Íslendingaþættir Tímans - 17.03.1971, Síða 26

Íslendingaþættir Tímans - 17.03.1971, Síða 26
Ingibjörg Sigurbardóttir FRÁ BÚÐARDAL É« sakna þín vina, en samgleðst þér, er svífur þú burt úr heimi Hver samverustund mér birtu ber, og brosin þín vel ég geymi Enn mun þín samúð vl.ia mér, aldrei henni ég gleymi. flugrökk þú varst á heimsins slóð, hryggði samt myrkrið svarta. Þú áttir í sál þér geislaglóð, geymdir þar vorið bjarta. Nú á ég að syngja sigurljóð, þótt sorg mér búl í hjarta. Hver bæn þín var hlý sem barnsins lund, þú baðst fyrir vinum þínum, því var mér það sönnust sælustund að sjá þig á vegi mínum. Báðar nuturn við góðs á Grund. Guð h.jálpar öllum sínum. Kveð ég þig vina, kvöldsól þín hverjur að skýjabaki. Drottinn bTessar öll börnin sín, ég bið, að hann við þér taki, og lifirðu þar sem ljósið skín í ljómanum sál þín vaki. Guðrún Guðmundsdóttlr frá Melgerði. t Fædcl 6. marz 1874 Dáin 25. október 1970 Fré Ingibjörg Sigui’ðardóttir frá Búðardal, ekkja Boga kaupmanns Sigurðssonar ; Bóðardal, lézt á Elli- og hújkrunarheimilinu Grund að morgni sunnudagsins 25. októ- ber s.l. Með henni er gengin vel menntuð gáfukona, fasprúð höfð- ingskona, fróð og minnug, giöð og reif, einörð og stefnuföst. Henni voru gefnir eiginleikar, sem þvi ráða, að seint fyrnist í huganum mináiug slíkrar konu. Allir, sem kynntust henni, urðu auðugri af. Ég tel það mikið lán mitt að hafa ungur orðið á vegi hennar og það jafnt fyrir þvi, þótt hún hefði nýlega fyllt sjöunda tug ævi sinn- ar, þegar ég sá fyrst dagsins Ijós. F-rú Ingibjörg var seinni kona langafa míns, sem lézt 1930. Hún fæddist 6. marz 1874 á Kjalarlandi á Skagaströnd, dóttir hjónanna þar, Sigurðar Benjamínssonar frá Heiði i Gönguskörðum og Sigríðar Björnsdóttur bónda og hreppstjóra Þorlákssonar á Þverá í HallárdaT. 18 ára fór hún til náms í Kvenna- skólann á Ytri-Ey; sá skóli tók tvo vetur og aðra tvo var hún við nám á Hússtjórnarskólanum i Reykja- vik. Menntun sína, sem var bæði meiri og betri en þá gerðist, not- aði hún í þágu sýslunga sinna, þvi að hún var kennari langt á annan áratug um og eftir aldamótiu, þar af fimm ár við Kvennadíóiann á Blönduósi. Frú Ingibjörg giftist Boga Sig- urðssyni, bónda og Kaupmanni i Búðardal, hinn 3. júní 1913. Bogi var póstafgreiðslumaður í mÖrg ár og símstjóri, er bau störf voru sameinuð. Hann var mikuhæfur maður og veT að sér. einfcum i þjóðlegum fræðum. Fvrri konu sínar Ragnhe’ði Sig- urðardóttur Johnsen frá Flatey, missti Bogi 4. október 19J t Börn þeirra, er upp komust, em þessi: Jón, bryti á „Dettifossi" (drukkn- aði i febrúar 1945, er skipinu var sökkt í hafi), Sigríður, gift Jóni Halldórssyni, fyrrv. skrifstofu- stjóra í Reykjavík, Ragnheiður, gift Gunnari Ólafssyni, bifreiðastjóra í Reykjavík og Sigurður, bæjargjald keri í Vestmannaeyjum (lézt í nóv- ember 19691, kvæntur Matthlldi Ágústsdóttur. Áður en Bogi gekk að eiga Ragnheiði, hafði hann eignazt dóttur, ATviTdu. Stjúpbörnum sínum reyndist frú Ingibjörg sem hin bezta móðir, enda naut hún mikils ástríkis af þeim. Þau Bogi toku i fóstur barn ungan son ATvildu Bogadóttur, Boga Þorsteinsson, sem nú er yfir- flugumferðarstjóri á Keflavíkur- flugvelli. og gekk frú Ingibjorg honum algerlega í móður stað Heimili kaupmannsins í Búðar- dal var fjölmennt og annasamt. því að auk verzlunar, sem Bogi rak frá 1899. stundaði hann einnig búskap á Fjósum. Mjög var gestkvæmt á heimilinu og nutu þeir^sem þang- að komu mikillar gestrisni. Voru hafðar uppi fjöriegar samræður því að fróðleikur húsbændanna var mikill og frásagnargáfa. Um mál- Teysingjana var Tíka vel hugsað á því heiimili, og var fóðrun og hirð ing húsdýranna betri en á flestum stöðum. Smáfuglar þyrptust óang- að heim margan vetrardae að þiggja góðgæti úr hendi heima- manna. Þau hjónin voru mjög einhuga að aðstoða þá. sem minna máttu sín, Það var venja þeirra að taka frá nokkrar þær vörur í vetrar- byrjun, sem líklegt var að þryti fyrir jólin og halda eftir handa þeirn fátækustu í héraðinu, svo að þeir yrðu ekki allslausir á hátíð- inni. Svo sem fyrr er ritað, missti frú Ingibjörg mann sinn árið 1930. Gerðist hún þá póstaf- greiðslumaður og simstjóri í Búð- ardal. í því starfi var hún í miklu áliti yfirmanna sinna fyrir dugnað og frábæra reglusemi. Frú Ingibjörg hlaut vináttu og virðingu Dalamanna, enda ekki of- mælt, að hún hafi verið einhver fremsta kona við Breiðafjörð á 26 ISLEMDINGAÞÆTTIR

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.