Íslendingaþættir Tímans - 12.08.1977, Blaðsíða 2

Íslendingaþættir Tímans - 12.08.1977, Blaðsíða 2
Ariö 1934 tók hann ásamt Snorra Stef ánssyni framkvæmdastjöra, á leigu Sildarverksmiöju SiglufjarBarkaup- staöar, Gránu, og ráku þeir hana i fé- lagi i nokkur ár. Viö þessi fyrirtæki Siguröar Kristjánssonar, sem nú voru nefnd, störfuöu tugir karla og kvenna, og var jafnan hiö ánægjulegasta sam- starf milli starfsfólks Isafoldar og Gránu og Siguröar Kristjánssonar. Þegar Síldarútvegsnefnd var stofn- uö áriö 1935, til mikilla hagsbóta fyrir sjómenn, útgeröamenn og verkafólk, var Siguröur Kristjánsson kjörinn i nefndina, og varö hann formaöur hennar áriö 1941 og var þaö I sex ár. Siguröur Kristjánsson gegndi um ára- tugi, starfi fulltrúa skattstjóra Norö- urlands i Siglufiröi og var um skeiö formaöur skattanefndar. Þá var hann vararæöismaöur Svia i Siglufiröi i meira en þrjá áratugi. Reyndist hann Svium vel i hvivetna, en þeir voru oft fjölmennir I Siglufiröi yfir sumartim- ann. Kunnu þeir aö meta þaö. Hann var sæmdur Sænsku Vasaoröunni fyrir störf sin I þágu Svia. Þá var Siguröur Kristjánsson fulltrúi Shell i Siglufiröi I nokkur ár. Siguröur Kristjánsson var kjörinn I fyrstu bæjarstjórn Siglu- fjaröar 7. júni 1919. Þegar bæjarstjórn Siglufjaröar hélt 1000. fund sinn 13. marz 1957, var fyrstu bæjarfulltrú- anna sérstaklega minnzt, og viö þaö tækifæri var Siguröur geröur aö heiö- ursborgara Siglufjaröar. Siguröur Kristjánsson sat I bæjarstjórn hálft annaö kjörtimabil. 1 þá daga var kosiö annaö hvort ár. Til aö byrja meö voru engir stjórnmálaflokkar, sem buöu fram, en þaö breyttist fljótt. Siguröur Kristjánsson var stuöningsmaöur Sjálfstæöisflokksins og áriö 1942 var hann frambjóöandi flokksins til Al- þingis i Siglufiröi, sem þá var oröin sérstakt kjördæmi, og hlaut 469 at- kvæöi, vantaöi aöeins 13 til aö ná kosn- ingu og fella Aka Jakobsson. AB loknum vinnudegi haföi Siguröur unun af aö spila bridge, og var hann einn af snjöllustu ,,bridge”-mönnum landsins. Hann leit á spilamennskuna sem iþrótt, sem gott væri aö grlpa til á hvildarstundum, og vann hann oft ánægjulega sigra i bridge-keppni. Þá var hann ekki siöur góöur taflmaöur. Siguröur Kristjánsson kvæntist áriö 1912 Onnu Vilhjálmsdóttur, bónda á Þorsteinsstööum i Laufássókn, Jóns- s. Þau skildu. Börn þeirra á lifi eru: Þráinn, útgeröarmaöur, sem áö- ur er getiö, og mikiö hefur komiö viö sögu atvinnumála I Siglufiröi, nú bú- settur á Akranesi, kvæntur Ólöfu Júliusdóttur frá Isafiröi. Vilhjálmur, fulltrúi, kvæntur Sigriöi Vilhjálms- dóttur, búsettur i Reykjavik, og Sigur- jóna, húsfreyja I Hafnarfiröi, gift Hauki Kristjánssyni, stýrimanni. Tvö 2 Marie Dam F. 10.3.1892. D. 26. 