Íslendingaþættir Tímans - 26.09.1969, Side 11

Íslendingaþættir Tímans - 26.09.1969, Side 11
heimili þeirra vel. Eftir að Helgi bvæntist féll í hans hlut að sjá meira um búskap- inn en bróðir hans tók við akstr- iniuim og var meira út á við. Heigi var góður búmaður. Hon uim var mijög l'éfct um vinnu, og ó- sérhlífinn enida slapp honum ó- gjarnan verk úr hendi. Heimili og fjölSkyldja var honum allt. Hellgi var svo htýr í viðmóti og léttur í lund að öllum leið vel í návist hans og þótti vænt um hann. Þótt h,ann væri orðinm 65 ára er hann lézt, fannst okkur hann svo ungur Það gerði hans létta lund enda áfcti hann jafn auðvelt með að blanda geði við uniga sem aldna. Á miannamótum var honum mjög fagnað af ungu kynslóðinni. Þótt Helgi væri kátur og gam ansamur var hann inni fvrir við- kvæmur og tók innilega þátt í raunum meðbræðra sinna og var ætíð reiðubúinn að rétta hjálpar- hönd ef á þurfti að hald'i. í Keldunesi var þingstaður sveit arinnar og var því mjög gest- kvæmt þar og hefur raunar hald- izt síðan, enda bærinn við kross götur. Öllum sem þar hafa kom ið hefur verið tekið með mikilli gestrisni og Ijúfmennsku. Skömimu eftir að Sigtryggur kvæntist Rakel Sigvaldadóttur, byggðu þeir bræður myndarlegt íbúðarhús með tveimur ibúðum. Hjónaband þeirra Helga og Þóru var farsælt og voru þau mjög sam hent í öUu. Þeim var sex barna auðið. Þrjú þau eldri eru flutt i burtu: Logi er við verzlunarstörf í Reykjavík, Kristín Ingibjörg gift Erlendi Haukssyni matsveini í Eeykjavík Oktavía Stefanía gift Jónasi Jóni Hallssyni lögregluþjóni í Reykjavík. Bryndís, Jón Tryggvi oig Helgi Þór aðeins 9 ára eru heimia. Fjögur barnabörn hafði Helgi eignazt sem honum þótti mjög vænt um ekki sázt litla al- bafna sinn Karl Helga. Á heimili Helga hefur dvalið um árabtl miágur hans heilsulítill sem hann reyndist vel Helgi í Keldunesi var í orðsins fyllstu merfciimgu drenigur góður. Hann igleymist ekki þeim er hon Uim kynntust bezt. Brosið hans bjarta og létti hlátur mun lengi lifa. Hans er sárt saknað af ætt- ing-jum og vinum. Þó er að sjálf- sögðu söknuðurinn sárastur njá eiginikionu og börn-um en mikil buiggun er þeim þó að eiga fagr TTrnmhíílfl 6 hlc 9.3 ÞORARINN PALSSON, béndi, Seijalandi. F. 30.12. 1899. — D. 3.8. 1969. Kveðja frá systkinum hans. Nú ertu horfinn hugum þekki, bróðir og vinur, til bjartari ianda, blessi drottinn burtför þína, en gefi öðrum góðar stundir. Margs er að minnast og margt að þakka hugljúfar myndir um huga liða, er ylja okkur ár og daga ( og segja atvik ævi þinnar. Okkur varstu sem annar faðir, ylur þinnar sálar vermdi, þú leiðbeindir um lífsins vegi og styrktir með þínum sterka vilja. Við minnumst þín sem bróðurins bezta er brást ei okkar sælu vonum, olckar heill þú ávallt vildir, öðrum varstu sannur drengur. Á Seljalandi sæll þú undir, sólin skein þar björt í heiði, þar vildirðu una æfi alla stund, er drottinn gaf þér. Ljós og skuggar lífi skifta, liðinn dagur sýnir þetta, bjartir geislar braga og leiftra, björt er minningin, sem lifir. Þitt var yndi að vinna og vera vökumaður á starfsins akri, aldrei saztu auðum höndum, árvekni í blóð var runnin. Byrði þína barst með þreki, breyttir ekki vana þínum, þó að mæddi krömin kalda og kallið fyndir nálgast óðum. Fyrir allt, sem okkur varstu ástarþökk þér fylgi bróðir, drottinn gefur, drdttinn tekur, dýrðlegt sé hans nafn um aldir. V. H. ÍSLENDINGAÞÆTTIR n

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.