíns- málun, námskeið og leirmótun, námskeið kl. 9–16.30. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9.30 hjúkrunarfræðingur á staðnum, kl. 10 hár- snyrting, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 13 föndur og handavinna. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Kvenna- leikfimi kl. 9.30, 10.20 og 11.15, handavinnuhorn kl. 13, opið í Garðabergi kl. 13–17. Félag eldri borgara Kópavogi. Skrifstofan er opin í dag frá kl. 10– 11.30, viðtalstími í Gjá- bakka kl. 15–16. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Kl. 10 myndmennt, kl. 11 línu- dans, kl. 13 mynd- mennt, glerskurður og pílukast. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Samfélagið í nærmynd kl. 11, þáttur um málefni eldri borg- ara á RÚV. Greiða þarf Vestfjarðaferð að fullu fyrir 21. maí. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, kl. 10.30 sund og leikfimiæfingar í Breið- holtslaug, frá hádegi spilasalur opinn. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 10–17 handavinna, kl. 9.30 boccia, kl. 9.30, kl. 13 félagsvist, kl. 17. bobb. Gullsmári, Gullsmára 13. Félagsþjónustan er opin alla virka daga frá kl. 9–17. Handa- vinnustofan er opin frá kl. 13–16. Alltaf heitt á könnunni. Hraunbær 105. Kl. 9 handavinna, útskurður, hárgreiðsla, fótaaðgerð og banki, kl. 13 brids. Hvassaleiti 58–60. Kl. 9–15 handmennt, kl. 9– 10, kl. 10–11 og kl. 11–12 jóga, kl. 10.30 sam- verustund. Fótaaðgerð- ir virka daga, hársnyrt- ing þriðju- til föstudags. Korpúlfar Grafarvogi. Á morgun fimmtudag keila í Mjódd kl.10. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 vinnustofa, kl. 9– 16 fótaaðgerð, kl. 14 fé- lagsvist, kaffi og verð- laun. Vesturgata 7. Kl. 10 sund, kl. 10–11.30 ganga, kl. 9–16 fótaað- gerð og hárgreiðsla, kl. 9.15–16 myndmennt, kl. 12.15–14.30 versl- unarferð, kl. 13–14 spurt og spjallað, kl. 13– 16 tréskurður. Vitatorg. Kl. 8.45 smiðja, kl. 9 fótaaðgerð- ir, kl. 10 bútasaumur og hárgreiðsla, bókband, kl. 13 föndur og kóræf- ing, kl. 12.30 versl- unarferð. Þjónustumiðstöðin, Sléttuvegi 11. Kl. 10–12 verslunin opin, kl. 13–16 keramik, taumálun, föndur, kl. 15 bókabíll- inn. Bókmenntaklúbbur Hana-nú. Síðasti fundur vetrarins í kvöld kl. 20 á Bókasafni Kópavogs. Dagskrárefni; sum- arljóð. Hafnargönguhópurinn. Kvöldganga kl. 20 miðvikud. Lagt af stað frá horni Hafnarhússins norðan megin. Sjálfsbjörg félag fatl- aðra á höfuðborg- arsvæðinu, Hátúni 12. Kl. 19.30 félagsvist. Minningarkort Minningarkort Rauða kross Íslands eru seld í sölubúðum Kvenna- deildar RRKÍ á sjúkra- húsum og á skrifstofu Reykjavíkurdeildar, Fákafeni 11, s. 568 8188. Í dag er miðvikudagur 19. maí, 140. dagur ársins 2004. Orð dags- ins: „Trúið á ljósið meðan þér haf- ið ljósið, svo að þér verðið börn ljóssins.“ (Jh. 12, 36.)     Katrín Jakobsdóttir,varaformaður Vinstri grænna, hefur mikinn áhuga á leik- skólamálum og ræðir þau við ýmis tækifæri. Í nýlegum morgunpósti VG segir hún m.a.: „Nú er mikið rætt um fátækt á Íslandi og menn hafa komið með ýmsar uppá- stungur til að sporna gegn fátækt. Meðal þess sem hefur verið nefnt er að tekjutengja leik- skólagjöld þannig að leikskólinn verði ódýrari fyrir þá sem minna hafa milli handanna. Þetta er óæskileg þróun því að þar með er verið að við- urkenna að leikskólar eigi yfir höfuð að inn- heimta gjöld.