Heimilistíminn - 02.04.1978, Blaðsíða 4

Heimilistíminn - 02.04.1978, Blaðsíða 4
Deman.tarn.ir eru eíiífU; demantssalarnirekki — að minnsta kosti við 47. götu i New York Tuttugu og fimm ára gamall Gyðingur, sem verzlaði með demanta fannst nýlega myrt- ur i klæðaskáp i New York. Lik tveggja annarra demanta- sala fundust um svipað leyti á sandströnd i Puerto Rico. Þessir atburðir hafa orðið þess vald- andi, að skelfing hefur gripið um sig meðal demantasalanna i 47. götu i New York. Um leið og þessir þrir demantasalar voru myrtir hafa dýrir steinar milljóna — ef ekki milljaröa — virði, horfið, og það er álit FBI — bandarisku rikislögreglunnar, að eitthvert samband sé þarna á milli. Leiða menn getum að þvi, að glæpahring- ur standi á bak við morðin og steinaþjófn- aðina. Þessar grunsemdir lögreglunnar fengu meiri hljómgrunn en áður, við morðið á hinum 25 ára gamla demantasala, Pinchos Jaroslawics, sem myrtur var i október siðast liðinn. Fyrr á árinu höfðu þrir demantasalar úr 47. götu horfið, en það var ekki fyrr en Jaroslawics var myrtur, að lögreglan vissi fyrir vist, aö glæpir stóðu að baki þessum mannshvörf- um. Sönnunin var augljós. Lik hans fannst i klæðaskáp á skrifstofu starfsbróður hans i 47. götu. Jaroslawics hafði verið troðið niður i plastpoka, en hvergi fundust demantarnir, milljóna virði, sem hann daginn áður hafði tekið út úr peningaskáp sinum. Nokkrum vikum siðar var staðfest, að að minnsta kosti annað likið, sem fannst á Puerto Rico var af demantasala úr 47. götu. Þaö var lik hins 31 árs gamla Abrahams Shafizadeh. FBI segir, að demantssalarnir tveir, sem fundust á Puerto Rico hafi haft þar viðskiptasambönd og sömu sögu sé aö segja um hina tvo, sem enn hafa ekki fundizt. Á 47. götu, bilinu milli Fifth Avenue og Avenue og the Americas, sem eru aðeins 3—400 metrar, hafa menn lengi óttazt hinn ókunna óvin, ræningjann og glæpamann- inn, sem að sögn demantasalanna, er stöðugt á höttunum eftir tækifæri til þess að ræna þessum eðlu steinum. Meira en helmingur allra demanta i heiminum fara einhvern tima i gegnum hendur demantssalanna á 47. götu. USA flytur inn ca 52% allrar demantafram- leiðslu heimsins, og áður en demantarnir fara út til smásalanna á meginlandi Ameriku hafa þeir farið um hendur heild- salanna á 47. götu. — Hér skipta kannski um eigendur demantar aö verömæti 150 milljónir doil- Demantarnlr höföa U1 margra og kalla fram þaö versta, sem til er I hverjum manni. Hitt og þetta um demanta og demants hringa ara dag hvern, segir Jacob Simpson, sem rekur fyrirtæki, sem veröleggur demanta. — Opinberar tölur segja, aö verömætiö sé ekki nema 30—40 milljónir dollara, en mikið af viðskiptunum fer fram úti á götunni og önnur viðskipti eru hvergi skráð, heldur Simpson áfram. Hann er Gyðingur eins og reyndar um 90% allra demantasala við götuna. ' — A siðari árum hafa menn af öðrum þjóðernum nokkuð farið að taka þátt I þessum viðskiptum, en ástæöan fyrir þvi, að Gyðingar réðu að mestu yfir demanta- sölu heimsins er eiginlega byggð á sögu- legum forsendum, segir Jacob Simpson. - Við höfum i aldaraðir lagt fjármuni okkar i demanta og verzlað meö þá, einfaldlega vegna þess að demantar voru verðmæti, sem auðvelt var að flytja meö sér á flótta. Ef Gyðingar urðu fyrir ofsóknum i Austur-Evrópu, eða einhvers staðar i heiminum gátu þeir lagt á fótta með demanta sina i poka. Jarðir og eignir allar, eins og til dæmis sláturhús, urðu menn aö skilja eftir. Þetta er ein meginástæðan fyrir þvi, að Gyðingafjölskyldur hafa orðiö miklir sér- fræðingar i demöntum og öllu þvi, sem þeim við kemur i gegnum aldirnar. Nær þetta jafnt til demantsslipunar, verðlagn- ingar demanta og demantaverzlunar, segir Jacob Simpson. Hvorki Simpson né nokkur af starfs- félögum hans vill tala um hverjir það eru, sem standa að baki þessum siöustu glæpaverkum: — Það er ekki til neins, að vera að tala um þetta opinberlega, segir hann. Lögreglan getur hvort eð er ekkert við þessu gert. Sumir vilja halda þvi fram, aö þaö séu stuðningsmenn Meir Kahane, öfgasinn- aðra rabbía, sem standi að baki glæpa- verkanna. Enginn hefur þó getaö fært sönnur á, að svo sé I raun og veru. Allir vita þó, að þrátt fyrir það, að stærsti hluti demantasalanna sé Gyðingar, þá eru þeir ekki I einu og öllu sammála, hvorki hvaö við kemur trúarbrögðum sinum né stjórn- malaskoðunum. 47. gata likist að mörgu leyti venjulegri 4

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.