Morgunblaðið - 21.06.2004, Side 38

Morgunblaðið - 21.06.2004, Side 38
38 C MÁNUDAGUR 21. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Bergholt - 178 fm einbýlishús *NÝTT Á SKRÁ* Flott 145 fm einbýlishús á einni hæð ásamt 33 fm innbyggðum bílskúr. 4 svefn- herbergi, baðherbergi með hornbaðkari, eldhús, borðstofa, stór stofa, gestasnyrting og geymsla. Húsið stendur á fallegri hornlóð með miklum gróðri í gróinni og rólegri götu, en stutt er í alla þjónustu. Verð 24,9 m. Súluhöfði - 168 fm parhús *NÝTT Á SKRÁ* Mjög glæsilegt 167,7 fm parhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr innst í botn- langa, með 3-4 svefnherbergjum. Húsið er hið vandaðast í alla staði, HTH kirsuberjainnr. í eld- húsi og baði, gegnheilt Iberaro parket og náttúru- steinn á gólfum og innfelld halogenlýsing í loftum. Verð 26,4 m. Áhv. 13,6 m. Lækjartún - 224 fm parhús. *NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá 134 fm parhús á einni hæð með sérlega fallegum og grónum garði innst í botnlanga. Auk þess er sambyggt húsinu 89,7 fm bílskúr og vinnustofa. Í eldhúsi er nýleg viðarinnrétting, stór stofa og borðstofa, 3 svefn- herbergi, baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, gestasnyrting og þvottahús. Verð 24,3 m. Bjartahlíð - 4ra herb. perma- form *NÝTT Á SKRÁ* 4ra herbergja, 94,6 fm íbúð á 2. hæð í litlu tveggja hæða fjölbýli með sérinngangi og svölum. Rúmgott eldhús með borðkrók, baðherbergi með kari, tvö barnaher- bergi, hjónaherbergi með góðu skápaplássi, geymsla og björt stofa. Mjög góð staðsetning, stutt í Lágafellskóla og leikskóla. Verð 14,3 m. Áhv. 6,2 m. Reykjabyggð - einbýli *NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá mjög fallegt 173,2 fm einbýl- ishús á einni hæð með bílskúr á gróinni lóð, innar- lega í botnlanga í Mosfellsbæ. Húsið skiptist í stóra stofu og eldhús, sjónvarpskrók, 4 svefnher- bergi, baðherbergi með kari og minna baðher- bergi með sturtu, þvottahús og 25 fm bílskúr. Fal- legt útsýni er frá húsinu yfir sveit og fjöll. Verð 27,9 m. Áhv. 16,4 m. Þverholt - „penthouse íbúð“ Erum með 159,9 fm, 5 herbergja penthouse- íbúð á efstu hæð í 3ja hæða fjölbýli. Íbúðin er 113 fm að grunnfleti auk 46,9 fm rislofts. 3 svefnherbergi, stórt eldhús, sérþvottahús, geymsla, borðstofa og baðherbergi á aðal- hæð en stór stofa og svefnherbergi er á ris- lofti. Íbúðin er björt og rúmgóð og stutt er í alla þjónustu. Verð 16,2 m. Áhv. 8,4 m (5,9 í bygginga- sjóð). Álmholt - 142 fm hæð + tvöf. bílskúr. Erum með 142,8 fm efri hæð ásamt 50 fm tvöföldum bílskúr með glæsilegu útsýni yfir Leirvoginn og að Esjunni. Fjögur góð svefnher- bergi, eldhús m/borðkrók, stór stofa með arni og björt borðstofa, sjónvarpshol, baðherbergi og gestasalerni ásamt góðu þvottahúsi. Frábær staðsetning, neðst í botnlanga í grónu hverfi. Húsið er til afhendingar strax. Verð 23,9 m. Áhv. 12,7 m. Háls í Kjósarsýslu Erum með 40 fm bjálkabústað í skipulögðu sumarhúsalandi við Háls í Kjós. Húsið er á tveimur 30 fm hæðum, en efri hæð er að hluta undir súð. Á jarðhæð er stofa, eldhúskrókur og baðherbergi, en 2 svefnherbergi og svalir á 2. hæð. Kalt vatn og rafmagn í bú- staðnum, rafmagnsofnar og 150 L. hitatúpa. Mjög fallegt útsýni er frá bústaðnum yfir Hvalfjörðinn. Verð 4,5 m. Klapparhlíð 5 - 50 ára og eldri Erum með 11 íbúðir í sölu í 4ra hæða lyftuhúsi með 20 íbúðum fyrir 50 ára og eldri í Klapparhlíð í Mosfellsbæ. Sérinngangur er í hverja íbúð af svalagangi með glerskermun. Innangengt er í bílageymslu með 16 bílastæðum. Húsið er einangrað að utan og klætt með bárumálmklæðn- ingu og harðvið. Þetta eru 3ja herbergja íbúðir 107 - 120 fm, verð