“     Katrín segir leikskólaekki lengur gæslu- stofnanir heldur mennta- stofnanir. Það sé við- urkennd staðreynd. Svo segir hún: „Við í Vinstri- hreyfingunni – grænu framboði settum það á oddinn í síðustu kosn- ingabaráttu að leik- skólanám yrði foreldrum að kostnaðarlausu og greitt úr sameiginlegum sjóðum þjóðfélagsins. Við settum fram raun- hæfar hugmyndir um færslu tekjustofna frá ríki til sveitarfélaga til að þetta væri gerlegt. Við lítum á þetta sem raunverulega kjarabót fyrir fjölskyldurnar í landinu en ekki síður lít- um við á þetta sem nauð- synlegt skref til að hér sé menntakerfi fyrir alla.     Nú hafa ýmsir fylgt íkjölfar okkar í VG með þetta mikilvæga mál og er það ágætt. Við telj- um nefnilega að sam- félagið eigi að greiða fyrir menntun þegna sinna frá leikskólastigi upp á háskólastig og því fleiri sem átta sig á því, því betra. Við teljum óeðlilegt að tekjutengja leikskólagjöld því að ókeypis leikskóli á ekki að vera ölmusa til þeirra sem minna mega sín heldur sjálfsagður og eðlilegur hluti skólakerf- isins, eins og grunn- skólar, framhaldsskólar og háskólar,“ segir Katr- ín Jakobsdóttir.     Hér kemur tillaga tilKatrínar og félaga hennar í Vinstri græn- um: Hvernig væri að uppfylla loforð R-listans, sem VG er hluti af, og útvega öllum börnum 18 mánaða og eldri leik- skólapláss áður en farið er af stað með stórhuga hugmyndir um ókeypis leikskóla? VG kvartar yf- ir litlum áhrifum á Al- þingi og erfitt eða ómögulegt sé að koma þingmannafrumvörpum í gegn. En þar sem VG hefur veruleg áhrif – á stjórn borgarinnar – virðast borgarfulltrúar sækja fram á hraða snig- ilsins. Er þetta þá trú- verðugur málflutningur hjá Katrínu Jak- obsdóttur varaborg- arfulltrúa? STAKSTEINAR Nýjar hugmyndir – gömul loforð Vinstri grænna Víkverji skrifar... Víkverji og maki hans tóku gróð-urhúsið í gegn fyrir sumarið og nú er búið að setja þar niður krydd- jurtir, ýmsar tegundir af basil og öðrum kryddtegundum og mismun- andi tómataplöntur sem bæði gefa af sér mismunandi stóra tómata og smáa. Hann var svo lánsamur að fá gefins hjá mikilli ræktunarkonu for- ræktaðar plöntur þetta árið. Sú kona prófar sig áfram með ýmiss konar kryddtegundir sem ekki hafa sést í búðum hér á landi. Hún var til dæmis þetta árið með mörg afbrigði af basil og Víkverji sem var svo heppinn að fá ein átta slík afbrigði getur nú ekki beðið með að finna bragðmuninn á þeim. Til stendur svo næstu daga að setja út í grænmetisgarðinn for- ræktað salatið, spergilkálið, blóm- kálið og annað grænmeti enda búið að stinga upp garðinn og allt tilbúið. Hann hefur undanfarin ár verið að fikra sig áfram með að setja niður ýmiss konar salattegundir, lollo rosso, eikarlauf, spínat, klettasalat og fleiri tegundir og langar að hvetja aðra til að reyna hið sama. Þetta er hið minnsta mál og ekk- ert eins yndislegt og að ganga út í garðinn sinn og ná sér í hráefni, vel að merkja, langt fram eftir hausti. Það hefur reynst Víkverja afar auð- velt að rækta þessar tegundir og fyrir bragðið er hann viss um að fjölskyldan sé að borða lífrænt sal- at. Það sama á reyndar við um tóm- atarækt og kryddjurtir. Það er leik- ur einn að rækta slíkar tegundir ef fólk er á annað borð með sólstofu eða sólríka stóra glugga. Ótal af- brigði til dæmis af tómötum má fá í þeim verslunum sem selja fræ á vorin. Það er ekki bara að fullorðna fólkið hafi gaman af því að fylgjast með ræktuninni, börnum finnst skemmtilegt að geta tínt í munninn litla kirsuberjatómata og farið út í garð að ná í salat, krydd eða annað sem þarf í matargerðina. Víkverji átti þess ekki kost að sá fyrir græn- metinu þetta árið og leggur því leið sína í gróðrarstöð enda bjóða þær upp á ótrúlegasta grænmeti til að rækta áfram. Það má líka kaupa forræktaðar tómataplöntur og alls konar krydd- tegundir. x x x Það var hreinsunardagur hjá Sel-tjarnarnesbæ síðastliðinn laug- ardag og Víkverji veit