Íslendingaþættir Tímans - 03.03.1982, Blaðsíða 8
Böðvar Pálsson
kaupf élagss tj óri
Fæddur 12. febr. 1889
Dáinn 20. febr. 1982
Vestfirskur höfðingi er fallinn.1 dag er
Böðvar á Bakka kvaddur, er lést 93 ára að
aldri á Hrafnistu.
Böðvar á Bakka var fæddur á Prests-
bakka i Hrútafirði. Foreldrar hans voru
Páll Ölafsson prestur þar og kona hans
Arndis Pétursdóttir Eggerz.
Skrifað var um Böðvar á Bakka i Morg-
unblaðið er hann var sjötugur um hann er
sagt i þeirri grein.
„Með sliku foreldri hefði það mátt und- .
ur heita, ef Böðvar hefði orðið ótindur
miðlungsmaður, þvi frábær voru þau hjón
talin um allan höfðingsskap og mannkosti
séra Páll og frú Arndis.” Ennfremur:
skrifar skólabróðir hans i sömu grein:
,,Og i dag vil ég sérstaklega minnast
eins félaga frá Flensborg sem ég ætla að
Bessastaðaskáldið hefði viljað segja um
að varla mundi á voru landi verða betri
drengur fundinn.”
Böðvar á Bakka var stórbrotinn öðling-
ur og heiöursmaður i héraði, hvar sem
hann bjó að áliti þeirra er kynni af honum
höfðu.
Séra Páll faðir hans var prestur i nær 55
ár þar af prestur á Prestsbakka i 21 ár
hann var og prófastur og alþingismaður
Strandamanna. Arið 1901 flyst hann vest-
ur i Vatnsfjörð og um hann var skrifað
meðal annars.
„Þótti Hrútfirðingum ærinn sneyðir að
brottför hans. Var hann þá talinn með
landsins merkustu prestum og þar að auki
uppbyggilegur og góður félagsmaður,
framkvæmdasamur, frjálslyndur og lipur
forsprakki allra góðra og gagnlegra mála
og svo vel hefði hann rækt sitt starf að á-
lita mál að nokkur hafi verið honum
fremri samtiðarmanna hans meðan hann
var upp á sitt besta.”
Böövar á Bakka var af merkum og
sterkum ættum. Föður afihans var Ólafur
Pálsson dómkirkjuprestur i Rvik siðar á
um ekkert um uppruna lifsins á þessari
jörð og þaöan af siður hvað um lifið
verður að lokinni jarðvist okkar. Og ég
gli'mi dckert við ráðgátuna miklu um þaö,
hvað við tekur.”
Nú hefur þessi aldni heiðursmaður slit-
ið öll þau bönd, sem bundu hann þessari
jörð, sem hann unni af alhug. Honum
fylgja hugheilar kveðjur ættingja, vina og
sveitunga. Blessuð sé minning Vil-
mundar i Árnanesi.
Torfi Þorsteinsson.
Melstað i Miðfirði, kona Ólafs Pálssonar
var Guðrún ólafsdóttir Stephensen sekre-
tera I Viðey. Móður afi hans var Pétur
kaupstjóri Eggerz bóndi og kaupmaður i
Akureyjum.
Böðvar var 3. maður frá Páli amtmanni
Melsteðog séra Páli Ólafssyni presti i As-
um og Guttormshaga. 4. maður frá Magn-
úsi Stephensen konferensráði. 5. maður
frá Magnúsi sýslumanni Ketilssyni i Búð-
ardal og séra Jóni Steingrimssyni eld-
presti.
Böðvar ólst upp á Prestsbakka i stórum
systkinahópi. Við þann stað voru hans
margarmætar bernskuminningar bundn-
ar,um hamingjusama æsku i f jölmennum
systkinahópi á heimili góðra foreldra.
Þar i nágrenni kynntist hann Stefáni Ól-
afssyni föðurbróður sinum er var barna-
kennari hans um tima.
