Lesbók Morgunblaðsins - 05.07.2003, Blaðsíða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 5. JÚLÍ 2003 3
E
NGINN veit hvað átt hefur
fyrr en misst hefur.
Mér hefur oft orðið hugsað
til þess arna þegar ég rölti út í
náttúruna hér á fósturjörðinni
mér til yndisauka og heilsu-
bótar. Alls staðar blasir það
við, rennandi, lifandi vatnið,
blátært og glitrandi. Ekki aðeins í óbyggðum
þar sem lækirnir hoppa og skoppa af kæti
niður fjallshlíðarnar og bergvatnsár renna
eftir hverri dalskoru, heldur steinsnar frá
þéttbýlum svæðum og einnig víða í þorpum
og bæjum.
Lengi vel leit ég á allt þetta tárhreina vatn
sem sjálfsagðan hlut, gott ef mér fannst það
ekki á stundum til óþurftar. Það var ekki
fyrr en ég hafði dvalið um nokkurt skeið í út-
löndum að ég fór að líta vatnið heima öðrum
augum. Þar kaupir maður drykkjarvatnið
víðast á flöskum og sumir hreyfa sig ekki úr
stað án þess að hafa vatnsflöskuna með í far-
angrinum. Stór hluti af rými matvöruversl-
ana er lagður undir vatnsbirgðir enda sér
maður varla nokkurn viðskiptavin fara
vatnslausan út úr búðinni. Og með tímanum
hefur það smám saman þróast þannig að ég
vel mér æ oftar vatn til drykkjar af öllum
þeim guðaveigum sem bjóðast þar á gjaf-
verði. Mér finnst það einfaldlega gott á
bragðið, og verður best af því hvort sem ég
drekk það með mat eða við þorsta.
Það er því næsta grátbroslegt að hér á Ís-
landi skuli varla nokkur maður líta við þess-
um undursamlega vökva sem skaparinn hef-
ur skenkt okkur. Hvergi nokkurs staðar á
byggðu bóli er önnur eins neysla á gos-
drykkjum og á landinu bláa. Á hverjum
morgni vakna gosdrykkjaframleiðendur
skælbrosandi og trúa varla sínum eigin aug-
um þegar þeir renna yfir sölutölurnar. Þetta
hljóti bara að vera of gott til að geta verið
satt. En það er ekkert lát á, heilu bílfarm-
arnir af sykri halda linnulaust áfram að ber-
ast inn á hvert heimili.
En þetta átti ekki einungis við um
drykkjarvatnið. Ár og lækir á byggðum
svæðum í útlandinu góða hafa annan lit en
bergvatnið á Íslandi og aldrei hefur það svo
mikið sem hvarflað að mér að dýfa hendi í
gult og grátt skólpið sem þar flýtur fram,
frekar að ég stingi þeim í snarheitum í vas-
ana. Víða þar sem ég hef farið hefur það ver-
ið heilmikið fyrirtæki að baða sig. Þar er ekki
bara hægt að skella sér í bað þegar manni
dettur í hug. Helst þarf að gera það á
ákveðnum tímum og miklar tilfæringar við
að hita vatnsdunkinn, enda fokdýrt. Og það
er eins gott að vera ekki annars hugar yfir
þessu verki því þá er maður á augabragði
kominn í ískalda sturtu. Þetta kemur okkur
Íslendingum spánskt fyrir sjónir þar sem vel
heitt vatn bullar upp úr jörðinni undir fótum
okkar og við getum velt okkur í heitu pott-
unum tímunum saman og staðið eins lengi og
við viljum undir sturtunni, hvort heldur er
heima hjá okkur eða í sundlaugunum.
Ekki hef ég orðið þess var að menn prísi
sig almennt sæla yfir þessu. Það er frekar að
haft sé í heitingum við helvítis sturturnar í
sundlaugunum. Það sé enginn kraftur í
þessu, sturtuhausarnir ómögulegir, það megi
ekki hreyfa við krana á einni sturtunni þá
fari stillingin hjá hinum gjörsamlega út um
þúfur. Sumir ganga sótbölvandi út úr bað-
klefanum.
Einhver áhrifamesta frásögn sem ég hef
hlýtt á nýlega er viðtal við verkfræðing sem
vann við hjálparstörf og uppbyggingu í Írak
eftir Persaflóastríðið. Stríðsherrarnir skildu
að venju eftir sig sviðna jörð. Raforkuver
höfðu verið sprengd í tætlur og við það
stöðvuðust allar dælur sem dældu vatni úr
iðrum jarðar til íbúanna á svæðinu. Lýsing-
arnar á afleiðingum vatnsskortsins voru
skelfilegar. Enginn veit hvað það hefur í för
með sér að vera án vatns nema hafa reynt
það á eigin skrokki. Börnin stráféllu eins og
flugur þar til trylltar mæðurnar grófu sig
með berum höndunum niður á einhvern
vatnsleka og stóðu þar sólarhringunum sam-
an á kafi í drullu og óþverra við að mjatla
upp lífsvökvanum. Sorp, úldinn úrgangur og
saur þakti jörðina og drepsóttir á næsta leiti.
