Íslendingaþættir Tímans - 17.03.1971, Blaðsíða 3

Íslendingaþættir Tímans - 17.03.1971, Blaðsíða 3
Þrát't fyrir mjög mikla starfs- byrði alla ævi, og erfið veiikindi síðustu árin, hafði Sigtryggur tíma afgangs til þátttöku í félagsmálum. Má í því sambandi nefna starf hans sem formanns sóknarnefndar Hall- grímssafnaðar og forustu um fram 'kvæmdir við byggingu Hailgríms- kirkju. Það er kapítuli út af fyrir sig, að lýsa því, hvernig Sigtryggur tók veikindum sínum. Aðra eins ró og karlmennsku held ég að fáir hafi sýnt. Aldrei heyrðist æðruorð né kvörtun af hans vörum, þótt hann væri oft sárþjáður. Siigtryggur sýndi í veikindum kjark, stillingu og andlega reisn, sem er öðrum til fyrirmyndar. Sigtryggur var mikiil gæfumað- ur í einkalífi. Hann kvæntist Unni Pálsdóttur Zóphóníassonar 16. júlí 1937. Ekki ætla ég að reyna að lýsa því, hvernig Unnur reynd- ist manni sínum og stóð við hlið hans til síðustu stundar. Þau eign- uðust sex dætur: Rúnu Bínu, sem er yfirfluigfreyja hjá Flugfélagi ís- lands, Önnu, sem gift er Jóni Ingvarssyni lögfræðingi, og eiga þau tvær dætur, Unni hjúkrunar- konu, sem gift er Hilmari Björns- syni landsliðsþjálfara, og eiga þau son, Jakobínu, sem gift er Hirti J. Hjartar starfsmanni Loftleiða, og eiga þau einnig son, og Jóhönnu og Sigríði, sem báðar eru í mennta- iskóla. Heimilisbragur að Leifsgötu 18 var einsatkur. Hvergi annars stað- ar mætti manni eins óþvingað and- rúmsloft, hlýja og gestrisni við skemmtilegar og áhugaverðar umræður. Það var gaman að hitta Sigríði, systur Sigtryggis, sem stóð honum mjög nærri, og Halldór Pálsson, mann hennar. Var heimilið að Leifsgötu 18 í vissum skilningi framhald heimil- is foreldra Unnar og veit ég, að þeir sem til þekktu hjá Guðrúnu og Páli Zóphóníassyni, vita við hvað ég á. Reyndust Sigtryggur og Unnur tryggðartröll vinum for- eldra hennar. Vinir og samferðafólk minnist Sigtryggs Klemenzsonar með hlýju og þakklæti og votta ástvinum hans djúpa samúð. Björn Tryggvason. f Nú eir sá genginn, er bezt var að sér ger um flesta hluti og raun- beztur vina — Sigtryggur Klemenz son seðlabanikastjóri, fornvinur minn og bekkjarbróðir, er fallinn í valinn, mjög fyrir aldur fram. Nær fjörutíu og þrjú ár eru liðin frá því viö hittumst fyrst, á útmán- uðum í heimavist Menntaskólans á Akureyri, og hann tók mér ókunn- ugum opnum örmum. Þá hófst vin átta okkar, sem aldrei bar skugga á, þótt stundum skildi vík vini. í bekksögn okkar var mikið ein- valaiið, traust fólk og margt frá- bærra námsmanna og góðra drengja, en Sigtrygg'ur bar þó höfuð og herðar yfir þá alla, bæði að námsgáfum og mannkostum. Hann var með afbrigðum vinsæll og vinmargur, því menn löðuðust að honum sakir gáfna hans og góð- vildar, sem voru hans aðalsmerki til æviloika. Það er heiðríkja yfir minningum þessara hamingjuára í hópi góðra vina, en þar var Sigtryggur jafnan fremur veitandinn en þiggj- andinn. Árin liðu. Sigtryggur hlaut mik- inn námsframa. Hæstu embætti og margvísleg trúnaðarstörf hlóðust á