frá kr. 15,6 m - 19,5 m. Íbúð- irnar verða afhentar í október nk. www.fastmos.is ÁBENDING! Hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar er það aðeins löggiltur fast- eignasali sem skoðar allar eignir, verðmetur og sér um allan skjalafrágang varðandi kaup og sölu á fasteignum. Þetta virðist ekki vera sjálfgefið í dag! Vertu viss um að löggiltur fasteigna- sali sjái um fasteignaviðskipti þín - frá upphafi til enda! ERUM VIÐ MEÐ KAUPANDA AÐ ÞINNI EIGN? Hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar er fjöldi kaupenda á skrá sem bíður eftir draumaeigninni í Mosfellsbæ. Hver veit nema að kaupandi bíði eftir þinni eign. Hafðu samband við okkur hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar og kannaðu málið. Klapparhlíð - 2ja herbergja Erum með 2ja herbergja íbúðir til sölu í nýbygg- ingum við Klapparhlíð. Íbúðirnar eru 63-66 fm á 1., 2. og 3. hæð. Þeim verður skilað fullfrágengn- um án gólfefna, en baðherbergis- og þvottahús- gólf verða flísalögð. Fallegar mahogny innrétting- ar í eldhúsi og svefnherbergi, en sprautulökkuð innrétting á baði. Verð frá 10,6 m. - 11,1 m. Veghús - 2ja herb. *NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá fallega og rúmgóða 2ja herbergja 70 fm íbúð á 9. hæð í 10 hæða fjölbýli með mjög miklu útsýni yfir Reykjavík, sundin og að Esjunni. Stór stofa/borðstofa, eldhús með fínni innréttingu, baðherbergi m/kari og þvottaaðstöðu og svefn- herbergi með stórum fataskáp. Verð 10,9 m. Réttarholt - Gnúpverjahreppi Jörðin Réttarholt, við Árnes í Gnúpverjahreppi er 7 ha ræktað land ásamt 200 fm útihúsum og 300 fm hlöðu. Á jörðinni er einnig heitt og kalt vatn ásamt rafmagni og steyptri plötu fyrir hús. Tilvalin eign fyrir útivistar- og hestafólk. Verð 7,2 m. Frostafold - 3ja herb - Grafarvogi Rúmgóð 96 fm, 3ja herbergja íbúð á efstu hæð í 3ja hæða fjölbýlishúsi, sérinngangur er af opnum svalagangi. Íbúðin skiptist í hol, stóra stofu, setustofu, eldhús með borðkrók, baðherbergi m/kari, gott hjónaherbergi og barnaherbergi. Eikarparket á stofu, flísar á setustofu en linoleum dúkur öðrum gólfum. Þetta er falleg og björt íbúð á góðum stað í Grafarvogi. Verð 12,9 m. - afhending í júlí nk. TÚLÍPANAR eru fjölærar lauk- plöntur sem geyma forða í laukum sínum yfir óhagstæð tímabil ársins. Þeim má skipta gróflega í tvo flokka, garðatúlípana sem eru í ótal út- gáfum og svo villitúlípana. Á vaxt- arsvæðum túlípana eru sumurin heit og þurr og liggja laukarnir þá í dvala. Yfir veturinn er það svo kuldinn sem kemur í veg fyrir að laukarnir vaxi upp. Þeg- ar hlýnar á vorin verður rakt í lofti og laukarnir vaxa upp og blómstra á þessu stutta vaxtar- tímabili. Við blómg- unina tæmist næringin alveg úr lauknum og viðkomandi laukur deyr. Plantan myndar hins vegar nýja hliðar- lauka sem taka við af móðurlauknum. Eftir að blómgun lýkur standa blöð laukanna eftir og safna næringarforða í nýju hliðar- laukana. Þegar hitnar enn frekar fella laukarnir blöðin og leggjast aft- ur í dvala yfir heitt og þurrt sum- arið. Til þess að geta blómstrað þarf laukurinn að ná ákveðinni stærð, venjulega verður einn hliðarlauk- anna stærstur og er það hann sem blómstrar næsta vor. Ræktun túlípanalauka hérlendis fer þannig fram að laukarnir eru settir niður að haustlagi, í október- nóvember. Laukana þarf að gróður- setja fremur djúpt en almennt er miðað við það að jarðvegslagið sem fer ofan á laukinn sé tvöföld þykkt lauksins. Túlípanar þurfa frjósaman og vel framræstan jarðveg, gott er að blanda dálitlum sandi saman við jarðveginn til að tryggja loftinnihald og frárennsli. Þeir þurfa sólríkan og hlýjan vaxtarstað eigi þeir