Morgunblaðið - 23.06.2004, Page 1
Ungarnir
sísvangir
Einstæð þrastamóðir aflar fæðu í
óðaönn | Minn staður 16
Bílar og Íþróttir í dag
Bílar | Sá aflmesti frá Volvo Götuspyrna og bílasýning
Útlitshönnun Torfæruakstur Íþróttir | KR-stúlkur
unnu Breiðablik Guðmundur Benediktsson á skotskónum
ÚRVALSVÍSITALAN hækkaði enn í gær
og náði sínu hæsta lokagildi frá upphafi.
Vísitalan endaði í 2.957 stigum og hækkaði
um 1,1%. Það sem af
er júnímánuði hefur
vísitalan hækkað um
11%.
Frá áramótum hef-
ur Úrvalsvísitalan
hækkað meira en 40%
og er það töluvert
meiri hækkun en á
helstu markaðsvísitöl-
um í heiminum. Næst
kemst norski markað-
urinn (OBX) með
rúmlega 13%, en eng-
in önnur vísitala nær
10% ávöxtun á árinu. Almenn bjartsýni er
ríkjandi á íslenska markaðinum sem hefur
hækkað mikið í kjölfar jákvæðra frétta af
hlutafélögum í Úrvalsvísitölunni á meðan
neikvæðar fréttir hafa haft lítil áhrif til
lækkunar.
Í Vegvísi greiningardeildar Landsbank-
ans segir að þau félög sem leitt hafi hækk-
anirnar í mánuðinum séu Össur (27,8%),
KB banki (27,2%), Marel (15,8%) og
Bakkavör (14,2%). Hækkanir á bréfum KB
banka koma í kjölfar kaupa á hinum
danska FIH banka 14. júní sl. og bréf
Bakkavarar virðast hafa hækkað vegna
aukins eignarhlutar félagsins í Geest plc.
!"
#$
%&
!'' ()*'
+,
- ./01
#2
,''
3
$4
-56
$
,7-
89'
(3
$4
! $4
(";
%" <
<=
<>
<?
<@
<
<
A
A
A
A
B
B
B
B
B
B
B
B
B
B
B
Yfir 40%
hækkun
Úrvalsvísi-
tölu í ár
SUÐUR-Kóreumenn hörmuðu í gær
lát landa síns, sem mannræningjar í
Írak líflétu, en s-kóresk yfirvöld
ítrekuðu, að 3.000 manna herlið yrði
eftir sem áður sent til Íraks. Þau
ákváðu hins vegar að flytja brott alla
óbreytta, s-kóreska borgara frá
landinu.
Bandarískir hermenn fundu í gær
lík s-kóreska túlksins Kim Sun-Il og
hafði hann verið hálshöggvinn. Var
honum rænt í síðustu viku af hópi,
sem tengist al-Qaeda-hryðjuverka-
samtökunum.
Mannræningjarnir höfðu á sunnu-
dag hótað því að hálshöggva Kim
Sun-Il innan sólarhrings ef stjórn-
völd í Suður-Kóreu hættu ekki við
áform sín um að fjölga í herliði sínu í
Írak. Fresturinn sem mannræningj-
arnir gáfu rann út um miðjan dag á
mánudag en fyrr í gær bárust fregn-
ir af því að mannræningjarnir hefðu
framlengt hann. Fréttin um líflát
Kims kom því nokkuð á óvart.
S-kóreska sjónvarpið sýndi í gær
myndir af foreldrum Kims hágrát-
andi eftir að hafa fengið tíðindin.
S-Kóreumenn
harmi slegnir
Bagdad, Mosul. AFP.
ÓHEIMILT verður að stofna ný
ættaróðul eftir gildistöku nýrra
jarðalaga 1. júlí nk og skal ættaróðal
falla úr óðalsböndum og jörðin erfast
í samræmi við ákvæði erfðalaga.
Lögin leysa af hólmi eldri lög frá
1976 og er tilgangur þeirra að færa
löggjöf um jarðir í nútímahorf. For-
kaupsréttur sveitarfélaga að jörðum
verður afnuminn og einnig synjunar-
réttur og eignarnámsheimild sveit-
arfélaga vegna viðskipta með jarðir.
