Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 24.05.1980, Qupperneq 8

Íslendingaþættir Tímans - 24.05.1980, Qupperneq 8
Hermann Jónsson f. 12. des. 1891, d. 30. sept. 1974. Elín Lárusdóttir f. 27. febr. 1890, d. 26. mars 1980. Þvl fólki fækkar nú óðum sem fætt er á seinasta tug nltjándu aldarinnar, eða þaöan af fyrr. Llfiö hefur sinn gang og eitt sinn skal hverdeyja. Dauðann eigum við. öll vlsan, þaö er raunverulega það eina* sem við vitum aö framtlðin ber I skauti sér til handa hverjum og einum. Heiöurshjónin þau Hermann Jónsson og Elln Lárusdóttir á Ysta-Mói voru orðin. aldurhnigin er þau gengu á vit feðra sinna. Ég vil nú minnast þeirra með nokkrum llnum. Hermann var vestfirskrar ættar, fædd- ur á Blldudal 12. des. árið 1891, sonur hjónanna Nlelsar Jóns Sigurðssonar verkstjóra, og Halldóru Bjarneyjar Magnúsdóttur. Hermann lauk prófi frá Verslunarskóla Að námi loknu réöst hann til verslunar- starfa hjá verslun Popps á Hofsósi. Her- mann stundaði síðan verslunarstörf á Hofsósi og Sauðárkróki fram til ársins 1914. Hinn 31. ágúst 1912 gengu þau Hermann og Elln I hjónaband. Arið 1914 fluttu þau búferlum I Málmey, er liggur skammt undan landi austan megin Skagafjaröar, og bjuggu þar næstu fjögur árin. Vafalltið hefur Hfsbarátta þessara ungu hjóna verið allhörö, ekki siöur en margra ann- arra á þessum árum. Fljótin eru tveir ystu hreppar Skaga- fjarðarsyslu þaö er Holts og Haganes- hreppur. Þessi sveit var afskekkt þar til fyrir fáum árum að komst á varanlegt vegasamband. 1 Fljótum er sumarfagurt en þar er llka oft mikiö vetrarrlki. Fljótamenn uröu að bjarga sér hver eftir sinni bestu getu. Sjósókn var þar mikil, sennilega að flestir bæir hafi notið góös af. En það varð að gjalda Ægi æði stórra fórna oft á tlöum. Voriö 1922 fórst þilskipiö Marlanna og með henni tólf menn, allur úr Fljótum, og tfu þeirra voru úr Haganeshreppi. I þessa afskekktu sveit fluttu þau Her- mann og Elln voriö 1918 er þau fluttu að Ysta-Mói, landnámsjörð Hrafna-FIóka, en að Ysta-Mói var heimili þeirra ætlð frá þessu. Fyrstu búskaparár sln á Ysta-Mói voru þau með jörðina á leigu, en festu kaup á henni árið 1927. 8 Hermann valdist snemma til forystu fyrir sveit sina og sýslu. Hann var greindur, mælskur vel og öruggur I fram- komu. Hann var mikill framsóknar- og samvinnumaöur. Skapmaður var hann og fylginn sér. Hann vildi sveitungum sfnum vel. Hann baröist fyrir og lagöi öllum þeim málum lið er hann taldi til hagsbóta fyrir sveit sína og hérað. Hermann gat einnig orðið þungur I skauti og óvæginn andstæöingum sfnum ef svo bar undir. Hermann var hreppstjóri Haganes- hrepps I tugi ára, eða frá 1924 til 1970. Jafnlengi sat hann I sýslunefnd Skaga- , fjarðarsýslu 1 hreppsnefnd sat hann I 39 ár og þar af oddviti I 26 ár. önnur trúnaöarstörf er Hermanni voru falin fyrir sveit slna og héraö ætla ég ekki að telja upp, það hafa mér fremri gert. Síöustu ár ævi sinnar var Hermann blindur. Þrátt fyrir þaö fylgdist hann vel meö málefnum sveitar sinnar og héraös. Sýslufund sat hann þótt sjónina vantaði og heyrt hef ég aö hann gæfi hinum alsjáandi lltt eöa ekki eftir hvað málefni og mál- flutning varðaöi. Þau Hermann og Elln nutu þess að sjá sveit sina byggjast upp og verða að einni búsældarlegustu sveit Skagafjaröar. Hér gæti þvl átt viö aldamótaljóö Hannesar Hafstein er hann orti: „Sú kemur tlð aö sárin foldar gróa sveitirnar fyllast, akrar hylja móa, brauö veitir sonum móðurmoldin frjóa menningin vex I lundi nýrra skóga.” Elln var fædd 27. febr. árið 1890 að Vatni á Höfðaströnd, dóttir hjónanna Lárusar Ólafssonar og Margrétar Jónsdóttur, er lengi var ljósmóðir I Hofshreppi. Elln ólst upp hjá foreldrum sínum, en hún var einkadóttir þeirra, en þrjá hálf- bræöur átti hún. A þessum árum var lifsbaráttan hörö og Hermann skýrir frá þvl aö fyrsta sumar Islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.