Stefán var mikill gleði- og selskaps-
maður.músikalskur með afbrigðum er lék
á hljóðfæri svo af bar og söng svo orð fór
af.
„Tónþyrstir sönghallargestir i stór-
borgum heimsins hefðu fallið að fótskör
hans og baðað sál sina af sora og syndum.
Hann hafði allt til að bera til þess að túlka
dramatiskar óperur heimsmeistaranna,
kynborinn persónuleiki sem af bar leiklist
og raddstyrk sem hefði fært hásæti guð-
anna niður i táradal mannlifsins hefði
hann menntast á þvi sviði og töldu hann
heföi orðiö annar Carússó, eða eitthvað i
þá átt hefði hann menntast.” Svo hefur
veriðfært á prent um Stefán Ólafsson föð-
urbróður hans og kennara.
Af 13 börnum prestshjónaanna þeirra
séra Páls Ólafssonar og frú Arndisar Pét-
ursdóttur komust 11 til fullorðinsára.hér
talin i aldurs röð:
Elinborg f. 22. nóv. 1881, d. 15. nóv. 1929,
átti Guðmund Theodórs bónda i Stórholti.
Guðrún f. 25. jan. 1883, d. 3. júli 1970, átti
Þorbjörn Þórðarson lækni i Bildudal.
Olafur f. 29. jan. 1884, d. 12. des. 1971,
framkvæmdastjóri á Isafirði
Pétur f.11. febr. 1886, d. 4. mai 1966,
bóndi i Hafnardal.
Sigriður f. 15. febr. 1887, d. 29. nóv. 1968,
átti Hannes B. Stephensen kaupmann á
Bildudal.
Böðvar f. 12. febr. 1889, d. 20. febr. 1982,
kaupfélagsstj. á Bakka.
Stefán f. 7. febr. 1890, d. 31. okt. 1967,
bóndi i Miðhúsum.
Pállf. 10. sept. 1891, d. 8. sept. 1972, bóndi i
Þúfum.
Jakobina f. 15. okt. 1892, d. 18. febr. 1943,
átti Agúst Sigurðsson kaupmann á Bildu-
dal.
Sigþrúður f. 19. des. 1893, d. 22. sept. 1974,
átti Odd Guðmundsson kaupmann i Bol-
ungarvik
Sigurður f. 4. apr. 1897, d. 23. júni 1973,
bóndi á Nauteyri.
Böðvar á Bakka var gagnfræðingur frá
Flensborg 1908. Nam verslunarfræði I
Brödrenes Pauhlmans Handelsakademi i
Kaupmannahöfn 1911-12.
Að loknu námi kom hann heim i Vatns-
fjörð og verður þar barnakennari um
hrið.
Sfðar verður hann verslunarmaður hjá
a/s P.J. Thorstensen og c/o 1912-14 og hjá
Hannesi B. Stephensen og c/o á Bildudal
1914-20.
A Bildudal kynntist Böðvar sinum lifs-
förunaut og kvænist 9. apr. 1917 Lilju f. 26.
mai 1895 d. 8. febr. 1965, Árnadóttur bónda
á Tjaldanesi Arnasonar og Jóninu Hall-
dórsdóttur bónda á Horni i Mosdal i Arn-
arfirði, Jónssonar.
Böðvar og Lilja bjuggu á Bildudal i 4 ár.
Arið 1920 flytja þau að Bakka i Ketildölum
og hefja þar búskap. Jafnframt var Böðv-
ar útvegsbóndi i mörg ár og i samfélagi
með Guðmundi Lárussyni i Vinaminni. A
Böövar hlóðust ýmist trúnaðarstörf skulu
þau helstu talin upp hér.
Oddviti Ketildalahrepps 1921-42.
Syslunefndarmaður Vestur-Barða -
strandasýslu 1921-43.
8
islendingaþættir