12.1976 Marie Dam lézt á Borgarspital- anum annan dag jóla eftir langa og erfiða sjúkdómsraun. Horfin er hógvær og háttprúð kona, sem verður ölluin eftir- minnileg er kynntust henni að einhverju marki. Marie var fædd i Norður-Jót- larldi og þar dvaldi hún og starf- aði þar til hún fluttist til íslands fullorðin kona fyrir tæpum tveim börn þeirra, Haraldur og Sigrún létust á unga aldri. Arið 1943 kvæntist Siguröur Þórörnu Erlendsdóttur, bónda Kristjánssonar, i Hvallátrum á Breiöafiröi. Heimili Sigurðar og frú Þórörnu I Siglufiröi og i Reykjavik var mesta fyrirmyndar- heimili. Þar rikti einstök gestrisni, og góðvild mætti gestum og gangandi. Frú Þórarna reyndist manni sinum vel og þá sérstaklega þegar mest á reyndi i veikindum hans hin siöustu ár. Viö hjónin sendum frú Þórörnu og öörum vandamönnum Siguröar Kristjánssonar innilegustu samúöar- kveöjur. Hans veröur lengi minnzt meö viröingu og þakklæti i Siglufiröi og þar annars staöar, sem hann kom viö sögu. 011 veröum viö að lúta dómi sögunnar, en fáum er auöiö aö taka jafn verulegan þátt i sköpun hennar eins og Siguröi Kristjánssyni hvaö snerti sögu Siglufjaröar um hans daga þar. Jón Kjartansson. áratugum siöan, en þá var heilsa hennar nokkuð tekin aö bila og hún orðin ekkja ööru sinni. Hér á landi bjó Maria alla tið i skjóli dóttur sinnar og tengdason- ar. Hún undi hag sinum vel I hinum nýju heimkynnum, eignaðist marga vini, sem bundu við hana tryggð og mátu hana mikils vegna mannkosta hennar. Maria ólst upp á sveitaheimili i fögru umhverfi nálægt Li'mafirö- inum og þar varð hún slðar hús- móðir og haföi um langt skeiö mikil umsvif svo sem jafnan fylgdi fjölmennum sveitaheimil- um i þá daga. Eftir að hún missti fyrri mann sinn hætti hún búskap og fluttist ásamt börnum slnum til Alaborg- ar. Samt hélt hún áfram að vera sveitakona alla tið i þess orðs beztu merkingu, dýravinur, dáði blóm og hvers konar gróður jarð- ar. A heimsstyrjaldarárunum siö- ari dvaldi ég alllengi við störf i sveitum bæði norðan og sunnan við Al = borg og kynntist þá fólk- inu þar og störfum þess. Þarna bjó dugmikiö fólk og greiövikið og gestrisiö svo af bar. A ég margar ljúfar endurminn- ingar um hjálpsemi þess og alúð viö framandi aökomumann. Mjög fannstmérMarlu svipa til margra gamalla vina minna úr þessum sveitum, söm var velvild- in og tryggðin og aldrei brást æðruleysi hennar á hverju sem gekk. Oft innti ég Mariu sagna um lif fólks i þessum sveitum á fyrri tiö, meöan atvinnu- og lifnaðarhættir voru enn i föstum skoröum, ótruflaðir af hraöa og háreysti vélaaldar. Frásagnir Mariu voru lifandi, skýrar og skemmtilegar, enda konan margfróð og stálminnug. Þá varð mér bezt ljóst hve sterk- an þátt sveitin og allt lif sem þar hrærðist, átti enn i hug þessarar gömlu hvithæröu konu, sem for- lögin höföu á fullorðinsaldri fært norður til þessa eylands. Nú að leiöarlokum erum við forsjóninni þakklát fyrir það aö hafa fengið aö kynnast og blanda geði við þessa józku konu, sem hvarvetna vildi láta gott af sér leiða meöan þrek hennar entist. Þvi trúum viö aö hennar biöi góö heimkoma. Páll A. Pálsson. islendingaþættir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.