Aðeins mæðurnar og fórnfúst starf fjölda
fólks frá hjálparstofnunum björguðu því sem
bjargað varð. Ég tek ofan fyrir þessum verk-
fræðingi og hinu hugrakka samstarfsfólki
hans. Þetta fólk er hinar einu sönnu hetjur
nútímans.
Hvað skyldi blessað fólkið í Írak og öðrum
stríðshrjáðum löndum vilja til vinna að vera í
okkar sporum? Eða fólkið á þurrkasvæð-
unum þar sem ekki kemur dropi úr lofti mán-
uðum saman og menn, konur og börn deyja
þúsundum saman úr hungri og þorsta. Við
Vesturlandabúar horfum á myndir af þessu í
sjónvarpi, geispandi af hóglífi, með kók-
flöskuna í annarri hendinni og hamborg-
arann í hinni.
Ef einhver töggur væri í Sameinuðu þjóð-
unum eða alþjóðasamfélaginu yfirleitt væri
löngu búið að breyta eyðimörkum í ald-
ingarða með því einu að veita á þær vatni og
leysa þar með efnahagsvanda fjölmargra fá-
tækustu þjóða heims. Í staðinn sleikja
vopnaframleiðendur á Vesturlöndum út um
þegar þeir dæla varningi sínum til stríðandi
afla í þriðja heiminum og tóbaksauðhring-
arnir hugsa sér gott til glóðarinnar að koma
líkkistunöglum sínum í fáfróðan almúgann á
þessum svæðum þegar dregið hefur úr
neyslu eiturlyfsins heima fyrir.
Vísindamenn hafa enn ekki leyst nema lít-
inn hluta gátunnar um hina undursamlegu
eiginleika vatnsins og eina eilífðarvélin sem
við þekkjum er hringrás þess í lífhvolfi reiki-
stjörnunnar okkar.
En þótt lengi hafi verið ljóst að nokkrar
myndarlegar atómbombur gætu breytt líkn-
andi regni af himni í einhvers konar vítissóta
þá eru enn meiri líkur á að eilífðarvélin bless-
aða stöðvist af öðrum orsökum. Að vötn jarð-
arinnar verði von bráðar að forarvilpu eitur-
efnaúrgangs sem eyðir öllu lífi. Svo verður
nú græðgi, hroka og skeytingarleysi mann-
skepnunnar fyrir að þakka.
Þá – eftir söngvasumrin löng – þagnar
loks svanurinn.
VATNIÐ HEIMA
RABB
E Y S T E I N N B J Ö R N S S O N
eystb@ismennt.is
JÓN HELGASON
ÉG KOM ÞAR
Ég kom þar sem höfundar lásu ljóð sín í höllum
við lófaklapp fólksins og hrifningu (vonandi sanna),
á fremstu bekkjum sat úrvalslið merkustu manna
og marmaralíkneskjur þjóðskálda hátt uppi á stöllum.
En ég kveð á tungu sem kennd er til frostéls og fanna,
af fáum skilin, lítils metin af öllum;
ef stef mín fá borist um óraveg háværra hranna,
þá hverfa þau loks út í vindinn hjá nöktum fjöllum.
Svo talaði vitið. En hjarta mitt hitnaði og brann.
Á herðum mínum ég dýrmætan þunga fann.
Ég átti mér, þrátt fyrir allt, mína purpurakápu.
Í salarkynnum þessum var engin sál nema ein
sem agaði mál sitt við stuðlanna þrískiptu grein
né efldist að bragstyrk við orðkynngi heiðinnar drápu.
Jón Helgason (1899–1986) var skáld og fræðimaður. Ljóðið birtist í ljóðabók-
inni Úr landsuðri (1939).
LESBOK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING LISTIR
2 5 . T Ö L U B L A Ð - 7 8 . Á R G A N G U R
EFNI
Halldór Hansen
hefur starfað sem barnageðlæknir í heila
ævi og segist samt sitja uppi með fleiri
spurningar en svör. Haukur Ingi Jónasson
ræðir við Halldór um ævi hans og störf og
hugmyndir um sállækningar.
Arnaldur Indriðason
hlaut norrænu glæpasagnaverðlaunin Gler-
lykilinn öðru sinni á ferlinum í maí síðast-
liðnum fyrir skáldsöguna Grafarþögn.
Katrín Jakobsdóttir fjallar um sögur Arn-
aldar og uppgang glæpasögunnar á Íslandi.
Eija-Liisa Ahtila
hefur notið mikillar athygli fyrir list sína en
hún er í hópi norrænna listamanna sem
hafa hrundið af stað bylgju sem þegar er
farið að kalla endurreisn norrænnar mynd-
listar. Halldór Björn Runólfsson segir frá
ferli Ahtila og list.
Þjóð er heimagerð
hugmynd
nefnist grein eftir Sigurbjörgu Þrast-
ardóttur þar sem hún greinir frá umræðum
á ráðstefnu um fjölmenningu og bók-
menntir sem fram fór í Helsinki í júní.
FORSÍÐUMYNDIN
er af málverki Svavars Guðnasonar, Einræðisherranum, frá 1949. Verkið er
á sumarsýningu Listasafns ASÍ.