Morgunblaðið - 23.06.2004, Síða 16
MINN STAÐUR
16 MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Mjög falleg og mikið endurnýjuð
ca 70 fm íbúð á 2. hæð í 6-býli á
rólegum og góðum stað. Íbúðin
hefur verið endurnýjuð nánast frá
grunni, m.a. gluggar og gler,
gólfefni, innréttingar, rafmagn,
lagnir og baðherbergi. Veggja-
klæðningar, skápar, listar, gereft
o.fl. er sérsmíðað og sérsniðið að þessari íbúð, á mjög vandaðan og
glæsilegan hátt. Suðvestursvalir. Verð 12,9 millj.
Hraunteigur - glæsileg íbúð
Rúmgóð 2ja herbergja, vel stað-
sett, 62 fm kjallaraíbúð með sér-
inngangi. Íbúðin skiptist í hol,
baðherbergi, eldhús, stofu og
herbergi. Í sameign er sér-
geymsla og sameiginlegt þvotta-
hús. Íbúðin er staðsett nálægt
Háskóla Íslands og stutt er í alla
þjónustu m.a. verslun, skóla, leikskóla og sundlaug vesturbæjar.
Verð 10,7 millj.
Víðimelur - laus strax
Falleg fimm herb. 120 fm hæð í
einu elstu og fallegustu húsum í
gamla miðbænum. Húsið er
byggt árið 1880 og skiptist í
anddyri, borðstofu, stofu, þrjú
herbergi, baðherb. og eldhús.
Sameiginlegt þvottahús. Góð
lofthæð er í íbúðinni og stórir
gluggar sem gera íbúðina mjög bjarta og sérstaka. V. 18,9 m. Á
jarðhæð eru einnig til sölu tvær samþ. ca 55 fm 2ja herbergja íbúðir.
Laufásvegur - hæð
Miðborgin | Sýning fransks
mannfræðings og ljósmynd-
ara á sýn sinni á frönsku
skútusjómennina sem
veiddu við Íslandsstrendur
frá miðri nítjándu öld fram á
þá tuttugustu er nú í gangi í
húsakynnum Alliance fran-
çaise í Reykjavík, og stend-
ur út mánuðinn.
Hervé Jézéquel ljósmynd-
ari og Vanessa Doutreleau
mannfræðingur ferðuðust
um slóðir frönsku sjómann-
anna á Íslandi árið 2003,
leituðu minja og ræddu við
fólk sem kunni sögur af sjó-
mönnunum. Doutreleau segir að
þau hafi komið hingað í marsmán-
uði til þess að upplifa Ísland á þann
hátt sem sjómennirnir sáu það, ekki
að sumri til þegar veður er betra.
Leiðin lá um slóðir sjómannanna á
Patreksfirði, Grundarfirði, Fá-
skrúðsfirði, Skeiðarársandi og víð-
ar.
Ekki er til mikið af munum eftir
þessa sjómenn frá fjarlægu landi
sem komu hingað til að sækja sjóinn,
en þó leynist alltaf eitthvað þegar
vel er leitað, segir Doutreleau. Bæði
var eitthvað um að munir væru til á
söfnum, mest á Patreksfirði og Fá-
skrúðsfirði, en einnig var nokkuð
um muni í einkaeign sem ef til vill
höfðu verið keyptir eftir strand
skipa, t.d. skipsklukka og önglar af
tegund sem ekki var notuð
hér við land þar til frönsku
sjómennirnir fóru að venja
komur sínar hingað.
Doutreleau segir að ekki
síst hafi þau skoðað grafreiti
þar sem franskir sjómenn
sem létust hér við land eru
grafnir, en nokkuð er af slík-
um gröfum víða um land.
Kom til að rannsaka álfa
Mannfræðingurinn Do-
utreleau hefur verið mikið
hér á landi síðan 1997, en þá
kom hún hingað til lands til
að rannsaka álfatrú Íslend-
inga. Hún segist svo hafa fengið
áhuga á þessum hluta sameig-
inlegrar sögu Íslendinga og Frakka
og ákveðið að skoða þessi samskipti
betur. Hún segir augljóst að Íslend-
ingar séu að fá meiri áhuga á þess-
um samskiptum en áður hafi verið,
og bendir á nýlegt safn á Fáskrúðs-
firði, Fransmenn á Íslandi, máli sínu
til staðfestingar.