hann, enda að vonum, því fáir voru honum jafnir, en enginn fremri samtíðarmanna hérlendra. Hann varð ráðuneytisstjóri í fjármála- ráðuneytinu, sem þá var eitt hið erfiðasta og annasamasta embætti landisins. En. hann var fjögurra manna ma'ki í starfi, manna ósér- hlífnastur, minnið fágætlega trútt, gáfurnar flugskarpar og réttsýni bans og heiðarleik var viðbrugðið. Sigtryggur var einnig mikill hamingjumaður í einkalífi sínu. Hann kvæntist ungur, Unni Páls- dóttur, Zóphóníassonar, hinni ágætustu konu, eins og hún á kyn til, og eignuðust þau sex mann- vænlegar dætur. Heimili þeirra hjóna stóð jafnan opið hinum stóra vinahópi og trölltryggð þeirra brást okkur aldrei, þegar mest lá við. En skjótt skipast veður í lofti. Hin sterka eik, sem staðið hafði af sér mörg veður, brast skyndilega. Síðustu æviárin háði þessi vinur minn hetiulega baráttu gegn sífellt þyngri sjúkdómsáföll- um. Þá var hans góða kona honum styfkur og stoð í öllum þrautum, og æðrulaust studdi hún mann sinn þar til yfir lauk. Ég og fjölskylda mín, sendum konu hans, d/ætrum, skjddmennum og tengdafólki hjartanlegar samúð arkveðjur í þeirra þungu sorg og mikla missi. Nú er hinni góðu baráttu lokið, skeiðið runnið á enda, góður dreng- ur er genginn til hinztu hvíldar. En þú, sem sólina hefur skapað; gef þjóð vorri marga hans líka þeg- ar neyð hennar er stærst. Óskar Magnússon frá Tungunesi. N + Sigtryggur Klemenzson seðla- bankastjóri lézt 18. febrúar, en fæddur var Sigtryggur á Húsavík 20. ágúst 1911. Foreldrar Sigtryggs var Jakob- ína Sigtryggsdóttir, annáluð fríð- leikskona, og Klemenz Klemenz- son verziunarmaður, en í cjaglegu tali var Klemenz kalaður pakk- húsmaður, vegna þess að hann stýrði öllu hjá Örum & Wulfs- verzlun utan búðar og mun hafa gengið að völdum næst verzlunar- stjóranum. Klemenz var á mann- dómsárum sínum hár maður, vel vaxinn og þrekinn og þrekmenni mikið, karlmenni í sjón og raun, og sem dæmi þess hvílíks trausts Klemenz naut er það, að hinir orð hvötu Þii.geyingar létu aldrei kald yrði falla í garð Klemenzar eða um hann. Og Klemenz mun hafa verið eini Húsvikingurinn, sá er mikið átti undir sér, þ.e. hafði mannaforráð, sem ekki var upp- nefndur, en hinn fornnorræni sið- ur að lengja nöfn manna með auka heiti var þá mjög tíðkaður á Húsa- vík. Sigtryggur Klemenzson gekk menntaveginn, eins og það var kallað, á uppvaxtarárum sínurn, lauk burtfararprófi frá mennta- skóianum á Akureyri, rúmlega tví- tugur, og lögfræðiprófi frá Ilá- skóla íshuids fjórum árum síðar. Að loknu námi við Háskóla ís- lands stundaði Sigtryggur fram- haldsnám í höfuðborgum Norður- landanna, Kaupmannahöfn, Osló og Stokkhólmi, fram til ársins 1938. Þá hófst hinn vel undirbúni starfsferill Sigtryggs. Erlendis hafði Sigtryggur Klemenzson sér- staklega kynnt sér skatta- og tolla löggjöf hinna norrænu landa. Áð loknu háskólanámi sínu í Reykjavík, kvæntist Sigtryggur jafnöldra sinni nokkru yngri þó, (SLENDINGAÞÆTTIR 1

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.