Morgunblaðið - 23.06.2004, Side 27
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 2004 27
Sextíu og fjögur ár
eru langur tími af
mannsævi.
Árið 1940 brautskráðust 38 stúd-
entar frá Menntaskólanum á Akur-
eyri. Glaður hópur, er leit björtum
augum til framtíðar. Síðan hafa
margir úr hópnum fallið frá. Nú síð-
ast Þórir Guðmundsson, Vopnfirð-
ingur að uppruna og viðskiptafræð-
ingur að mennt. Þórir var ljúfur í
skapi, glaður og reifur, en jafnframt
alvörumaður.
Á bekkjarsamkomum okkar, sem
við köllum MA 40, en þær hafa verið
haldnar árlega í 64 ár, var Þórir
ávallt forsöngvari, enda hafði hann
ágæta söngrödd og mjög tónviss.
Þegar á unglingsárum fór hann að
syngja með kórum. Söng m.a. með
karlakórnum Geysi á Akureyri. Síð-
ar söng hann með ýmsum kórum í
Reykjavík.
Og síðast í vor er við bekkjarfélag-
ar hans komum saman stjórnaði
Þórir söngnum eins og vanalega og
söng manna mest og best. Ætíð var
ÞÓRIR
GUÐMUNDSSON
✝ Þórir Guðmunds-son fæddist í
Lyngen í Tromsfylki
í Noregi 9. maí 1919.
Hann lést á Clinica
Salus-sjúkrahúsinu á
Benalmadena á
Spáni mánudaginn
31. maí síðastliðinn
og var útför hans
gerð frá Fossvogs-
kirkju 14. júní.
skólasöngurinn Undir
skólans menntamerki
sunginn og svo fleiri
lög frá skólaárunum í
MA og endað á
Rammaslag eftir
Stephan G., en það er
12 vísna bálkur. Hann
hefur verið sunginn í
bekkjarhófum okkar
frá fyrstu tíð.
Það fór um mig ein-
hver hrifningaralda
þegar Þórir hóf söng-
inn.
Grána kampar græði á,
gjálpir hampa skörum.
Titra glampar til og frá,
tifur skvampa í fjörum.
Nokkrir tóku undir með Þóri, en
eftir tvær eða þrjár vísur stóð hann
einn uppi og söng allt kvæðið. Sjald-
gæft held ég að menn á hans aldri
séu svona minnugir.
Þórir var dagfarsprúður maður,
samviskusamur í öllu sem honum
var trúað fyrir.
Ungur kvæntist hann Arnfríði
Snorradóttur. Hún bjó honum gott
heimili og studdi hann í öllu. Gott var
að koma á þeirra fallega heimili og
njóta gestrisni þeirra og sjá fallega
garðinn þeirra. Einnig þótti okkur
hjónum gaman að fá þau í heimsókn
Yfir þeim var gleði og hlýja.
Minningar margar koma í hugann
þegar Þórir er kvaddur. Alltaf
tryggur og umhyggjusamur.
Við hjónin vorum mjög þakklát
þegar hann kom að útför Þorgerðar
dóttur okkar á síðasta ári. Handtak
hans var ætíð traust. En þennan dag
var það enn þéttara og hlýlegra en
fyrr. Þannig var Þórir. Hann brást
aldrei.
Við bekkjarbræður hans og fjöl-
skyldur okkar þökkum góðum vini
áratuga samfylgd og vináttu.
Við sendum Arnfríði, börnum
þeirra og fjölskyldum innilegar sam-
úðarkveðjur.
Guð blessi minningu um góðan
dreng.
Sigurður Guðmundsson,
Aðalbjörg Halldórsdóttir.
