Heimilistíminn - 03.06.1976, Side 18
í heims
pressuna
Dýr þorsti
Ariö 1972 greiddi almenningur i Sovét-
rikjunum 3750 milljarða (isl. króna) i
áfengisskatt, en það er hærri tala, en not-
uð var til landvarna. Þetta er þrátt fyrir
tilraunir yfirvalda til að fá fólk til að
drekka minna áfengi og meira af mjólk og
vatni. Ekkihafa veriðgefnar út opinberar
tölur um áfengisneyzlu i Sovét siðan 1963,
en samkvæmt áreiðanlegum heimildum
drekka Sovétborgarar 33% meira áfengi
en Frakkar og Bandarikjamenn. Meðal-
fjölskylda eyðir tiunda hluta tekna sinna i
áfengi. (Jeune Afrique, Hollandi)
Skrímsliö fundið?
Brezki tómstundakafarinn Leo
Sheridan tilkynnir, að hið fræga Loch
Ness—skrimsli sé hvorki fornaldardýr né
sæslanga. heldur flak vikingaskips, sem i
fljótheitum geti likzt dýri. Af myndum
þeim, sem bandariski könnuðurinn
Robert Rines hefur tekið segist Sheridan
sjá, að sporðurinn sé stýri farkostsins og
langi hálsinn með skrýtna höfðinu sé
stefni vikingaskipsins. (Daily Mirror,
Englandi)
í landi Goethe
1 Vestur-Þýzkalandi eru lesnar flestar
bækur, að þvi segir I niðurstöðum brezkr-
ar rannsóknar. 22% af ibúunum telja lest-
ur bóka beztu tómstundaiöju sina. Siðan
kemur sjónvarpið með 15%, skemmtanir
með 13%, Iþróttir með 10%. Italir lesa
ekki aöeins minnst, heldur horfa þeir lika
mest á sjónvarp. A eftir þeim koma
Bretar, Svíar, Hollendingar, Svisslend-
ingar og Belgir. Þjóðverjar, Frakkar og
Austurrikismenn hafa minnstan áhuga á
sjónvarpinu. (Welt, V-Þýzkalandi)
Hún gengur enn
Hið heimsfræga leikrit Agöthu Christie
„Rottugildran” er nú komið á 24. árið. Til
þessa hafa um 3.750.000 manns séð sýn-
ingar á þvi, en þaö var frumsýnt 25.
nóvember 1952, þegar Churchill var for-
sætisráðherra og undirbúningur krýn-
ingar Elisabetar drottningar stóö sem
hæst. Uppselt er á allar sýningar langt
fram á næsta ár. (The Guardian, Eng-
landi)
18
Sjúkdómur aldarinnar
Þunglyndi má teljast sjúkdómur aldar-
innar fremur en nokkur annar. Meira en
100 milljónir manna og kvenna eiga viö
þunglyndi að striöa og i Vestur—Evrópu
og Bandarikjunum eru framin um 1000
sjálfsmorð á sólarhring, að þvi er segir I
„Neyðarópi” frá Alþjóða Heilbrigöis-
stofnuninni. Þessi sjúkdómur leggst jafnt
á unga sem gamla, rika sem fátæka,
konur sem karla. (Express, Frakklandi)
Ævintýri?
Bandariski ljósmyndarinn Peter Beard
var á ferð i Kenya og kom þar auga á
ákaflega fallega, svarta stúlku meðal
hirðingjanna. Hann varð bergnuminn og
tók þegar i stað 600 myndir af dömunni,
sem sendar voru til New York. Umboðs-
skrifstofa fyrirsætna ákvaö á stundinni aö
ráða Iman hina fögru af hirðingjakyni. En
þá kemur völvan illa til sögunnar i ævin-
týrinu. Ýmsir telja sig vita, að Iman sé
ekki hirðingi, heldur dóttir Hilton—hótel-
stjórans I Nairobi. En Iman og Peter
halda fast við sitt og þaö skiptir raunar
ekki öllu, fyrst takmarkinu er náð — Iman
er komin á samning og hefur 2.400.000
dollara á ári i byrjendaiaun! (Express,
Frakklandi)
Það er arfur líka
Forsetadóttirin Caroline Kennedy, 18
ára, er efst á lista yfir verst klæddu konur
heims, sem tizkukóngurinn Blackwell
gefur út I Los Angeles. Hann heldur þvi
fram að slæmur smekkur sé arfgengur og
visar til Jaqueline, móður stúlkunnar.
Nancy Kissinger og Anna Bretaprinsessa
eru lika á umræddum lista. (Los Angeles
Times, Bandarikjunum)
Heimsmet i bleytu
Bernhard Beatty var dauöþreyttur en
afskaplega hamingjusamur, þegar hann
var búinn að ná nýju heimsmeti i steypi-
böðun.U.ngi Bandarikjamaöurinn var
ekki á þvi aö gefast upp, fyrr en fyrra
met, 175 timar og 7 minútur var slegið. En
hann ætlar sér ekki að fara i þurrkvi fyrr
en hann hefur náö 200 timum undir steypi-
baðinu. (Daily News, USA)
Ljónaæði?
Það er sama hvar i heiminum sænska
óperusöngkonan Birgit Nillson kemur
fram, alltaf situr bandariska fyrirsætan
Nell Rheobald á áhorfendabekkjunum og
fagnar gifurlega. Þessa ayru tömsíunaa
iðju getur hún leyft sér vegna þess að ljón
beit hana. Það gerðist á bilasýningu, þar
sem Nell og ljónið áttu að veröa saman á
mynd. Nell sótti bilfyrirtækið til saka og
fékk 62 milljónir (isl) i skaðabætur. (Die
Welt, Þýzkalandi) f
Fokið í flest skjól
Stigarnir frægu upp að tindum
Himalayafjalla eru varðaðir úrgangi.
Niðursuðudósir, pappir, tómar flöskur og
annað rusl er allt i kringum leiðir hinna
huguðu og hver einasti náttúruverndar-
maður fengi áfall ef hann sæi tjaldstæðin.
Meðfram mestu umferöarleiðunum um
fjöllin eru flest tré dauö og hin i hættu. A
árinu 1974 einu fóru 800 lestir af viði til að
haida hita á 14696 fjallgöngumönnum það
árið en þeir voru f jórum sinnum fleiri en
árið 1970 (Der Spiegel, V—Þýzkalandi)
Hvað skyldi setningin kosta?
Nú, þremur árum eftir siöustu kvik-
mynd sina, kemur Brigitte Bardot aftur
fram á sjónarsviðið — i auglýsingamynd.
Þrisvar sinnum kemur hin 41—árs gamla
stjarna fram, klædd nlöþröngum siðbux-
um. Myndina má kalla þögla, þvi BB
segir aðeins eitt orð, nafnið á vörufram-
leiöandanum. Fyrir þetta fær hún um 3
milljónir (ísl.) króna. (Paris—Presse,
Frakklandi)
Hættuleg huggun
Bretar hafa aukiö áfengisneyzlu sina
um 37% á fimm árum. Ef þessi þróun,
verður ekki stöðvuð, mun fjöldi áfengis-
sjúkra aukast úr 400 þúsundum sem hann
ernú, i hálfa aðra milljón árið 1980. A ár-
unum 1970 til 1974 eyddu Bretar helmingi
meira fé i áfenga drykki en áöur. Fólk
huggar sig við flöskuna á timum efna-
hagslegrar óvissu og verðbólgu, segja
sérfræðingar og visa i því sambandi til
Þjóðverja á þriðja áratugnum. (Daily
Express, Englandi)