Morgunblaðið - 23.06.2004, Side 36
MENNING
36 MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Yfir 5.000 miðar seldir í forsölu
fim. 24 júní kl. 19.30, fös. 25. júní kl. 19.30,
mið. 30. júní kl. 19.30, fim. 1. júlí kl. 19.30,
fös. 2. júlí kl. 19.30, sun. 4. júlí kl. 17.00,
lau. 10. júlí kl. 16.30 & lau. 10. júlí kl. 19.30.
Ósóttar pantanir seldar daglega
Til sölu er heil húseign
sem er um 1.120 fm á
3 hæðum ásamt 61 fm
bílskúr. Einstaklega
mikið útsýni frá efri
hæðum hússins. Ýmsir
möguleikar eru á að
nýta húsnæðið. Næg
bílastæði bæði að
framanverðu og einnig
aftan við húsið. Húseignin er laus nú þegar.
Nánari uppl. veitir Kristberg í síma 595 9000
eða 892 1931.
Auðbrekka 10 – Kópavogi
24. júní kl. 12.00:
Vilborg Helgadóttir sópran
og Kjartan Sigurjónsson orgel
26. júní kl. 12.00:
Erling With Aasgård orgel
27. júní kl. 20.00
Erling With Aasgård
frá Noregi leikur verk m.a.
eftir Dupré, Duruflé,
Bach og Vierne.
Sumarkvöld við orgelið
Listahátíð var gagnrýnd áþessum vettvangi á sunnu-dag, fyrir að sinna „æðri
listum fyrir útvalda“ en vanrækja
hinn almenna listunnanda, með því
að bjóða ekki upp á popp- eða rokk-
tónleika. Ein besta tónleikaminning
mín er einmitt frá fyrstu Listahátíð
í Reykjvík – þeim stórviðburði þeg-
ar hljómsveitin
Led Zeppelin
spilaði í troð-
fullri Laug-
ardalshöll fyrir
gagntekinn
unglingaskara höfuðborgarinnar.
Annað eins „sánd“ og annað eins
„dræv“ hafði maður aldrei heyrt.
Robert Plant og Jimmy Page voru
settir á guðastall, veinandi blúsað
rokk á raddbönd og gítar, af tilfinn-
ingu sem maður hafði ekki heyrt í
neinni tónlist áður. Í dag er öldin
önnur, og sem betur fer eru popp-
og rokktónleikar erlendra lista-
manna ekki slík eylönd í menning-
arlífi höfuðborgarinnar og þá var.
Að því leyti má fullyrða að hlutverk
Listahátíðar hafi breyst hvað slíka
tónleika varðar, og jafnvel má full-
yrða að einmitt fyrir tilstilli og
rækt Listahátíðar við popp og rokk
hafi það landslag breyst í tímans
rás. Hámenning og lágmenning eru
úrelt hugtök.
Nú eru kollegar Zeppelin í DeepPurple komnir til landsins og
halda tvenna tónleika, í kvöld og
fimmtudagskvöld. Í þá daga fannst
manni Deep Purple ekki jafnast á
við Zeppelin – kannski einmitt
vegna tækifærisins sem Listahátíð
skaffaði okkur unglingunum, en
góðir voru þeir samt. Deep Purple
var hljómsveit sem engan veginn
var hægt að forakta; ef maður á
annað borð hafði gaman af tónlist.
Skólaböllin, Lög unga fólksins,
partíin – lagið Strange Kind of
Woman á fullum styrk – eldra fólk-
inu mikið áhyggjuefni, en svona átti
þetta bara að vera. Ný menning var
í mótun, tilfinningaþrungin, raf-
mögnuð, melódísk hávaðamúsík,
sem átti eftir að móta fleiri kyn-
slóðir, löngu áður en hugtökin „á
fullu blasti“ og „þungarokk“ urðu
til. Það verður vonandi ánægjulegt
að ganga á vit nostalgíunnar í
Laugardalshöll, og rifja upp kynnin
af þessari frábæru hljómsveit.
