Íslendingaþættir Tímans - 12.08.1977, Page 62
Pálmi Pétursson
skrif stof ustj óri
I þessum fáu oröum er ekki ætlun
min aö rekja æviferil Pálma Péturs-
sonar, skrifstofustjóra hinnar sameig-
inlegu skrifstofu rannsóknastofnana
atvinnuveganna. Ég minnist hans
fyrst og fremst sem eins mins nánasta
samstarfsmanns þau ár, sem ég hef
starfaö hjá Rannsóknaráöi rikisins.
PálmiPétursson var fæddur á Akur-
eyri 20. aprll, 1909. Hann réöist til At-
vinnudeildarháskólans 1. janúar, 1946,
en haföi áöur m.a. stundaö sjálfstæö
verzlunarstörf á Siglufiröi. Afvinnu-
deildin, sem var eins konar uppeldis-
stöö islenzkrar rannsóknarstarfsemi,
var aöeins fárra ára þegar Pálmi kom
þangaö.
Pálmi Pétursson var bókari og
gjaldkeri. Atvinnudeildar, sem var
undir stjórn Rannsóknaráös rikisins.
Meö lögum frá 1965 var Atvinnudeild-
inni skipt og 5 sjálfstæöar stofnanir
settar á fót, auk Rannsóknaráös. Þá
þótti þó sjálfsagt, aö þessar stofnanir
heföu sameiginlega skrifstofu, sem
annaöist fjármál þeirra almennt.
Pálmi Pétursson varö skrifstofustjóri
þeirrar skrifstofu. Þessi samvinna er
ef til vill gleggsti vitnisburöurinn um
þaö traust, sem forstjórar rannsókna-
stofnanna og aörir opinberir aöilar
báru til Pálma Péturssonar.
Pálmi gegndi þannig yfir 31 ár á-
byrgöarmiklu starfi I þágu rannsókn-
arstarfseminnar og var nátengdur
þeirri þróun, sem oröiö hefur á þvi
sviöi nánast frá upphafi Atvinnudeild-
ar háskólans.
Starf Pálma var ekki auövelt. At-
vinnudeild háskólans var i upphafi aö
sjálfsögöu litil og fjármagniö ekki
ýkjamikiö. Þaö hefur hins vegar auk-
izt allhrööum skrefum og er nú fariö
aö nálgast milljaröinn, sem hin sam-
eiginlega skrifstofa ber ábyrgö á. Þaö
varheldurekki auövelt aö vera ábyrg-
ur gagnvart forstjórum 6 stofnana,
sem allir hafa aö sjálfsögöu sfnar
skoöanir á þvi, hvernig ver ja beri f jár-
magninu. Pálmi hikaöi aldrei viö aö
gerasinarathugasemdir, ef hann taldi
ráöstöfun fjármagns ekki I samræmi
viö opinberar reglur eöa ofvaxiö fjár-
hag viökomandi stofnunar.
62
Sjálfur réöist ég til Rannsóknaráös
rikisins áriö 1957. Pálmi var þvi lengi
einn minn nánasti samstarfsmaöur.
Stundum skarst I odda eins og gengur
og gerist, en málin leystust ávallt, þvl
mér varö fljótlega ljóst aö fyrir Pálma
vaktialdreiannaö en aö hafa þaö, sem
réttast er og heilbrigöast i f jármálum
stofnunarinnar. Stundum slæddust
villur inn I bókhaldiö, eins og mannlegt
er, en mér læröist einnig fljótlega aö
hafa litlar áhyggjur af slikuþvH meö-
ferö fjármagns átti Pálmi fáa sina llka
aö heiöarleika og ráövendni.
Oft er sagt aö maöur komi i manns
staö, og svo veröur ef til vill enn. Þó
getur nú vel svo fariö aö viö fráfall
Pálma veröi breyting á þvi samstarfi
um f jármál og bókhald, sem veriö hef-
ur hjá rannsóknastofnunum atvinnu-
veganna, þvi ég hygg aö skarö þaö,
sem Pálmiskilur eftir, veröi vandfyllt.
Pálmi kvæntist áriö 1952 eftirlifandi
eiginkonu sinni, Onnu Lisu Berndtsen
frá Gautaborg. Votta ég henni og börn-
unum dýpstu samúö mina.
Steingrimur Hermannsson.
t
Atorkumaöur og góöur þegn er
genginn. Pálmi Pétursson, skrifstofu-
stjóri Rannsóknarstofnana atvinnu-
veganna var snögglega brott kallaöur
hinn 2. marz 1977. Hann var fæddur á
Akureyri hinn 20. aprtl 1909, sonur
hjónanna Péturs Péturssonar, kaup-
manns á Akureyri og Siglufiröi, og
Þórönnu Pálmadóttur. Þau hjón voru
af merkum skagfirzkum og hún-
vetnskum ættum, sem ekki veröa
raktar hér. Þau voru vinsæl og vel
metin eins og þáu áttu kyn til. Pétri
kynntist ég persónulega, er hann var
kominn á efri ár. Fann ég, aö þar fór
maöur frlöur sýnum, góöum gáfum
gáfum gæddur, háttvis og hlýr.
Pálma Péturssyni kynntist ég fyrst I
Gagnfræöaskólanum á Akureyri, sem
þá var aö veröa menntaskóli. Vorum
viö skólabræöur þar veturinn 1928-’29.
Var þaö fyrsta ár mitt þar, en Pálma
siöasta. Uröu kynni okkar þar ekki ná-
in, en þvl meiri siöar. Ég leit upp til
hans og bekkjarfélaga hans, sem verö-
andi stúdenta, en taldi mig I hópi
fákunnandi byrjanda. Pálmi var I
fyrsta hópnum, sem leyfi fékk til aö
þreyta stúdentspróf viö Gagnfræöa-
skólann á Akureyri þar á staönum, en
áöur höföu þeir, sem öfluöu sér þekk-
ingar viö þann skóla til aö ganga undir
stúdentspróf, oröiö aö fara til Reykja-
vlkur til aö þreyta prófiö, stundum fót-
gangandi aöra leiö, vegna lélegra
samgagna.
Námsferill Pálma varö ekki lengri
vegna fjárhagsöröuleika. Hann stund-
aöi verzlunarstörf o.fl. á Siglufiröi frá
1930 til 1941. Eftir þaö vann hann viö
skrifstofustörf hjá Höjgaard & Schultz
til 1944 og á árunum 1944 og 1945 hjá
byggingarnefnd silarverksmiðjanna á
Siglufiröi og Höfðakaupstaö. Hinn 1.
janúar 1946 var Pálmi ráöinn skrif-
stofustjóri og aöalbókari Atvinnu-
deildar Háskólans og gegndi þvi starfi
til hinztu stundar, aö visu undir
breyttu skipulagi og sjálfstæöari, eftir
aö lögin um Rannsóknarstofnanir at-
islendingaþættir