Íslendingaþættir Tímans - 31.10.1969, Síða 6

Íslendingaþættir Tímans - 31.10.1969, Síða 6
ÞURIÐUR GISLADÓTTIR EYRI, SVÍNADAL Hinn 4. júní síðastliðinn lézt í ejúkrahúsi Akraness frú Þuríður Gísladóttir, fyrrum húsfreyja á Eyri í Svínadal í Borgarfjarðar- sýslu. Með henni er til moldar gengin merk og góð kona, og hef- ir dregizt of lengi að minnast hennar með nokkrum orðum. Hún var fædd á Skálpastöðum í Skorradal 4. nóvember 1871, dóttir hjónanna, sem þar bjuggu þá, Guðrúnar Sveinsdóttur og Gísla Ögmundssonar, mætra merk ishjóna, og ólst upp í föðurgarði þar til hún var uppkomin. Fór hún þá til vandalausra, og var snemma eftirsótt til allra sveita- starfa sökum dugnaðar síns og vandvirkni. Var hún talin karl- manns ígiidi að burðum og dugn- aði við öll utanbæjarstörf, og ekki var hún síður vel verki farin við innanhússtörf. Árið 1899 giftist um tilviljunum, er eiga sér svo oft stað með margvíslegu og ólíku móti, á meðal fólks í daglegu iífi þess. Mér kom þetta allt í hug, er ég frétti að Gunnar frændi minn og nafni, bað fyrir sérstaka kveðju til mín, fyrir samúðar- skeytið á sínum tíma. Þar sem mér þótti svo vænt um þessa kveðju, og met hana mikils, ákvað ég að loknum hugrenningum mín- um, að launa fyrir mig, þótt síðar yrði, og hef nú endurgoldið það með þessum skrifum, sem ég vita- skuld tileinka aðeins Gunnari nafna mínum. Að lokum finnst mér ekki úr vegi að geta þess, að Gunnar var bróðir Lárusar heitins er var fað- ir móður minnar, þó það atvikað- ist á unga aldri hennar, að hún varð kjördóttir þeirra merkishjóna Sigríðar og Magnúsar Benjamíns- sonar úrsmiðs. En þau hjón voru ein af þeim er settu svip á höf- uðborgina, en alknörg ár eru lið- in, frá því að þau hurfu á vit feðra sinna. Gunnar Sverrisson. hún Ólafi Ólafssyni, bónda á Eyri í Svínadal, myndar- og dugnaðar- manni, og áttf þar heima jafnan síðan, eða í full 70 ár. Bjuggu þau þar í meira en 50 ár, þar til Ólaf- ur lézt 1952. Var heimili þeirra jafnan rómað fyrir gestrisni og myndarskap. Eftir lát manns sins dvaldi hún hjá Ólafi syni sínum til æviloka. Börn þeirra hjóna eru náu, sem öll eru á lífi nema einn sonur, er lézt uppkominn. Nöfn barna þeirra eru þessi: Jónina, húsfreyja í Tungu í Svínadal, Óiaf- ur, bóndi á Eyri, Guðrún og Guð- laug, báðar í Reykjavík, Jónmund- ur, kjötmatsmaður í Reykjavík, Sigurður (látinn), Þórunn, Gísli og Helga, öll í Reykjavík. Eru þau flest gift og eiga börn, mesta rnyndar- og gæðafólk. Nokkru áð- ur en Ólafur, maður Þuríðar, lézt, tók Ólafur yngri við búi og jörð, enda hafði hann verið aðalforsjlá heimilisins hin síðari ár. Hefir hann búið þar síðan og búnazt vel. Fékk hann fyxlr ráðskonu unga stúlku vestan af SnæfeUsnesi, Erlu Guðmundsdóttur og eiga þau einn son barna, Ólaf, sem nú er 16 ára, mesti efnispiltur, sem var yndi og eítirlæti ömmu sinnar í ellinni. Erla er dugnaðar- og gæða- kona, sem reyndist gömlu kon- unni sérstaklega vel, svo að á betra varð ekki kosið. Eins og áður er getið, þá átti Þuríður heima á Eyri í full 70 ár og var því staðurinn henni kær. Á Eyri, og raunar Svtínadal öllum, er mjög sumarfagurt og skóglendl töluvert ekki langt frá Eyri, en ó vetrum er þar vetrarriki nokk- urt og stonmasamt. — Á Eyri höfðu þau hjón, Þuríður og Ólaf- ur, jafnan gagnsamt bú, eada var þar farið vel með allar skepnur. Voru þau samhent í dugnaði, ráð- deild og hagsýni. Geta má þó nærri, að svona mannmargt helm- ili hafi þurft mikils með. Þuríður var heilsuhraust . mestan hluta ævinnar. Nokkur síðustu árin bag- aði hana rnest, að hún var svo slæm í fótunum, að hún gar, tæp- ast gengið óstudd. Heyrn hennar var þá líka orðin mjög lítil og notaði hún heyrnartæki, en sjón- in var ágæt. Las hún mikið og fylgdist furðuvel með þvi sem gerðist í umheiminum. Meðan Inm hafði fótavist, sat hún jafnan á dag inn í stól sínurn og prjónaði Var sá prjónaskapur með snilldarhand bragði. Fyrir 16 eða 17 árum kynntist ég Eyrar-heimilinu fyrst. Var ég þar stuttan tíma í kaupavinnu Er mér það í fersku minni, hvað gamla konan var mér góð og vildi iáta mér iíða sem bezt. Síðan hefi ég oftast komið þar ó hverju ári og verið nætursakir, og varð hún innilega glöð að sjá mig í hvert skipti, sem ég kom þar. Síðas: sá ég hana í sjúkrahúsi Akraness fá- um vikum fyrir andlát hennar. Var þá mikið af henni dregið, en hún þó með ráði og rænu og þekkti mig. Vottaði hún mér gleði sína með brosi og hlýju handtaki, sem ég gleymi aldrei. Þegar hún varð 95 ára, heim- sóttu hana börn hennar öli og margir vinir og grannar og áttu með henni ánægjulega kvöldstund. Gladdist hún mjög af því að von- um og var hress í anda að venju. Jarðarför hennar fór fram að Saur bæ á Hvalfjarðarströnd 12. júní síðastíiðinn að viðstöddu miklu fjölmenni. Blessuð sé mlnning ihennar. Bragi Jónsson, frá Hoftúnum. 6 ISLENDINGAÞÆTTIR

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.