Elsku afi. Þegar mamma sagði
mér að hún þyrfti að fara til Spánar
vegna þess að þú lægir veikur á spít-
ala trúði ég því af öllu hjarta að þér
myndi batna og þú kæmir heill
heilsu til Íslands. En það gerðist
ekki. Ég er samt ánægð því að allir
sögðu að athöfnin á Spáni hefði verið
svo falleg. Eitt finnst mér svolítið
skondið með hann afa minn, hann
elskaði marmelaði og keypti fimm
krukkur af því á Spáni, því honum
fannst það svo voðalega gott.
Þegar mér var sagt að þú hefðir
farið frá okkar heimi skildi ég það
ekki fyrr en eftir nokkra daga. Um
daginn gisti ég hjá vinkonu minni og
um kvöldið þegar við vorum að fara
að sofa fór ég að hágráta út af afa, en
vinkona mín var voða góð og huggaði
mig eins lengi og þurfti.
Það er skrítin tilfinning að sjá ein-
hvern aldrei aftur sem maður hefur
þekkt allt sitt líf. Að lokum vil ég að
þú vitir að þú ert afi minn og munt
alltaf vera.
Þín
Malín.
Það er komið að leið-
arlokum. Kær frændi
hefur kvatt þennan
heim og öðlast frið og
ró sem hann þráði svo
mjög. Minningarnar
leita á mig þegar ég fylgi föðurbróð-
ur mínum síðasta spölinn. Þótt sam-
verustundirnar hafi orðið býsna
strjálar hin síðari ár, sem er ein-
kennandi fyrir hraðann í nútímasam-
félagi, þá var mikill og tíður sam-
gangur milli fjölskyldnanna áður
fyrr. Ég naut þess sérstaklega að
kynnast Jóa og Róru vel, því fjög-
urra ára gamall fór ég í fóstur til
þeirra sumarlangt. Einkum eru mér
JÓHANNES KR.
ÁRNASON
✝ Jóhannes Krist-berg Árnason
fæddist í Ólafsvík 24.
júlí 1921. Hann lést á
sambýli aldraðra í
Gullsmára 11 í Kópa-
vogi 10. júní síðast-
liðinn og var útför
hans gerð frá Bú-
staðakirkju 21. júní.
minnisstæðar stund-
irnar í sumarbústaðn-
um við Meðalfellsvatn,
þar sem þau áttu sitt
annað heimili. Í minn-
ingunni var alltaf gott
veður og við eyddum
ófáum stundum við
ærsl og gleði, og báts-
ferðirnar á vatninu
voru mikið ævintýri
fyrir fjögurra ára
snáða. Og þótt frænd-
systkin mín, Árni og
Sólveig, væru komin á
unglingsár þegar þetta
var, voru þau oftar en
ekki til í að sinna þessum unga
frænda sínum og fyrir það er ég
þakklátur. En það var líka gott að
vera með þeim í Ásgarðinum. Á
þessum árum fann ég vel, hversu
barngóður Jói var og hvað hann var
áhugasamur um allt það sem við
börnin tókum okkur fyrir hendur og
fylgdist vel með. Þess hafa barna-
börn hans og barnabarnabörn líka
fengið að njóta.
Jói var afskaplega þægilegur mað-
ur í umgengni, hafði góða nærveru,
var skemmtilegur og glettinn. Okkur
bræðrum þótti alltaf gaman þegar
hann kom í heimsókn. Stundum kom
hann sem pípulagningameistari til
að sinna einhverjum viðgerðarmál-
um heima, og þá var alltaf farið með
honum og fylgst grannt með hverju
handtaki, sem vitaskuld kveikti
áhuga ungra drengja. En oftast
komu þau Róra í fjölskylduheim-
sókn, þá var nefnilega stundum
skroppið í kaffi til vina og ættingja,
og þurfti tilefnið þá ekki að vera
neitt sérstakt. Þau voru ávallt au-
fúsugestir á heimili foreldra minna.
