Íslendingaþættir Tímans - 31.10.1969, Síða 5

Íslendingaþættir Tímans - 31.10.1969, Síða 5
stund, og var það nokkrum sinn- um vegna þess að hana syfjaði, og af gamalli reynslu, vissi hún þá að einhver sótti að henni, óg var þá venjulega um að ræða ik'Unníngja eða náin skyldmenni frá riágrannabæj u num. Við töluðum stundum um þetta, og ég held að mér sé óhætt að segja, að ég fari rétt með, að i flest ef ekki öll þessi skipti, er hún var að vakna, eða stuttu eftir það, hafi einhver kunningi eða kunningjar komið í heimsókn frá nágrannahæjunum- f þessum tilvikum kom fyrir, að Lappi, heimilishundurinn gelti af miklum ákafa stuttu áður en við komandi gestur eða gestir gengu ( hlaðið. Það kom nokkrum sinn- um fyrir, er mig hafði dreymt eitthvað, að ég sagði Sigríði frá þVí morguninn eftir, og venjuleg- asta svarið var, að það væri fyrir daglátum. En mörgum árum seinna, fannst mér stöku sinnum, að ein og önnur gerandi daglegs Iífs, koma mér svo kunnuglega fyr ir, eins og það hefði skeð einhvern fcíma áður, og að hugsuðu máli ef ast ég ekki um annað, en nokkuð af þvi er mig hafði dreymt á Vagnsstöðum, og ég sagði Sigríði frá. Það var með hana eins og fleir' samtíðarmenn, að aðstaðan til mennta var ekki mikil á sínum tíma, og kom eitt og annað til, eins og gengur. En hún var ein af þeim er nam því betur í lífsins skóla. Það nám mun liafa verið henni að mörgu leyti auðlært, þar sem hún var í ríkum mæli eðlisgreind, eins hún átti kyn til. Það mun hafa verið göniul venja fólksins í Suðursveit. og ná- grenni, á hentugum tírna, mánað- armótin júlí og ágúst, að hver sem átti heimangengt, lyfti sér upp frá dagsins önn, til mannfagnaðar er nefndur var fjallasamkoma, því fjöll eru í grennd, og staðurinn grasi gróin flöt. Við skógarkjarr eitt mikið i nágrenni Steinavatna að mig rninnir. Alltaf var farið fljótlega eftir hádegi, því nokkurn tíma tók að komast á áfangastað, annað hvort á hesturn eða bílum, en það var ekki mikið um þá. Hver fjölskylda liafði með sérmesti, sem tekið var upp eftir að fólkið hafði skemmt sér um hríð, við söng og boðhlaup, svo eitthvað sé nefnt. Undir kvöld fóru allir að búa sig til brottferðar, og að lokinnl ánægjulegrl ferð, fannst mér ávallt akkur í að neyta góðs kvöid- verðar, er Sigr'íður hafði til reiðu. En ég man ekkl til að hún færi nokkru sinni með okkur á þessar samkomur, þó vel sé Hklegt að hún hafi gert það á sínum yngri árum. En nú gætti hún búsir.s, ásamt bónda sínum og ömmu gömlu, aldursforseta heimilisins. Sigríður fæddist á Neðrabænum í 'Borgaihöfn, 28. febrúar 1898. Tíminn leið unz að því kom að hún giftist árið 1929, eftirlifandi manni sínum, Gunnari Gíslasyni, ungum bóndasyni, er í þann rnund var að taka við bústjórn, aldur- hniginna foreldra á Vagnsstöðum i Suðursveit. Þá mun Sigríður hafa tekið að sér hlutverk húsfreyjunn- ar og þar með hlotið þá vígslu. er góðurn þjóðlegum þegn sæmdi: því að húsfreyjustarfið hefur alltaí verið ábyrgðarmikið, og ekki sama hvernig það var og er af hendi leyst. Ég vissi ekki annað, en að henni hefði alltaf tekizt vel til. Sigríður eignaðist þrjú börn, og átti þvi láni að fagna, að heilsu þeirra var í engu ábótavant, og þau voru greind og atbafnasöm er fram liðu stundir, og í dag eru þau nýtir þegnar þessa þjóðfélags, hvert