Ekki fallist á gagnrýni SÍS
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, for-
maður stjórnar Sambands íslenskra
sveitarfélaga, bendir á að ekki hafi
verið fallist á gagnrýni SÍS á þær
greinar frumvarps til jarðalaga sem
feli landbúnaðaráðherra ákvörðun-
arvald um það hvort taka megi land
sem nýtt hefur verið til landbúnaðar
eða sé nýtanlegt til landbúnaðar
undir aðra starfsemi. Töldu sveitar-
félögin eðlilegast að öll landnýting
ætti að grundvallast á skipulags-
áætlunum og engar röksemdir væru
til að láta önnur sjónarmið gilda um
landbúnað.
Þá hafi Alþingi ákveðið að fella
niður grein í frumvarpinu sem veitti
sveitarfélögum forkaupsrétt að landi
og öðrum fasteignum innan sveitar-
félags og sveitarfélaginu var þörf á
að fá umráð yfir fyrir opinbera starf-
semi eða til sameiginlegra nota fyrir
íbúa sveitarfélags.
Vilhjálmur segir þrátt fyrir þetta
hafa verið tekið tillit til ýmissa at-
hugasemda SÍS við frumvarpið og
m.a. hafi ákvæði verið fellt niður um
skyldu sveitarfélaga til að kjósa sk.
landbúnaðarnefndir sem ætlað hafi
verið umfangsmikið hlutverk en í
raun ekkert vald samhliða.
Forkaupsréttur sveit-
arfélaga afnuminn
Óðalsjörðum/6
Ný jarðalög taka
gildi 1. júlí
MIKILL lömunarveikifaraldur
er að brjótast út í Mið- og Vest-
ur-Afríku að því er fram kom
hjá WHO, Alþjóðaheilbrigðis-
stofnuninni, í gær. Hefur hann
borist þvert yfir meginlandið,
frá Nígeríu til Darfur í Súdan
þar sem hundruð þúsunda
flóttamanna búa við illar að-
stæður.
Í yfirlýsingu WHO sagði, að
faraldsfræðingar hefðu varað
við, að í uppsiglingu væri mesti
lömunarveikifaraldur í Mið- og
Vestur-Afríku í langan tíma
enda fjölgaði smituðum mjög
ört. Óttast er, að þúsundir afr-
ískra barna lamist fyrir lífstíð.
Mikið hefur verið unnið að
því að kveða niður lömunar-
veikina í Afríku en múslímsk
yfirvöld í Kano í Norður-Níger-
íu komu hins vegar í veg fyrir
bólusetningu þar og báru því
við, að Bandaríkjamenn hefðu
laumað ófrjósemislyfi í bóluefn-
ið í því skyni að fækka fólki í
þriðja heiminum.
Hefur þessi sögusögn náð til
nokkurra nágrannaríkja og átt
sinn þátt í að greiða fyrir far-
aldrinum.
Lömunar-
veikifar-
aldur
í Afríku
Genf, AFP.
SÓLHVÖRF á sumri, sumarsól-
stöður, voru í gær og sólargangur
er því aftur farinn að styttast. Á
morgun er Jónsmessa, fæðing-
ardagur Jóhannesar skírara, en
Jón og Jóhannes eru tvær útgáfur
af sama nafni. Margs konar
þjóðtrú eða náttúrutrú er tengd
Jónsmessunóttinni. Á Jónsmessu-
næturdöggin að vera mjög heil-
næm, hvort sem fólk veltir sér
upp úr henni nakið eða gengur í
henni berfætt, og þá er gott að
finna magnaða steina og tína grös
til lækninga. Þessar kýr á Stóru-
Ásgeirsá í Víðidal voru allt að því
andaktugar á svip er þær virtu
fyrir sér gullroðið aftanskinið.
Morgunblaðið/Eggert
Kýrnar og sumarkvöldið
„SKELFILEGT, hræðilegt, óskapleg sorg“ voru upphróp-
anirnar á Ítalíu í gær er ljóst var orðið að ítalska liðið
kæmist ekki áfram í Evrópumeistaramótinu þrátt fyrir
sigur á Búlgörum. Mikil stemning var aftur á Ráðhústorg-
inu í Kaupmannahöfn er fjöldi manna, Danir og líka Svíar,
fylgdist með viðureign þjóðanna. Urðu Danir ávallt fyrri
til að fagna en að lokum féllust allir í faðma. Það sama má
segja um þessa tvo á leikvanginum í Portúgal.
Reuters
„Óskapleg sorg“
Lissabon. AFP.
Íþróttir/B1 og B4
STOFNAÐ 1913 169. TBL. 92. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is