Íslendingaþættir Tímans - 08.10.1970, Page 8

Íslendingaþættir Tímans - 08.10.1970, Page 8
þegar kom fram á útmánr.ð'. þótti sjálfsagt að menin heimsæktu h/er annan og litu á fénað og fóður. f>að voru eftirminniiegir dagar, þegar Bæjarbræður Friðfinnur og Ragnar komu í slíka heimsókn eða þegar við frá HundadaT fórum nið- Ur að Bæ. Allar þessar minningar eru bjartar og hugljúfar sem gott er að minnast við leiðarlok, og ég held að slí'kar heimsóknir góðra nágranna ættu að haldast sem víð- ast. Það yrði mörgum til góðs og stytti tíma hins stranga vetrar. Friðfinnur var samvinnumaður alla tíð og góður iiðsmaður Fram- fióknarflokksins. Hann taTdi að vel athuguðu máli þann flokk bezta málssvara sveitarinnar og raunar landsins alls, en hann var ekki einsýnn, heldur kunni vel að meta menn með aðrar skoðanir og virða þá. Friðfinnur í Bæ var hamingju- maður að ég held. Hann bjó á góðri jörð í falTegri sveit og unni sínu iífsstarfi. Hann prýddi og bætti jörð sína að ræktun og hús- uum og á ailan hátt er hann mátti, og sá í því efni marga drauma sína rætast. Hann eignað- ist ágæta eiginkonu Elínu Guð- mundsdóttur frá Skörðum, sem var honum hamingjuríkur lífsföru- nautur sem hann og virti mjög. Þau eignuðust þrjá mannvænlega syini, Baldur, Braga og Hrein sem allir hver á sínu sviði eru sæmd og heiður sinna foreldra. Við upp- byggingarstarfið naut hann góðrar aðstoðar fjölskyldu sinnar og alveg þó sérstaklega Baldurs elzta sonar síns að prýða og bæta ættaróðalið. Hefur samvinna þeirra og reyndar allrar fjölskyldunnar verið til fyr- irmyndar. í fámennri sveit þar sem allir þekkjast og góður samstarfs- og samvinnuandi ríkir, verður sorg á hverjum bæ þegar einn fellur. Svo er það nú í Miðdölum. Sveitin verð- ur eins og samstrllt fjölskylda og hlýjar samúðarkveðjur streyma til fjölskyldunnar í Bæ. Hér er góður bóndi kvaddur sem varnn lífsstarf sitt af alhug og skilur eftir sig góð- an og fagran minnisvarða, sem má vera öðrum til fyrirmyndar og ung um til uppörvunar. Við hjónin sendum ETín-u i Bæ og börnum hennar öllum hugheil- ar samúðarkveðjur. Minning um Friðfinn í Bæ er björt og skir. Blessuð veri minning hans. Hjörtur Einarsson. Bergur Eysteinn Pétursson Fæddur 8. desember 1926 Dáinn 13. september 1970. Það er óþarfi að lýsa því flemtri er sló huga minn og annarra er feg frétti af hinu sviplega slysi, er hent hafði góðvin minn Berg Ey- stein Pétursson fTugvélstjóra, og börn hans fimm og einn kunningja barnanna, hinn fagra haustsunnu dag, 13. sept. s.I., er Eysteinn ætl- aði enn einu sinni að gleðja þau með stuttri góðviðrisferð að Meðai fellsvatni m.a. til veiða og útiveru, «em hann mat mikils og hafði yndi af. Seinni þáttur sögunnar er of kunnur til að ég endurtaki hann hér. Ég kynntist Eysteini og fjöl- skyldu hans fyrst er við vorum sambýlismenn að Hrísateigi 10 fyr ir um fjórtán árum. Síðan hafa góð vináttubönd verið með okkur, og tel ég það Tán að hafa átt slíkan mann að vini. Eysteinn var glæsimenni á velli, og það leyndi sér eklki hvflíkum mannkostum hann var búinn, bæði hið ytra sem innra, einnig til orðs * og æðis, enda með mikið og lit- ríkt skap, sem hann stjórnaði af snilld og öllum féll sérlega vel í geð. Hann var og mjög réttsýnn og góðviljaður maður og svo hjálpfús og greiðvikinn að af bar, enda naut ég þess mjög í sambandi við safn mitt. Ég veit að Eysteinn lagði oft lykkju á Teið sína til þess að uppfylla óskir mínar, eims og hans var von og vísa. Ég sá Eystein aðeins örfáum dög um fyrir nóttima Töngu, er hann kom inn til mín, eins og svo oft áður, þegar hann átti leið um. Það lá vel á honum að vanda, hann kvaðst vera að fara í sumarleyfi og hlakkaði mikið til að vera með konu sinni og börnum, ein sakir vinnu, var hann mikið fjarvistum frá heimilinu, sem hann lagði svo mikla rækt við af ástúð og natni, og hann elskaði það framar öllu. Um leið og ég kveð þemnan ágæta vin minn, sem ég mun minn ast um ókomna daga með virðingu, þakka ég fyrir samfylgdina og alla þá gleði, sem hann veitti mér og mínum með vináttu sinni og velvilja. Fyrir hönd fjölskyldu minnar, sendi ég frú Margréti, sem nú stendur ein uppi, og vakir yfir vel ferð barnanna sinna, sem liggja stórslösuð í Borgarsjúkrahúsinu, okkar innilegustu samúðarkveðj- ur með ósk og von um að þeim ISLENDINGAÞÆTTIR

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.