að þrífast vel og ekki er verra að þeir séu í skjóli því blómin eru oft stór og taka á sig vind. Það sem helst haml- ar ræktun garðatúlíp- ana hérlendis er það að laukarnir ná ekki að vaxa upp í fulla blómg- unarstærð eftir blómg- un. Næsta vor verður blómgunin þá lítil og lé- leg og fáir garðatúlíp- anar ná að lifa þriðja árið, nema þeir séu á sérlega góðum og hlýj- um vaxtarstað. Sumir garðeigendur leggja það á sig að grafa lauk- ana upp eftir blómgun, koma þeim fyrir til dæmis inni í gróðurhúsi þar sem er þurrt og hlýtt og láta þá klára að safna næringarforða þar inni. Þegar blöðin eru visnuð eru laukarnir svo flokkaðir eftir stærð og um haustið eru stærstu laukarnir gróðursettir aftur. Villitúlípanar hins vegar þríf- ast ágætlega hérlendis og geta lifað árum saman og blómstra alltaf jafn- vel, án þess að viðhafa þurfi sérstak- ar tilfæringar til þess að þeir dafni. Þegar laukarnir eru settir niður er mikilvægt að fylgja leiðbeiningum á umbúðum laukanna um millibil. Millibil milli lauka getur verið á bilinu 10–30 cm, allt eftir umfangi viðkomandi yrkis. Túlípanar verða að vera nokkrir saman í þyrpingu, fátt er einmanalegra en einn túlípani stakur í beði. Í raun er lágmark að hafa 5 túlípana í hóp til að plönturn- ar njóti sín, þeir mega alveg vera fleiri. Blómgunartími túlípana er allt frá því í apríl og fram á mitt sumar. Þannig er hægt að vera með blómstrandi túlípana í garðinum all- an fyrri hluta sumarsins. Garðatúlípanar eru hópur blend- inga sem fást í ótal yrkjum og blómstra á mismunandi tíma. Hægt er að flokka garðatúlípana í fjöl- marga flokka eftir blómlögun og blómgunartíma og verða nokkrir flokkar tilgreindir hér. Listinn er þó ekki tæmandi. Einfaldir, snemmblómstrandi túl- ípanar bera einföld blóm og blómstra einna fyrst af garðatúlí- pönum eða í apríl–maí. Þeir eru fremur lágvaxnir, 30–40 cm á hæð. Fylltir, snemmblómstrandi túlíp- anar bera fyllt blóm og blómstra líka í apríl–maí. Þeir eru einnig lágvaxn- ir, 30–40 cm háir. Einfaldir, síðblómstrandi túlípan- ar (Kotatúlípanar) bera blóm sem eru aflöng og eru blómin oft tvílit, blómgunartíminn er júní–júlí. Þeir eru hávaxnir, 60–70 cm. Tromptúlípanar blómstra í júní. Þeir eru með einföld, oft tvílit blóm en einnig finnast þar einlit yrki. Tromptúlípanar eru um 50 cm háir. Darwins-túlípanar blómstra einn- ig í júní. Þeir eru með einföld blóm í ýmsum litum. Hæð þessa flokks er í kringum 60 cm. Liljutúlípanar eru mjög sérstakir og ákaflega vinsælir. Krónublöð blómanna sveigjast út á við og minna þannig á liljur. Liljutúlípanar eru í ýmsum litum og blómstra í júní. Þeir ná 60–70 cm hæð. Rembrandt- og páfagaukatúlípan- ar innihalda veirusýkingu sem gerir það að verkum að blómin verða eins og sprengd á litinn. Jaðar krónu- blaðanna er oft kögraður. Þeir eru mjög skrautlegir, blómstra í júní– júlí og hæðin er 30–60 cm. Fylltir, síðblómstrandi túlípanar eru skállaga og fyllt blóm sem minna þannig á blóm bóndarósa. Þeir blómstra í júní–júlí og ná 50–60 cm hæð. Grænblóma túlípanar bera blóm sem eru græn í grunninn en svo eru aðrir litir með þessum græna. Þeir geta verið ákaflega skrautlegir. Blómgunartíminn er í júní og þeir geta verið 40–60 cm háir. Margblóma túlípanar bera nokkur blóm saman á hverjum stilk en aðrir garðatúlípanar eru alltaf með eitt blóm á hverjum stilk. Þeir blómstra í júní–júlí og eru í hávaxnari kantin- um, 50–70 cm. Svo er það í þessu eins og öllu öðru, sá á kvölina sem á völina… Guðríður Helgadóttir, garðyrkjufræðingur Túlípanaræktun VIKUNNAR BLÓM Um s j ó n S i g r í ð u r H j a r t a r 514. þáttur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.