Íslendingaþættir Tímans - 25.06.1971, Page 5
MARTEINN SIGURÐSSON
Kveðja flutt við útför
lians í Akureyrarlárkju.
Nú hefur verið lagt á hulin mið
og liorfið er að baki vetrarsvið.
Og handan skýja fagur röðull rís
og rósir nýjar græðir vorsms dís.
Þér hugir vina fylgja um Fögrubrú
— þeir fylgja þér í heitri þökk og
trú.
tȒn minning okkur yl og blessun
ber,
svo bjartan geisla döggvað auga
sér.
Þú lyftir merki vor- og vókumanns
að verkalaunum hlauztu dýran
krans.
Þér vitni allir báru á eina lund,
að aðal drengs þú bærir hverja
stund.
Þú liörpu lífsins höndum mildum
straukst
og heimi fögrum tíðum upp þú
laukst,
með hugarhlýju, er æ var söm við
sig
og sumargróður breiddi í kringum
Þig-
Þitt draumablóm hún var.
í lífsins bók þá barnið fór að
stafa,
breyttist alltaf svipurinn hjá afa.
Stundum gekkstu annan veg en
aðrir,
og oft var för ógreið.
En þú áttir skáldsins flug og
fjaðrir
og fórst því þína leið
Þú sóttir aldrei eftir lýðsins
hylli.
Arfur þinn var handritanna
snilli.
Aðalsteinn Gíslason.
SAFNVÖRÐUR
Við brúði þinni brosir fagurt ljós,
hún ber við hjarta minninganna
rós.
Nú beð þinn signir mildust bróður
mund
og mynd þín Ijúf fær yljað
systurlund.
Þér fylgir vinarkveðja klökk og
heit.
þá hvíla búin er í friðarreit.
Nú eru rofin tímans rökkurtjöld
og reifar árdagssól þinn hreina
skjöld.
Jórunn Ólafsdóttir
frá Sörlastöðum.
t
Fátt orkar eins á hugann sem
það, er einhver úr hópi samferða-
fólksins er kallaður yfir landa-
mæri lífs og dauða. Þá staldra
flestir við og líta til baka yfir lið-
in ár.
Og minningarnar streyma fram
í hugann, ein af annarri og því
meiri og áhrifaríkari sem hinn
látni var minnistæðari og manni
tengdari. Svo fór mér, er Marteinn
Sigurðsson, safnvörður. hvarf af
sjónarsviðinu. Hann lézt á Fjórð-
ungssjúkraliúsinu á Akureyri 29.
janúar s.l. eftir fárra daga dvöl
þar. Hann hafði ekki gengið heill
til skógar um árabil. Marteinn
fæddist 8. ágúst 1898 á Veturliða-
stöðum í Fnjóskadal. Voru foreldr-
ar hans Sigurður Daviðsson frá
Reykjum í Fnjóskádál og seinni
kona hans. Sigríður Sigurðardótt-
ir frá Skriðu í Saurbæjarhrepoi,
Eyjafirði. Sigurður bjó á Veturliða
stöðum í meira en hálfa öld. Var
hann ágætlega greindur maður og
vel virtur, hygginn og búnaðist
ágætlega og í fremstu röð bænda í
sinni sveit. Hann andaðist árið
1905. Þeim Sieurði og Sigríði varð
sex barna auðið. Eftir að Sigríð-
ur varð ekkia, bjó hún áfram með
ráðsmanni og vinnufóiki. því að öll
börnin voru á bernskuskeiði. er
faðir þeirra lézt.
Varð Sigríði vel til hjúa, því að
hún var hin bezta húsmóðir, vin-
sæl ágætiskona og mikil og góð
móðir barna sinna. Árið 1905 tók
við búsforráðum á Veturliðastöð-
um, ásamt Sigríði. Guðmundur
Jónasson frá Belgsá í Fnióskadal.
Var hann ráðsmaður næstu 10 ár-
in eða þar til hann lézt árið 1915.
Var Guðmundur fyrirhyggjusamur
og harðduglegur maður. Revndist
liann t hvívetna Sigríði og börn-
um hennar frábærleaa vel. Varð
því mikill sjónarsviptir fyrir heim-
ilið. þegar hann féll frá og minn-
ist fjölskyldan hans jafnan með
hlýrri þökk og urðu þeir Mar’teinn
sérstaklega samrýmdir og mjög
nánir vinir.
Er Marteinn var 17 ára, tók
hann við bústjórn með móður
sinni og bjuggu þau til ársins
1929, en það ár fluttist fjölskyld-
ÍSLENDINGAÞÆTTIR
5