Á slóðum franskra skútusjómanna
Morgunblaðið/Jim Smart
Vanessa Doutreleau og Hervé Jézéquel unnu um-
fangsmikið starf í heimildaöflun vegna sýning-
arinnar um franska sjómenn.
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ AKUREYRI
Breiðholt | Fyrsti brettagarður Íþrótta-
og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar
var tekinn í notkun við íþróttamiðstöðina
Austurberg í Breiðholti á föstudaginn.
Hefur það lengi verið baráttumál hjóla-
brettafólks í Reykjavík að aðstaða til að
stunda ýmsar brettakúnstir yrði byggð
upp. Hefur ÍTR ákveðið að bregðast við
þessari þörf með því að byggja bretta-
garða við helstu frístundamiðstöðvar
borgarinnar, og verða næstu garðar sett-
ir upp í Grafarvogi og við Tónabæ.
Í tilefni dagsins hélt Brettafélag
Breiðholts brettamót í nýja garðinum, og
var öllum heimil þátttaka.
Brettin fá bækistöð
Morgunblaðið/Jim Smart
Hópur brettafólks í nýja brettagarðinum í Breiðholti
„Ég hef bara ekkert
heyrt í honum í nokkra
daga,“ segir Sonja
Kristinsson sem býr á
fimmtu hæð í fjölbýlis-
húsi við Drekagil. Fyrir
nokkru gerði þrastapar
sér hreiður í blómavasa,
í öruggu skjóli við sýpr-
usinn sem þar vex og
dafnar. Nú hefur Sonja
áhyggjur af karlfugl-
inum, hann virðist hafa
gufað upp, en frúin má
fyrir vikið hafa sig alla
við að fæða unga sína.
Þeir litu dagsins ljós
fyrir um viku og þurfa
sífellt meira til sín með
hverjum deginum. „Ég
tók fyrst eftir því að
það var alltaf svo mikið
kusk á svölunum hjá
mér,“ segir Sonja sem
áttaði sig svo á því að
þrastaparið átti þar sök
á. Var í óða önn við
hreiðurgerðina og skildi
þá gjarnan eftir sig
verksummerki. Hún hef-
ur svo fylgst grannt
með gangi mála hjá fjöl-
skyldunni. Þrastamóð-
irin lætur sér nú orðið
fátt um finnast þótt
Sonja sitji út á svölum
og lesi í bók. „Hún er al-
veg orðin sátt við það að
ég sitji hér í stólnum mínum og
fylgist með, en var í fyrstu ekki
of hrifin af nærveru minni,“ segir
hún. „Við höfum náð ágætlega
saman. Ég læt nú ekki þvæla mér
af svölunum.“
Sonja segir að karlinn hafi haft
fyrir vana að syngja bæði kvölds
og morgna. „Hann var mættur
hér á handriðið kl. 6 á morgnana
og söng til 7 og svo hóf hann aft-
ur upp raust sína kl. 11 á kvöld-
in,“ segir hún en ekkert hefur
heyrst í honum í nokkra daga.
„Það er alveg synd, hann söng
svo fallega. Hann hlýtur að hafa
dáið eða þá hann hefur yfirgefið
fjölskylduna,“ segir Sonja og
hallast þó frekar að fyrri tilgát-
unni. Telur í það minnsta fullvíst
að eitthvað sé bogið við brott-
hvarfið. Nú er móðirin ein með
ungana fimm og gerir vart annað
en afla fæðu, flýgur niður á tún
sunnan við húsið og tínir þar til
orma og annað ætilegt sem til
fellur. „En hún stendur sig nú
vel.“
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Svona geyin mín! Þrastamamman kemur færandi heim í hreiðrið, búin að
fanga nokkra gómsæta orma sem ungarnir fúlsa ekki við.
Aflar fæðu
í óða önn
Einstæð þrastamóðir á svölum við
Drekagil með fimm sísvanga unga
Við viljum meira! Við viljum meira ...
Ekkert á að fara til spillis, mamman sér til
þess að öll fæðan rati rétta leið.