á sínu sviði, þó að tilhnoig- ing til búskapar sé ríkjandi hjá þeim á stundum, eins og þau eiga kyn til. og segja má að lengi býr að fyrstu gerð, því ég veit ekki annað en þeim hjónum, Sigríði ng Gunnari hafi tekizt vel til við upp- eldishlutverkið á sínum tímá. Sigríður var kona frekar hávax- in, þess vegna veitti ég henni meiri athygli en öðru heimilisfóiki, og fannst mér það eins og fullkomna hinar góðu tilhneigingar hennar til oi*ðs og æðis, sem margar hverj ar væru sérkennandi fyrir hana eina, dagfarslega. Má vera að fleirum hafi fundizt það er til hennar þekktu að ráði. Ég minnist þess, «fð stöku sinn- um fór Þórarinn sonur hennar á línuveiðar á lóninu. >á fékk ég stundum að fara með, og kom- um við þá venjulega við í Háholti í leiðinni. En þessi staður i lón- inu er dálítil klettaeyja, sem fær á sig sérkennilega mynd, eins og sambland af hatti og axarblaði séð frá lilaðí ganila Vagnsstaða- bæjarins, og stundum átti ég þess kost að fara með Skarpbéðni í fjöruferð, þar sem hann hafði hug á að taka eitt og annað til hand- argagns, sem rekið hafði, og hon- um fannst nýtilegt. Ég hafði alltaf ánægju af að fara í þessar ferðir, með Þórarni og Skarphéðni. Það mun hafa verið seint í júliv 1949, að fimmtu sumardvöl minni að Vagnsstöðum iauk fyrr en venjulega, þar sem örlögin höfðu spunnið mér þann þráð. Þegar ég kvaddi heimafólk, svo og Sigríði, grunaði mig ekki að væri í síðasta sinn, og ég ætti ekki eftir að sjá hana meira í lif- anda lifi, því annars er ég viss um að ég hefði kvatt hana bet- ur en annað heimafólk. En ég kvaddi hana þó á kurteisan hátt, og þakkaði lienni fyrir niig, eins og mér var lagið, og hafði verið kennt. Á síðari árum niun Sigríður hafa byrjað að missa heilsu og mun þá hafa notið að einhverju leytj að- stoðar bónda síns. skyldmenna og vina. En ég hygg að hún hafi reynt að vinna dagsverkið að mestu hjálparlaust, þrátt fyrir það. því að hún var þannig skapi farin. Að morgni dags 16. júM síðastliðinn mun Sigríður hafa tekið daginn í fyrra lagi að vanda og eitt af henn ar fyrstu morgunverkum í hinu nýlega íbúðarhúsi, skammt fr.í ganila bænum, var að tendra eld, sem einn þátt í tilbúnin?; morgup verðar fyrir heimafólk. En þá lauk verki hennar óvænt og skvndilega Síðar sania dag kom í ljós, að vinir og vandamenn voru einum góðuni vini fátækari. Viku seinna. eða 23. sarna mánaðar var Sigríður til grafar borin, og kvödd hinztu kveðju af fjölda fólks. Og ég efast ekki um að á þeirri stund liafi flestuni ef ekki öllum ver- ið það sama í huga, þakklæti og virðing. því að ég held að mér sé óhætt að fullyrða það, að í lífinu hafi Sigríður verið sveit sinni ávaMf til sónia. hvert sem leiðir hennar lágu. og var ein þeirra hverfandi þegna er eiga sinn þátt í að setja svip á liana og liðna tíð. Það má vera, að um tilviljun sé að ræða, að um svipað leyti í júli fyrir rúmum tuttugu árum, kvaddi ég heimilisfólk, svo og Sigríði hús- freyju á Vagnsstöðum í síðasta sinn, en um það hef ég áður getið og með áðurgreindan möguleika í liuga, þarf ekki að hafa verið neitt samband þarna á milli- Mér þyk- ir þvi eðMlegast að afgreiða þetta á þann hátt, að hér hafi verið um að ræða eina af mörgum skrýtn- ÍSLENDSNGAÞÆTTiR 5

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.