Íslendingaþættir Tímans - 12.08.1977, Page 36
Marsellíus Bernharðsson
Marsellíus B e r n h a r 6 s s o n ,
skipasmiöameistari og forstjóri skipa-
smiðastöövarinnar M. Bernharösson
h.f. á ísafirði, andaöist I Fjóröungs-
sjúkrahúsinu á Isafiröi 2. febrúar s.l.
Með honum er genginn mikill fram-
fara- og athafnamaður, traustur
máttarstólpi bæjarfélagsins, sem á
löngum starfsferli hefur átt veigamik-
inn þátt I athafnalifi i bænum og þar
með vexti bæjarins og viðgangi.
Marsellius var fæddur aö Kirkjubóli
i Valþjófsdal I önundarfirði 16. ágúst
1897. Foreldrar hans voru hjónin Sig-
riður Finnsdóttir og Bernharður Jóns-
son, er þá bjuggu á Kirkjubóli. Þau
voru þekkt að manndómi og dugnaði.
Þar ólst Marsellius upp og síðar að
Hrauni á Ingjaldssandi eftir að for-
eldrar hans fluttu þangaö. Var
Marsellius að verða 8 ára gamall þeg-
ar foreldrar hans fluttu frá Kirkjubóli
að Hrauni. Foreldrar hans eignuðust 8
börn og ólu upp 4 fósturbörn, sem öll
reyndust dugmikil og starfsöm.
Snemma kom i ljós óvenjulegur
dugnaður, verkhyggni og kapp
Marselliusar, að hverju verki sem
hann gekk, og þessir eiginleikar entust
honum langa starfsævi. Ungur að ár-
um, eða um fermingaraldur, fór hann
að stunda sjómennsku og þá atvinnu
stundaði hann næstu árin. Til ísaf jarð-
ar flutti Marsellius liðlega tvltugur og
þar átti hann siöan heima. Nokkru
eftir að hann flutti til Isafjaröar fór
hann að vinna við smiðar á annarra
vegum, m.a. við viðgerðir og viðhald á
fiskiskipum Sameinuðu islenzku verzl-
ananna, sem á þeim árum ráku útgerð
hér i bænum. Þegar svo það fyrirtæki
lét af starfsemi sinni á árinu 1926,
keypti Marsellius 6affiskiskipum þess
og hóf útgerð i allstórum stil, miðaö
við þá tima. Jafnframt gerðist hann
einn umsvifamesti saltfiskverkandi
og saltfiskútflytjandi hér í bænum
næs.tu árin. Þessari starfsemi varð
Marsellius að hætta 1931, vegna afleið-
inga hinnar miklu kreppu sem þá gekk
yfir.
Næstu árin mun Marsellius aðallega
hafa unnið viðsmiðar. Það er svo á ár-
inu 1934, að hann er ráðinn til að hafa
eftirlit með byggingu þriggja fiski-
skipa, sem nýstofnað félag, Huginn
h.f., var að láta byggja \ Danmörku.
Var Marselllus við þetta starf erlendis
i um það bil 11 mánuði á árunum 1934
36
og 1935 og leysti það starf af hendi með
ágætum.
Eftir heimkomuna hefst Marsellius
svo handa um skipasmiðar og smiðar
á næstu árum nokkra báta. A árinu
1939 stofnar hann fyrirtækið M.
Bernharðsson skipasmiðastöð h.f. og
hefur rekið það siðan. Fáum árum sið-
ar keypti hann skipasmiðastöð og
dráttarbraut, sem Bárður G. Tómas-
son, skipasmiðaverkfræðingur, átti og
hafði rekið á Isafirði árum saman. Þar
hafa farið fram viðgerðir smærri
skipa. Aðalstöðvar M. Bernharðsson
skipasmiðastöð h.f. hafa hinsvegar
verið I Neðsta-kaupstað á Isafirði frá
stofnun þess fyrirtækis, og þar byggði
fyrirtækið dráttarbraut.
Þegar með er talið það skip sem nú
er langt komið smiði á i skipasmiða-
stöðinni, hefur Marsellius látið smiða
50 skip, stór og smá, allt frá 15 lesta
fiskibátum i 300 lesta skip, sem nú er i
smiðum. Flest hafa þessi skip verið
byggð úr eik, en á seinni árum hafa
einnig verið smiðuð nokkur stálskip,
þar á meðal það skip sem nú er unnið
að. 011 þessi skip hafa reynzt mjög
traust og ágæt sjóskip, enda tíl smiði
þeirra og alls búnaðar vandað á allan
hátt. A skipasmiðastöðinni hafa oft
unnið milli 40 og 50 manns. Fyrir
skipasmiðar sinar er Marsellius Bern-
harðsson fyrir löngu þjóðkunnur mað-
ur.
Mörg verkefni tók Marsellius oft að
sér, þar á meðal gerð hafnarmann-
virkja, t.d. i Bolungarvik og á Isafirði.
Hann rak verzlun með margs konar
smiðaáhöld og skipavörur.
Það lætur að líkum, að stundum hafi
orðiö við ýmsa erfiðleika að etja i
sambandi við jafn umfangsmikinn
rekstur og Marsellius hafði með hönd-
um. En þeir urðu ekki til að buga at-
orku hans og starfsþrá.
Bæjarmálefni ísafjarðarkaupstaðar
lét Marsellius sig miklu varða. í nær
aldarfjórðung átti hann sæti i bæjar-
stjórn Isafjarðar, fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn. 1 bæjarráði ísafjarðar var
hann i nokkur ár, og i fjölda ára var
hann i hafnarnefnd Isaf jarðar og lengi
i byggingarnefnd kaupstaðarins.
Sem fulltrúi kaupstaðarins átti
hann sæti á mörgum þingum Fjórð-
ungssambands Vestfirðinga. Að mál-
efnum flokks sins, Sjálfstæðisflokks-
ins, starfaði hann mikið. Hann átti t.d.
lengi sæti i kjördæmisráði flokksins á
Vestfjörðum og i flokksráði Sjálf-
stæðisflokksins var hann árum saman.
Að málefnum fagfélags sins, Iðnaöar-
mannafélagsins, vann hann lengi.
Sá sem þessar linur ritar átti þess
kost að kynnast Marselliusi og hug-
myndum hans og skoöunum á hinum
ýmsu málefnum bæjarfélagsins, at-
vinnumálum o.fl. A árunum 1964-1970
tók ég nokkurn þátt i bæjarmálefnum,
en það voru siðustu árin sem Marselli-
us átti sæti i bæjarstjórn. Mér fannst
hann ihuga vandlega þau mál sem
hann lét til sin taka og hann hafði fast
mótaðar skoðanirum úrlausnir þeirra.
Hann vildi að bæjarfélagið væri jafn-
an við þvi búið, að standa við allar
skuldbindingar sinar. Það vildi þannig
til siðustu tvo áratugina, að mjög
skammt var á milli heimila okkar og
hittumst við þvi nokkuö oft og töluðum
þá tiðum um hin ýmsu málefni sem
efst voru á baugi.
En nánust urðu kynni min af
Marselliusi i sambandi við starfsemi
Oddfellow-stúkunnar á Isafirði. Hann
var einn af stofnendum stúkunnar á
árinu 1948 og var alla tið slðan einn af
allra áhugasömustu og virkustu félög-
um stúkunnar. A hennar vegum
gegndi hann mörgum trúnaðarstörf-
um og vann stúkunni á margan hátt
ómetanlegt gagn.
A árinu 1927 kvæntist Marsellius
islendingaþættir