Aðrir magnaðir tónleikar semlifa munu í minningunni um
ókomna tíð eru tónleikar Kamm-
ersveitar Reykjavíkur og Hamra-
hlíðarkóra Þorgerðar Ingólfs-
dóttur í ársbyrjun 1998, þar sem
flutt voru verk eftir eistneska tón-
skáldið Arvo Pärt, að honum sjálf-
um viðstöddum. Þeir tónleikar gátu
af sér nýtt tónverk, „which was the
son of“, sem Pärt samdi fyrir Þor-
gerði, og flutt var á tónleikum
Radda Evrópu á Menningarborg-
arárinu. Samstarf leiðir nefninlega
af sér samstarf og það er menning-
unni mikilvægt. Nú er Þorgerður á
leið á kóramótið Evrópa Cantat, í
borginni Tartu í heimalandi Pärts
með Kór Menntaskólans við
Hamrahlíð. Borgarstjóri Tartu-
borgar hefur óskað eftir að kórinn
opni hátíðina með íslenskri tónlist.
Kórinn tekur einnig þátt í Söng- og
danshátíð Eistlands, sem haldin er í
höfuðborginni Tallin fjórða hvert
ár. Með í ferðinni til Eistlands verð-
ur svo auðvitað tónverkið sem Pärt
samdi fyrir Þorgerði og vafalítið
ýmislegt fleira, auk íslensku tónlist-
arinnar. Kórar Þorgerðar við
Hamrahlíðina hafa löngum verið
meðal okkar bestu menningar-
sendiherra um allan heim, og oft
unnið til viðurkenninga og verð-
launa fyrir söng sinn. Það verður
því örugglega mörgum kærkomið
tækifæri að fá að smella kveðju-
kossi á kórinn með því að sækja
tónleika hans í Háteigskirkju í
kvöld klukkan hálfníu, með hluta
þeirrar efnisskrár sem Eistlend-
ingum verður boðið að heyra.
Getur nokkur gleymt sýningunniJörðin séð frá himni, á Aust-
urvelli í fyrra, með heillandi ljós-
myndum Frakkans Yann Arthus-
Bertrand? Ég spái því að sýningin
sem nú er búið að setja upp á Aust-
urvelli veki ekki minni eftirtekt.
Þar eru Íslendingar séðir frá jörðu
í aðalhlutverki. Ég orða þetta þann-
ig, því þarna getur að líta okkur
sjálf í okkar jarðbundnustu mynd,
séð með augum Sigurgeirs Sig-
urjónssonar ljósmyndara og Unnar
Jökulsdóttur rithöfundar. Í bókinni
sem út er komin í tilefni sýning-
arinnar getur að líta hvernig þau
Sigurgeir og Unnur hafa náð að
fanga einhvern alveg sérstakan
kjarna okkar hversdagslega sjálfs;
við eldhúsborðið, úti á túni, í stáss-
stofunni, í beitningarskúrnum, á
kóræfingu, með vinum okkar og
fjölskyldum, innan um dýrin, góbel-
ínpúðana, gunnarsmæjónesið,
lömbin, matarkexið og mávastellið.
Þetta er ekki „hin“ þjóðin sem við
sjáum hjá Völu Matt, þetta er þessi
þjóð.
Menning á
háreistri jarðhæð
AF LISTUM
Bergþóra Jónsdóttir
begga@mbl.is
’Það má jafnvel fullyrðaað fyrir rækt Listahá-
tíðar við popp og rokk
hafi það landslag breyst
í tímans rás. Hámenn-
ing og lágmenning eru
úrelt hugtök.‘
UM SEXTÍU málverk sem boðin voru upp hjá Sotheby’s í London á mánu-
dagskvöld höluðu inn um 61 milljón punda, sem samsvarar ríflega átta millj-
örðum íslenskra króna.