En þótt Jói væri gamansamur og
fyndist ætíð létt yfir honum, fylgdi
honum skuggi þunglyndis, sem er
ættarfylgja úr föðurætt þeirra
systkina. Oft á tíðum þurfti hann að
glíma við þann miskunnarlausa sjúk-
dóm sem svo erfitt er að ráða bót á,
og ágerðist hann með árunum. Ég er
því sannfærður um að þegar Jói
frændi kveður nú þennan heim eftir
langa og annasama ævi, fær hann þá
hvíld sem hann svo mjög verðskuld-
aði. Á kveðjustundu vil ég þakka Jóa
frænda fyrir uppeldið og vináttu alla
tíð og votta Róru, Árna og Sólveigu
og öðrum ástvinum innilega samúð.
Árni Þór Sigurðsson.
Minningargreinum þarf að
fylgja formáli með upplýsing-
um um hvar og hvenær sá
sem fjallað er um er fæddur,
hvar og hvenær dáinn, um
foreldra hans, systkini, maka
og börn og loks hvaðan útför-
in verður gerð og klukkan
hvað.
Ætlast er til að þetta komi
aðeins fram í formálanum,
sem er feitletraður, en ekki í
greinunum sjálfum.
Formáli
minning-
argreina
Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er
sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf út-
prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu-
síma og heimasíma). Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda
þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn
einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar
skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17
dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
INGIBJÖRG ÁRNADÓTTIR,
Espigerði 2,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík
fimmtudaginn 24. júní kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð, en
þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á
Fríkirkjusöfnuðinn í Reykjavík.
Árni Þórarinsson, Valgerður Þ. Jónsdóttir,
Steinunn Þórarinsdóttir, Jón Ársæll Þórðarson,
Pétur Hrafn Árnason,
Þórarinn Ingi Jónsson,
Þórður Ingi Jónsson.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
GRÉTAR ÓLAFSSON
læknir,
Hvassaleiti 56,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtu-
daginn 24. júní klukkan 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en
þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Lands-
samtök hjartasjúklinga.
Hólmfríður Magnúsdóttir,
Sólveig Grétarsdóttir, Guðmundur A. Guðmundsson,
Grétar Örn Guðmundsson, Jóhanna Fríða Guðmundsdóttir.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
SIGURLAUG SIGGEIRSDÓTTIR,
Seli,
Stokkseyri,
lést á hjúkrunarheimilinu Kumbaravogi, Stokks-
eyri, miðvikudaginn 16. júní.
Útför hennar fer fram frá Stokkseyrarkirkju
laugardaginn 26. júní kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigríður Ísafold, Eyjólfur Jónas Sigurðsson,
Elín Ingólfsdóttir, Borgar Þorsteinsson,
Ingibjörg Kristín Ingólfsdóttir, Birgir Kjartansson,
Siggeir Ingólfsson, Regína Guðjónsdóttir,
Ingólfur Gunnar Vigfússon.
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
ÁRNA SNÆBJÖRNS VALDIMARSSONAR
vélfræðings,
Rauðalæk 25.
Dómhildur Guðmundsdóttir,
Sigríður Árnadóttir Bernhöft, Birgir Bernhöft,
Magnús Árnason, Guðný Guðmundsdóttir,
Marta Árnadóttir, Hafsteinn Daníelsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærs sambýlismanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
VILBERGS SKARPHÉÐINSSONAR,
Jötunsölum 2,
Kópavogi.
Guðbjörg Jónsdóttir,
Sigrún Vilbergsdóttir, Guðni Stefánsson,
Erna Vilbergsdóttir, Sverrir Sæmundsson,
Valgerður Vilbergsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGRÚN ÁRNADÓTTIR,
Tangagötu 15a,
Ísafirði,
sem lést á Sjúkrahúsinu á Ísafirði mánudaginn
21. júní, verður jarðsett frá Ísafjarðarkirkju
föstudaginn 25. júní kl. 14.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á líknarstofnanir.
Árný H. Oddsdóttir, Kristján Friðbjörnsson,
Sigurður Oddsson, Hrefna H. Hagalín,
barnabörn og barnabarnabörn.