að margir létu sitt ekki kyrrt liggja og tóku aðeins til hendinni í görðunum sín- um. Reyndar er það sjálfsagt að taka til í sínum eigin garði en hann dáist að þeim fjölmörgu sem eru í mismunandi félagasamtökum á Nesinu og gengu um allt svæðið og hirtu rusl til að gera bæjarfélagið sitt fallegra. Frábært framtak hjá Seltirn- ingum að standa að hreinsunardeg- inum á þennan hátt. Víkverja áskotnuðust ýmsar teg- undir af tómötum og kryddjurtum. Hvað væri pabba hlutur stór? FYRIR nokkru birtist í Morgunblaðinu frétt um að fyrrverandi hitaveitu- stjóri, Jóhannes Zoëga, hefði reiknað út, að Hita- veita Reykjavíkur hefði sparað okkur 580.000.000.000 kr. í olíu- kaupum. Ekki dreg ég í efa útreikninga Jóhannesar enda er hann kunnur af vönduðum vinnubrögðum. Oft hefir saga Hitaveit- unnar verið rakin og eru allir sammála um ágæti hennar. Hverrgi hef ég þó séð staf um hlut erfiðis- mannanna, sem trúðu Hitaveitu Reykjavíkur fyr- ir sparifé sínu og ætla ég því að segja eftirfarandi sögu af einum þeirra. Rétt fyrir stríð gaf Hita- veitan út skuldabréf, sem báru 2% ársvexti, bréfin voru útdráttarbréf til 40 ára lengst. Faðir minn var tog- arasjómaður og verka- maður, hann var reglu- maður og fór vel með sitt. Hann ákvað að kaupa bréf Hitaveitunnar. Kaup verkamannsins var um kr. 1,35 á tímann og keypti faðir minn bréf fyrir 2.000 kr., sem mun hafa verið árskaup hans eftir skatta. Skuldabréfaútdrátturinn fór fram árlega og númer útdreginna bréfa var birt- ur í Lögbirtingablaðinu. Faðir minn gerðist áskrif- andi að blaðinu og fylgdist grannt með sínum bréfum. Bréf hans voru aldrei dregin út og þegar árin 40 voru liðin, var hann farinn að tapa minni og vissi ekki lengur um bréfaeign sína hjá Hitaveitu Reykjavíkur. Móðir mín fór því á tilsett- um tíma niður í Lands- banka til að sækja andvirði skuldabréfanna. Ekki stóð á greiðslunni í bankanum og árslaun erf- iðismannsins, sem höfðu staðið á vöxtum í 40 ár – óhreyfð – voru á uppgjörs- degi ígildi 2ja tíma vinnu Dagsbrúnarverkamanns- ins og dugðu fyrir eins árs áskrift að Lögbirtinga- blaðinu. Aldrei heyrði ég foreldra mína tala um, að þau iðr- uðust þess að hafa trúað Hitaveitunni fyrir fjár- munum sínum. Ég hef ekki reikniforrit í minni tölvu en vænt þætti mér um, ef Jóhannes Zoëga eða einhver annar reikniglöggur maður, reiknaði út hvað laun fyrir 1 ársverk hefði orðið að mörgum á 40 árum og hvað 2.000 krónurnar hans pabba væru stór hluti í 580.000.000.000 (580 millj- arðar) krónunum góðu, sem Hitaveitan sparaði okkur. Reikniforsendur eru 4% raunvextir. Tölvupóst má senda mér: jonss15@hotmail.com Jón. Tapað/fundið Svart hjól týndist SVART SCHWINN 20" drengjareiðhjól, 21 gíra, hvarf frá Birkigrund 44 í Kópavogi, föstudaginn 14. maí. Þeir sem hafa séð hjólið, vinsamlega látið vita í síma 564 5059 eða 699 6059, fundarlaun. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT 1 myrkur, 4 karldýr, 7 stráka, 8 bölvi, 9 mis- kunn, 11 sefar, 13 korn- tegund, 14 Evrópubúi, 15 sívala pípu, 17 þekkt, 20 kjaftur, 22 þætti, 23 göm- ul, 24 ákveð, 25 flanar. LÓÐRÉTT 1 kústur, 2 munntóbak, 3 svelgurinn, 4 för, 5 eyja, 6 verk, 10 hagnaður, 12 auðug, 13 tjara, 15 eldfjall, 16 hrósar, 18 snúin, 19 skyldar, 20 vegg, 21 snaga. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 sukksamur, 8 lógar, 9 torga, 10 nía, 11 terta, 13 nárar, 15 hlera, 18 sukks, 21 kát, 22 leitt, 23 ólúin, 24 hliðstætt. Lóðrétt: 2 urgur, 3 kirna, 4 aftan, 5 urrar, 6 flot, 7 maur, 12 Týr, 14 átu, 15 háll, 16 ekill, 17 aktið, 18 stórt, 19 klúrt, 20 sona. Krossgáta  Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.