Uppboðið er sagt vera stærsta sala á nútímamyndlist í Bretlandi í áratug
og eru málverkin, sem þar voru seld, meðal annars eftir Picasso, Renoir,
Monet, Van Gogh og Modigliani. Verk þess síðastnefnda var verðhæst á upp-
boðinu, selt á um 6,2 milljónir punda eða um 820 milljónir íslenskra króna.
Málverk fyrir 8 milljarða
Reuters
Eitt verka Pablos Picassos sem seldist á uppboðinu.
NORRÆN dómnefnd hefst handa í
lok vikunnar við að velja úr þeim 449
nýju stutt- og heimildarmyndum
sem sendar hafa verið í norrænu
kvikmyndahátíðina og -keppnina
Nordisk Panorama. Hátíð sem hald-
in er í 15. sinn verður að þessu sinni í
Reykjavík og hefst 24. september.
Í fréttatilkynningu frá íslenskum
skipuleggjendum hátíðarinnar kem-
ur fram að aldrei hafi eins margar
myndir verið sendar inn í keppnina
og á það einnig við um íslensku
myndirnar sem eru alls 40.
Síðast fór Nordisk Panorama
fram á Íslandi fyrir fimm árum.
Hátíðinni verður slitið 29. sept-
ember með því að sýna sigurmynd-
ina undir berum himni í útibíói sem
sett verður upp í miðborginni.
Útibíó í mið-
borginni
MAROKKÓSKI rithöfundurinn
Tahar Ben Jelloun, sem er búsettur í
Frakklandi, hlaut alþjóðlegu Impac-
bókmenntaverðlaunin í ár fyrir bók
sína „Cette aveuglante absence de
lumière“ eða „Þessi blindandi fjar-
vera birtu“. Bók Tahar Ben Jellouns
var valin af lista bóka sem 162 al-
menningsbókasöfn í 47 löndum
höfðu tilnefnt til þessara virtu verð-
launa.
Dómnefndin sagði í áliti sínu að
bókin væri skrifuð með brennandi
einfaldleika og miklum glæsibrag.
Bókin er byggð á sannsögulegum at-
burðum og segir frá hinum enda-
lausu kvölum sem þeir sem sluppu
úr þrælabúðum í Tazmamart í Mar-
okkó, sem var lokað árið 1991, upp-
lifðu á átján ára dvöl sinni þar.
„Saga dýflissa og þeirra sem lifðu af
– lifandi dauðra – er á sama tíma lýs-
ing á helvíti án takmarkana og and-
legum krafti og lífsvilja,“ segir í um-
sögn dómnefndar.
Árið 1987 fékk Tahar Ben Jelloun
Goncourt-verðlaunin. Hann kom í
heimsókn hingað til lands fyrir rúm-
um tveimur árum.
Ben Jelloun
hlaut Impac-
verðlaunin
EINN þekktasti organisti
Breta, Christopher Herrick,
hélt tónleika í Hallgríms-
kirkju á sunnudagskvöldið.
Þetta er í fimmta sinn sem
Herrick sækir okkur heim;
mér er í fersku minni stór-
brotinn flutningur hans á
Fantasíu og fúgu um þema
Meyerbeers úr óperunni
Spámanninum fyrir tveimur
árum. Á tónleikunum á
sunnudagskvöldið lék hann
aðra tónsmíð eftir Liszt,
„Weinen, Klagen, Sorgen,
Zagen“, tilbrigði við stef úr
kantötu eftir Bach. Liszt
samdi verkið er hann missti
tvö börn sín og er tónlistin
átakamikil tjáning reiði og
sorgar er víkur í lokin fyrir
fallegum, innilegum sálmi.
Herrick flutti tónsmíðina
af innblásinni snilld; leikur
hans var tæknilega úthugs-
aður og öruggur; túlkunin í
senn öguð og tilfinn-
ingaþrungin. Þegar sálm-
urinn tók óvænt við og varð
að gríðarlegum fögnuði í há-
punkti tónlistarinnar var það
svo fallegt að einstakt hlýtur
að teljast. Óhætt er að full-
yrða að þetta hafi verið eitt
mergjaðasta augnablik í ís-
lensku tónlistarlífi í lengri
tíma.
