Morgunblaðið - 23.06.2004, Side 17

Morgunblaðið - 23.06.2004, Side 17
MINN STAÐUR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 2004 17 Kjörfundur í Eyjafjarðarsveit vegna kjörs forseta Íslands 26. júní nk. verður í Hrafnagilsskóla frá kl. 10.00-22.00. Hægt verður að ná í kjörstjórn á kjördag í síma 463 1137. Kjörstjórn Kjörfundur vegna kjörs forseta Íslands 26. júní 2004 Landsmót hestamanna á Hellu 28. júní - 4. júlí Hátíð hestamanna og allrar fjölskyldunnar Forsala aðgöngumiða er á völdum Esso bensínstöðvum víða um land, sjá á esso.is og landsmot.is Nú fást sérstakir miðar í stúkusæti! Forsala miða í stúkusæti er eingöngu í Nesti á bensínstöð Esso við Ártúnshöfða og í síma 514 40 30. 28. JÚNÍ - 4. JÚLÍ www.landsmot.is Í S L E N S K A A U G L Ý S I N G A S T O F A N / S I A . I S L A N 2 5 0 4 9 0 6 / 2 0 0 4 Fjölbreytt skemmtiatriði á hverjum degi Fjölbreyttir gistimöguleikar Góð tjaldstæði Stutt í golf Áhugaverðir ferðamannastaðir í nágrenninu Barnaleikvöllur Barnagæsla Spaðarnir hleypa á músíksprett á fimmtudagskvöld Stuðmenn halda uppi fjörinu á föstudagskvöld Milljónamæringarnir með Stefáni Hilmars og Bogomil Font slá í á laugardagskvöld Kynnið ykkur dagskrána og leitið frekari upplýsinga á www.landsmot.is Forsala miða hefst í dag FRAMTÍÐARHLUTVERK Fjórð- ungssjúkrahússins á Akureyri verður aðalumræðuefni ársfundar FSA sem haldinn verður á fimmtudag, 24. júní. Fulltrúar ráðu- neytis heil- brigðismála, landlæknir, fulltrúar heilbrigðisstofn- ana á Ísafirði, Sauðárkróki, Húsavík og Austurlandi auk FSA munu þar fjalla um sjúkrahúsið í nútíð og fram- tíð. Á fundinum verður einnig und- irritaður samningur um kaup á seg- ulómtæki og þeim starfsmönnum sem náð hafa 25 ára starfsaldri hjá FSA verður veitt viðurkenning og þeir sem hætt hafa störfum verða heiðr- aðir. Fundurinn hefst kl. 13.30 í ný- byggingu sjúkrahússins, Suðurálmu á annarri hæð og er öllum opinn. Framtíð FSA rædd á ársfundi MARGRÉT Víkingsdóttir hefur ver- ið ráðin í starf upplýsingafulltrúa hjá Dalvíkurbyggð og mun hún hefja störf í haust. Alls sóttu 42 um starfið. Hún tekur við starfinu af Þórði Kristleifssyni sem mun láta af störfum síðar í sumar. Margrét er fædd 1978 og er með B.Sc. gráðu í rekstr- arfræði með áherslu á markaðsmál frá Háskólanum á Akureyri. Eig- inmaður Margrétar er Klemenz Bjarki Gunnarsson, verkefnisstjóri á Alþjóðasviði Háskólans á Akureyri. Þau eru búsett í Svarfaðardal og eiga eitt barn. 42 sóttu um starf upplýsingafulltrúa Margrét Víkingsdóttir ♦♦♦ ♦♦♦ LISTASUMAR er hafið á Akureyri, í 12. sinn. Fram- undan er fjöldi viðburða af ýmsu tagi, en Listasumar stendur yfir í 10 vikur, lýk- ur með Akureyrarvöku í lok ágúst. Nefna má að í kvöld, mið- vikudagskvöld, verður Jónsmessuhátíð í Kjarna- skógi, frá kl. 19 til 22. Þar geta gestir gengið um á milli stöðva og fylgst með en börn taka virkan þátt í því sem fram fer. Þau hafa verið í smiðju hjá brúðugerðarmanninum Bernd Ogrodnik og sýna af- raksturinn í skóginum. Þá verður Jónsmessubál tendrað og sunginn brekku- söngur. Heitir fimmtudagar hafa skipað sér sess í dagskrá Lista- sumars og mun djassinn áfram duna í Deiglunni á fimmtudags- kvöldum. Djangódjasshátíðin er á sínum stað í byrjun ágúst með Robin Nolan tríó í fararbroddi. Í hádeginu á föstudögum verða svo tónleikar í Ketilhúsinu. Sumartónleikar verða í Ak- ureyrarkirkju, boðið verður upp á sögugöngur um hverfi bæjarins og söfn taka virkan þátt í dagskránni. Myndlistasýningar verða opnaðar um allan bæ í allt sumar, svo sem venja er. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Listrænar veitingar: Boðið var upp á léttar veitingar við opnun Listasumars á Akureyri. Listasumar í tólfta sinn AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 Sýning á steindu gleri| Sigríður Ásgeirsdóttir hefur opnað sýningu á steindu gleri á Amtsbókasafninu á Akureyri. Sýninguna kallar hún „30 dagar í Kevalaer“ og er þetta þrett- ánda einkasýning hennar, en að auki hefur hún tekið þátt í fjölda samsýn- inga. Verkin vann hún á verkstæði í Hein Derix í Kevalaer í Þýskalandi síðastliðið vor. Fyrirlestur| Í tengslum við sýn- inguna heldur hún fyrirlestur á Amtsbókasafninu í dag, miðvikudag- inn 23. júní kl. 17. Fjallar hún þar al- mennt um glerlist og um þá tækni og verkferil sem er beitt við sköpun steindra glerlistaverka. Einnig mun Sigríður fjalla um tilurð verkanna á sýningunni og um feril sinn. Sýning Sigríðar stendur yfir á Amtsbókasafninu til 16. júlí næst- komandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.