Heimilistíminn - 02.04.1978, Blaðsíða 32

Heimilistíminn - 02.04.1978, Blaðsíða 32
Sagan nm Tóta og systkin hans stað handa þér,” sagði Óli, pabbi Litla-Jóns. Eirikur stóð á fætur og þrýsti hönd karl- mannanna fjögurra. Hann var bæði glaður og þakklátur, þvi að honum var vel kunnugt um, að það var ekki alls staðar auðvelt að fá jarð- næði. ,,Þú ættir nú fyrst og fremst að þakka henni Boggu,” sagðiafioghló. ,,Það er hún, sem hef- ur undirbúið komu þina.” Bogga hló. —,,Já, þvi að annars hefðu þau á- reiðanlega haldið að þú værir einhver afbrota- maður”. Og nú varð Eirikur að segja frá fjölskyldu sinni. Hann átti konu og litla telpu, — ,,álika gamla og þessa þarna” sagði hann og benti á Mariu litlu. Sjálfur var hann alinn upp á heim- ili þar sem þau voru tiu, systkinin. Eins og nærri má geta var óhugsandi að þau gætu öll verið heima. Sum þeirra urðu að fara burt og koma sér fyrir annars staðar. ,,Komuð þið gangandi alla þessa löngu leið?” spurði mamma — Litla-Jóns. ,,Nei, ég á hest” sagði Eirikur, ,,svo að kona min og dóttir gátu oftast setið á honum. Þær dvelja nú á gistihúsinu niðri i sveitinni á meðan ég lit hér i kringum mig. ,,En hvað það verður gaman fyrir Mariu litlu að fá telpu til að leika sér við,” sagði mamma. ,,Já, og það kemur sér nú vist vel fyrir mina dömu lika”, sagði Eirikur og hó, ,,þvi að hún er mesti ærslabelgur.” Þau sátu i kringum bálið, þangað til komið var langt fram yfir miðnætti. Að lokum sofn- uðu þær Þyri og Maria litla, og var þá ákveðið 8 að halda heim. Eirikur gisti i Bárðarbæ um nóttina. En Tóti og Bárður gátu ekki sofnað strax. Þessi dagur hafði verið svo ánægjulegur og reyn§lurikur og þeir spjölluðu saman i hálfum hljóðum. Alveg sérstaklega fannst þeim þó á- nægjulegt að fá brátt nýjan nágranna sem gaman yrði að hafa samband við. Eftir nokkra stund kom amma til þeirra og sagði að nú yrðu þeir að fara að sofa. Þeir mættu til með að hætta að spjalla saman, það væri orðið svo framorðið. ,,Já, við skulum gera það, amma min” svar- aði Tóti og lokaði augunum. En Bárður gat enn ekki stillt sig og hnippti strax i hann. „Hugsaðu þér, ef Eirikur er ekki sá, sem hann segist vera,” hvislaði Bárður. „Hvað áttu við?” spurði Tóti. „Jú, sjáðu til... hugsaðu þér ef hann væri nú ræningi eins og Bogga talaði um!” „Hvað ertu nú að rugla þetta drengur, þetta var bara sagt i gamni” hvislaði Tóti „Eirikur ber það með sér, að hann er ekki neinn ræningi. Og svo gæti ekki heldur einn maður rænt okk- ur”. „Já, en ... hugsaðu þér, ef hann hefði nú marga menn sem biðu hans i felum uppi i fjöll- um”, hvislaði Bárður. Tóti gat ekki varizt hlátri undir teppinu. „Þú ert að hugsa um söguna sem afi sagði okkur einu sinni um ræningjahöfðingjann i Fannadal.” „Já, það er alveg rétt”, sagði Bárður ákafur —■ „og hann hét Eirikur og hafði rautt skegg.... Eirikur rauði.” „Þetta er meira bullið i þér Bárður”, sagði Tóti syfjulega.... „Það eru mörg hundruð ár, siðan þetta gerðist... Svo man ég ekki betur en að ræningjarnir yrðu vinir bændanna og settust að hjá þeim niðri i dalnum.” „Já, en hver veit, nema sumir þeirra hafi alltaf verið þar ” sagði Bárður þvermóðsku- lega. „Hættu þessu bulli tafarlaust”, sagði Tóti og geispaði — nú vil ég fara að sofa. 4. kafli. ÚTILEGUMENNIRNIR í TRÖLLHEIMUM Næstu dagar voru einkar ánægjulegir og reynslurikir. Morguninn eftir lögðu allir karl- 32

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.