Íslendingaþættir Tímans - 17.03.1971, Síða 32

Íslendingaþættir Tímans - 17.03.1971, Síða 32
G Þorleifur V. Sigurbrandsson, FYRRUM VERKSTJÓRI A3 kvöldi 30. janúar andaðist að Hrafnistu hér í borg Þorleifur V. Sigurbrandsson verkst.ióri, rúmlega áttræður að aldri. Á áttræðisafmæli Þorleifs hinn 17. des. s.l. heimsóftu hann nokkr- ir vinir og venzlamenn hans og áttu með honum góða stund í sjúkrastofu Hrafnistu. Hafði Þor- leifur þá dvalizt i sjúkrahúsi um nokkurra vikna skeið. Þennan dag var Þorleifur sæmilega málhress, en úr því hrakaði heilsu hans þar til yfir lauk. Hann hafði annars verið maður heilsugóður um dag- ana. Þorleifur Sigurbrandsson var meðalmaður á hæð, þéttvaxinn, mjög samvizkusamur, minnugur vel, orðheldinn, árrisull og úrræða góður. Hann var því vel til verk- stjórnar fallinn, enda stundaði hann verkstjórn mestan hluta ævi sinnar. Þorleifur Valdimar Sigurbrands son fæddist f Ólafsvík 17. desem- ber 1890 og þar ólst hann upp hjá foreldrum sínum. Veturna 1911—1913 stundaði Þorleifur nám í Hvítárbakkaskóla og hlaut þar gott veganesti m.a. hjá hinum ágæta alþýðufræðara Sigurði Þór- ólfssvni skólastjóra. Árið 1915 for Þorleifur tii Reykjavíkur, var fyrstu 4 árin hjá Magnúsi Guðmundssyni, skipa- smið, gerðist svo verkstjóri hjá Fiskiveiðahlutafélagi íslands, en nokkru síðar hjá hinu íslenzka steinolíuhlutafélagi — síðar Esso — og annaðist þar verkstjórn allt þar til hann hætti störfum fyrir aldurs sakir. En Þorleifur undi lítt aðgerðarleysi og gerðist brátt starfsmaður í Iðnskólanum í Reykjavík á Skólavörðuhæð hluta úr degi. Hann gegndi þar aðallega gangavörzlu og annaðist ýmis um- sjónarstörf. Með árvekni sinni og samvizkusemi ávann Þorleifur sér þar traust vinnuveitenda sinna, starfsfólks og nemenda skóTans. Um margra ára skeið starfaði Þorleifur í Slökkviliði Reykjavík- ur og var því viðbrugðið, hversu viðbragðsfljótur hann var, þegar brunabjallan kallaði. í þeim félögum, sem Þorleifnr var í, var hann ósérhlífinn og úr- ræðagóður. Munu félagar hans í Oddfellow-reglunni, verkstjórafé- laginu og margir fleiri löngum minnast hans með þakklæti o>g virðingu fyrir hlutdeild hans í liðsinni við góð málefni. Þorleifur Sigurbrandsson var tvíkvæntur. Með fyrri konu sinni eignaðist hann eina dóttur, Rósu, fædda 1916. Þorleifur kvæntist öður sinni 1933, Höllu Einarsdótt- ur frá Fossi í Mýrdal og lifir hún mann sinn. Eignuðust þau eina dóttur saman, Bryndísi, sem gift er Jóni Þór Jóhannssyni fram- kvæmdastjóra hjá SÍS, og dóttur átti Halla áður en hún giftist, Svövu Þórðardóttur, sem naut ást- ríkis Þorleifs fósturföður síns eigi síður en Bryndís. Svava missti mann sinn, Stefán Magnússon flug stjóra, í flugsTysi fyrir tæpum 8 árum. Ég kynntist Þorleifi fyrir tæpum 40 árum. Við vorum sambýlismenn á Leifsgötu 14 á annan áratug, eða frá 1935—1948. Fjölskyldur okkar urðu samrýndar mjög og skapað ist þar traust vinátta og tengsl milli allra aðila, eldri sem yngri, er haldizt hafa æ síðan okkur öll- um til ánægju. Heimili þeirra Þorleifs og Hóllu var og er mjög vistlegt og nota- legt að dvelja þar, hvort heldur um var að ræða stundarkorn við rabb og reyk eða meðal margra gesta á hátíðastunduim. Þessa munu margir minnast lengi með hlýhug, bæði venzlamenn, sam- starfsfólk Þorleifs og aðrir vinir þeirra hjóna. Þótt margir munu nú sakna vin- ar í stað, þar sem sæti Þorleifs er nú autt orðið bæði heima á Leifsgötu 14 og annars staðar, þar sem hann undi vel hag sínum, þá er gott til þess að vita, að vel m-un sá, er lífi ræður, hafa gert til hans með því að lengja ekki ævikvöld hans umfram þáð sem orðið var. Höfum það í huga um leið og við hlýjum hug okkar við minningarnar um eóðan dreng. Hclgi Elíasson. t 30. janúar s.l. andaðist Þorleif- ur V. .Sigurbrandsson verkstjóri, Leifsgötu 14, eftir alllanga og erf- iða sjúkdómslegu, síðast í sjúkra- deild Hrafnistu. Þorleifur fæddist 17. desember 1890 í Ólafsvík og var því rúmlega 80 ára er hann lézt. ForeTdrar hans voru Sesselja Bjarnadóttir og Sigurbrandur Brandsson, hafn- sögumaður í Ólafsvík. Árið 1915 mun Þorleifur hafa flutt til Reykjavíkur og var búsett ur þar æ síðan. Hann stundaði Framhald á bls. 31. 32 ISLENDINGAÞÆTTIR

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.