Samanborið við Liszt voru
hin viðfangsefni Herricks
ekki alveg jafn glansandi, en
hann spilaði þó ávallt vel eins
og við var að búast. Þrír
sálmforleikir Bachs við að-
ventusálminn Nú kemur
heimsins hjálparráð voru t.d.
sérlega hugljúfir og hin
mikla svíta op. 5 eftir Mau-
rice Duruflé var glæsilega
leikin. Sérstaklega verður að
nefna afburðaflutning hans á
síðasta þætti svítunnar, tokk-
ötunni frægu sem var svo
haganlega byggð upp og með
svo markvissri stígandi að
unaður var á að hlýða. Þetta
voru frábærir tónleikar;
megi Herrick koma hingað
til tónleikahalds aftur og aft-
ur.
TÓNLIST
Hallgrímskirkja
ORGELTÓNLEIKAR
Christopher Herrick lék verk eftir
Widor, Guilmant, Bach, Liszt og
Duruflé. Sunnudaginn 20. júní.
Jónas Sen
ÞAÐ verður áhugavert að
fylgjast með Árna Ólafi Ás-
geirssyni kvikmyndagerð-
armanni á komandi árum, en
hann lauk nýlega námi við
kvikmyndaskóla Póllands og
teflir fram frábæru byrj-
andaverki með stuttmynd-
inni Dagur Önnu. Það er
reyndar enginn byrj-
endabragur á verkinu, heldur
sýnir leikstjórinn frábær tök
á stuttmyndaforminu og
áberandi hæfileika sem
handritshöfundur í þessari
látlausu en eftirminnilegu
stuttmynd.
Sagan á sér stað
á einum degi í til-
veru Önnu (Iben
Hjejle), þrítugrar
einstæðrar móður
sem býr í Kaup-
mannahöfn. Á um-
ræddum degi er
brúðkaup í aðsigi,
sem Önnu langar
lítið til að vera við.
Brúðguminn er
nefnilega barns-
faðir Önnu og brúðurin kon-
an sem „kom upp á milli“
þeirra hjóna. Við fylgjumst
með aðalpersónunni þar sem
hún reynir að harka af sér og
láta viðburðinn ekki henda
sér úr jafnvægi. En áður en
nóttin er úti kemur í ljós að
Anna er ekki sú eina sem
glímir við mótsagnakenndar
tilfinningar um ást, tryggð,
stolt og fyrirgefningu.
Í Degi Önnu tekst Árna
Ólafi og samstarfsfólki hans
að fjalla um flóknar tilfinn-
ingar á einkar næman hátt.
Dönsku leikararnir gera það
sem norrænir kvikmynda-
leikarar virðast kunna best
allra, að miðla djúpum til-
finningaumbrotum án þess
að grípa til leikhúslegra eða
dramatískra tilþrifa, svo að
áhorfandanum finnst hann
verða vitni að togstreitum í
lífi raunverulegs fólks.
Leikkonan Iben Hjejle er
miðpunkturinn í þeirri frá-
bæru vinnu, og minnir
frammistaða hennar á það
hvað hægt að gera merkilega
hluti þegar svona góðir leik-
arar eru fyrir hendi. En nóg
um það, Dagur Önnu er í
heild ákaflega vel heppnað
verk, sem er til þess fallið að
styrkja áhuga manns á hinu
knappa og einfalda formi
stuttmyndarinnar.
STUTTMYND
Reykjavík Shorts & Docs
Leikstjórn og handrit: Árni Ólafur
Ásgeirsson. Aðalhlutverk: Iben
Hjejle, Troela Lyby og Stine Sten-
gade. Stuttmynd. 27 mín. Dan-
mörk, 2003.
DAGUR ÖNNU / ANNAS DAG
Heiða Jóhannsdóttir
Úr kvikmyndinni Dagur Önnu.